Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 11
FÖSTUDAGUR 8. mars 2013 | FRÉTTIR | 11
Vöxtur og
væntingar
í ferðaþjónustu
Kynntur verður nýr framtakssjóður á vegum Landsbréfa en sjóðnum
er ætlað að styðja við ný og spennandi verkefni í ferðaþjónustu.
Þá verður kynnt ný greining Hagfræðideildar Landsbankans á stöðu
ferðaþjónustunnar og þjóðhagslegu mikilvægi hennar, auk þess sem
allað verður um nokkra vaxtarbrodda í ferðaþjónustu.
Fyrirlesarar eru:
» Árni Þór Þorbjörnsson, Fyrirtækjasviði Landsbankans
» Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins
» Davíð Björnsson, Fyrirtækjasviði, mannvirkjagerð og ferðaþj.
» Eva María Þórarinsdóttir Lange, frumkvöðull hjá Pink Iceland
» Fannar Ólafsson, framkvæmdastjóri Íshesta
» Gústaf Steingrímsson, Hagfræðideild Landsbankans
» Helgi Júlíusson, sjóðstjóri hjá Landsbréfum
» Melissa Andretta, markaðsstjóri Icelandair í Ameríku
» Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa
» Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og
ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar
Allir velkomnir.
Við bjóðum til opins fundar í Hörpu,
fimmtudaginn 14. mars. Skráning á landsbankinn.is.
VIÐSKIPTI Hagnaður Vodafone (Fjarskipta hf.) á
síðasta ári, fyrir fjármagnstekjur, afskriftir og
skatta, nam 2.768 milljónum króna á síðasta ári og
hækkaði um 352 milljónir milli ára. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Tekjurnar árið 2012 námu 13.345 milljónum
króna og hækkuðu um þrjú prósent frá fyrra ári.
Mestar tekjur voru af farsímaþjónustu, 5.763
milljónir, en mestur vöxtur var í tekjum af sjón-
varpi og gagnaflutningum.
Heildareignir Fjarskipta í árslok námu 16.278
m.kr. og höfðu hækkað um 514 milljónir frá upp-
hafi 2012. Eigið fé nam 6.782 milljónum um síðustu
áramót og var eiginfjárhlutfallið tæp 42 prósent.
Fjarskipti hf. var skráð á hlutabréfamarkað í
desember. Hluthafar í árslok voru 548, en stærstu
eigendurnir voru Framtakssjóður Íslands með
rúmlega nítján prósenta hlut og Lífeyrissjóður
verzlunarmanna með rúm tólf prósent.
Heildareignir Fjarskipta nema um 16 milljörðum:
Vodafone hagnaðist
um tæpa 3 milljarða
352
milljónir króna
er hagnaðar-
aukning Voda-
fone á milli
rekstrarára.
LANDBÚNAÐUR Matvælastofnun
telur líkur á því að smitandi barka-
bólga hafi verið upprætt með slátr-
un allra þeirra gripa sem reyndust
smitaðir á Egilsstaðabúinu á Völl-
um síðastliðið haust.
Smitandi barkabólga greindist
í gripum á búinu við reglubundna
leit Matvælastofnunar að smit-
andi sjúkdómum í íslenska kúa-
stofninum. Við nánari rannsókn
og endurteknar sýnatökur úr
öllum nautgripum reyndust 34 kýr
hafa smitast á Egilsstöðum. Einn-
ig fundust vísbendingar um smit í
einni kú sem fæddist á Egilsstöð-
um og hafði verið flutt að Fljóts-
bakka á Héraði.
Í kjölfarið var gerð rannsókn
á öllum mjólkurframleiðslubú-
um í landinu og á nautgripum í
nautabúinu í Hrísey og nautum og
nautasæði í Nautastöðinni á Hesti.
Ekki fundust neinar vísbendingar
um sjúkdóminn annars staðar en
í kúm frá Egilsstöðum og Fljóts-
bakka.
Næst verða tekin blóðsýni eftir
fimm mánuði á Egilsstöðum og
Fljótsbakka. Ef ekki mælast mót-
efni gegn smitandi barkabólgu í
sýnum má gera ráð fyrir að sýk-
ingunni hafi verið útrýmt úr
íslenska nautgripastofninum, að
því er segir í tilkynningu.
- shá
Öllum gripum slátrað á Egilsstaðabúinu á Völlum:
Barkabólgu hefur
líklega verið útrýmt
MALASÍA, AP Rúmlega þrjátíu
manns létu lífið í skotbardaga milli
öryggissveita í Malasíu og liðs-
manna soldáns frá Filippseyjum,
sem gerir tilkall til landsvæðis á
eyjunni Borneó.
Soldáninn Jamalul Kiram sendi
200 manna lið til Filippseyja í síð-
asta mánuði og lagði undir sig
heