Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 2
8. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Auður, fannst þér svona
grátlegt að hitta Bieber?
„Ég grét af gleði vegna þess að ég
trúði ekki að þetta væri að gerast.“
Auður Eva Peiser Ívarsdóttir grét í klukku-
tíma þegar hún hitti átrúnaðargoðið sitt
Justin Bieber baksviðs á tónleikum í London
um síðustu helgi.
FÓLK „Það er kjaftshögg að lenda
í svona, kjaftshögg sem þú verður
ekki var við fyrr en allt er yfirstað-
ið. Þegar maður greinist veit maður
í rauninni ekkert hvað maður er að
fara að ganga í gegnum,“ segir
Gunnar Sigurgeir Ragnarsson sem
greindist með krabbamein í hálsi í
desember 2011.
„Ég fór að finna fyrir köggli
í hálsinum og lét heimilislækni
skoða mig. Heimilislæknirinn
vildi láta taka sýni strax og senda
í ræktun. Nokkrum dögum síðar
er hringt í mig og mér tilkynnt að
ég þurfi að fara í uppskurð og láta
fjarlægja kýlið. Ferlið tók sem sagt
um tvær vikur, frá því að ég fer til
læknis og þangað til ég er búinn í
aðgerðinni, þannig að það er óhætt
að segja að heimilislæknirinn hafi
brugðist rétt við.“
Gunnar fór í sína fyrstu geisla-
meðferð í janúar 2012 en biðtím-
ann frá aðgerð og að geislameðferð
segir hann hafa verið erfiðan.
„Það var ákveðið að byrja ekki
geislameðferðina rétt fyrir jólin
og í dag skil ég þá ákvörðun,“ segir
Gunnar sem fór í 33 skipti í geisla
frá janúar til mars.
Gunnar segir geislameðferðina
hafa tekið bæði andlegt og líkam-
legt þrek af honum og hann hefur
ekki enn náð fullum styrk aftur.
„Þetta hefur áhrif á allt og alla
í kringum mann og það er ekki
til nein uppskrift að því hvernig
maður tilkynnir börnunum sínum
svona fréttir, að maður sé kominn
með krabbamein.“ Gunnari var
boðið að taka dætur sínar tvær með
í geislameðferð til að leyfa þeim að
sjá hvernig hlutirnir færu fram.
„Eldri stelpan mín treysti sér
ekki til að koma með en yngri
dóttirin kom og það var gott fyrir
okkur.“
Gunnar telur að fólk verði að
vera óhrætt við að ræða þennan
sjúkdóm og segir að það sé einmitt
það sem Mottumars geri, að skapa
umræður.
„Móðir mín greindist með
brjóstakrabbamein fyrir um tutt-
ugu árum og þá var þetta helst ekki
rætt. Nú til dags reynum við að tala
opinskátt um þetta í fjölskyldunni
og ég finn að manni líður betur.“
Gunnar minnist þess að það hafi
verið erfitt að hafa áhyggjur af
fjármálum ofan á veikindin.
„Maður hefði þurft að setja fjár-
hagsörðugleika og annað áreiti
á bið,“ segir Gunnar að lokum og
minnir á að jákvætt hugarfar skipti
öllu máli í svona aðstæðum. - gha
„Það er kjaftshögg
að fá krabbamein“
Tveggja barna faðir sem greindist með krabbamein í hálsi í desember fyrir rúmum
tveimur árum segir veikindin hafa haft áhrif á allt og alla í kringum hann. Hann
segir enga uppskrift vera til að því hvernig tilkynna eigi fjölskyldunni slík veikindi.
BARÁTTA Gunnar S. Ragnarsson fann kýli í hálsinum og greindist með krabbamein
í kjölfarið.
LÖGREGLUMÁL Sex karlar hafa verið úrskurð-
aðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í
tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál sem
komið hefur upp á Íslandi í langan tíma.
Fjórir mannanna voru handteknir í janú-
ar en hinir tveir í febrúar í tengslum við
tilraunir til að smygla um tuttugu kílóum af
amfetamíni til landsins og 1,7 lítra af amfeta-
mínbasa. Lögreglan telur að með amfetamín-
basanum hefði verið hægt að framleiða um
sautján kíló af amfetamíni.
Mennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri.
Þrír þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til 14. mars á grundvelli rannsóknarhags-
muna, en hinir þrír til 4. apríl á grundvelli
almannahagsmuna.
Fíkniefnin voru send í nokkrum póstsend-
ingum til landsins. Það voru starfsmenn
tollyfirvalda sem fundu efnin í janúar með
aðstoð fíkniefnaleitarhunda. Það er lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn
málsins ásamt dönskum lögregluyfirvöld. - gb
Reyndu að smygla nærri tuttugu kílóum af amfetamíni til Íslands:
Sex áfram í gæsluvarðhaldi
PÓSTKASSAR Reynt var að smygla um 20 kíló-
um af amfetamíni og 1,7 lítra af amfetamínbasa
í nokkrum póstsendingum til landsins.
VEÐUR Fjölmargir bifreiðaeigendur lögðu leið sína á bílaþvottastöðvar á
höfuðborgarsvæðinu í gær til að skola öskulag af bílum sínum.
Hvassviðrið sem gekk yfir landið hafði borið með sér ösku úr Eyja-
fjallajökli sem lagðist yfir og settist á bíla.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur sagði í fréttum Stöðv-
ar 2 í gær að öskufok að vetri til væri alls ekki algengt og áratugir væru
sennilega frá því að slíkt hefði verið. Mikil aska væri til staðar á Eyja-
fjallasvæðinu og miklar líkur á að hún myndi fjúka yfir borgina þegar
þurrt og hvasst væri í veðri. - þj
Eigendur skítugra bíla hópuðust á bílaþvottastöðvar:
Skoluðu ösku eftir veðurofsann
SKOLA ÖSKUNA BURT Hvassviðrið í vikunni bar ösku úr Eyjafjallajökli með sér yfir
höfuðborgarsvæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hálf sjötta milljón hefur safnast hingað til í
Mottumars-átaki Krabbameinsfélags Íslands.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri félagsins, segir
átakið hafa gengið afar vel hingað til.
„Okkur þykir ekki síður vænt um hvað áverknis-
átakið hefur gengið vel. Fyrirlestrar sem við höfum
staðið fyrir hafa fengið mjög góðan hljómgrunn
þannig að við erum mjög sátt.“
5,5 milljónir hafa þegar safnast
VENESÚELA Nicolas Maduro, sem
nú gegnir forsetaembætti í Vene-
súela, segir að líkið af Hugo Cha-
vez verði smurt og haft til sýnis
um aldur og ævi.
Chavez lést á þriðjudag eftir
erfiða baráttu við krabbamein.
Efnt verður til forsetakosninga
innan þrjátíu daga frá láti hans.
Chavez hafði sjálfur óskað eftir
því að Maduro yrði kosinn arftaki
sinn.
Útför hans verður gerð í dag
með mikilli viðhöfn og er reiknað
með að leiðtogar meira en þrjátíu
ríkja mæti. - gb
Hugo Chavez smurður:
Líkið verður til
sýnis framvegis
EVRÓPUMÁL Björgólfur Jóhannsson, nýkjörinn for-
maður Samtaka atvinnulífsins (SA), segist þeirrar
skoðunar að ljúka eigi aðildarviðræðum Íslands við
Evrópusambandið. Í samtali við RÚV sagði hann
mikilvægt að fá niðurstöðu í málið til að það verði
ekki eilífðardeilumál hér á landi.
„Niðurstaða verður að nást og það er ekki hægt
nema með því að ljúka samningum,“ sagði Björg-
ólfur á RÚV.
„Ég vil að þessari vegferð verði lokið. Ég sé ekki
annað í stöðunni en að það verði gert. Mér finnst
við vera komin það langt í þessum viðræðum og ég
lýt þjóðarvilja í þessu þegar að því kemur.“
Björgólfur bætti því við að niðurstaða í sjávarút-
vegsmálum skipti miklu máli.
„Það hefur verið talað um að sjávarútvegsmál
skipti miklu máli í þessum viðræðum og það er
ljóst að við þurfum að ná ásættanlegri niðurstöðu
þar.“
Innan SA hafa lengi verið skiptar skoðanir um
ágæti mögulegrar ESB-aðildar Íslands, þar sem
Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) hefur
verið mótfallið aðild, en Samtök iðnaðarins og
Samtök verslunar og þjónustu hafa verið hallari
undir slíkar vangaveltur.
Björgólfur var um árabil formaður LÍÚ, en steig
úr þeim stóli haustið 2008. Við það tækifæri sagðist
hann þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands væri
best borgið utan ESB, en þá hafði Ísland ekki enn
sótt um aðild. - þj
Björgólfur Jóhannsson, nýr formaður SA, segist vilja klára ESB-viðræðurnar:
Vill ekki að ESB verði eilífðardeila
VIL KLÁRA VIÐRÆÐURNAR Björgólfur Jóhannsson, nýkjör-
inn formaður SA, sagðist á RÚV vilja ljúka aðildarviðræðum
Íslands við ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÆKNI Útlit samfélagsmiðilsins
Facebook hefur verið endurhann-
að til að koma til móts við notend-
ur, sem hafa kvartað undan því
að síðan sé orðin of flókin.
Útlitið verður stílhreinna og
þar með læsilegra, en um leið
verður auglýsingum gert hærra
undir höfði. Dálkum síðunnar
verður fækkað úr þremur í tvo,
þannig að fréttadálkurinn fær
meira pláss. Mark Zuckerberg,
framkvæmdastjóri Facebook,
vonast til þess að með nýja útlit-
inu verði miðillinn meira eins og
fréttablað. - gb
Kvörtunum svarað:
Facebook fær
útlitsbreytingu
SPURNING DAGSINS
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA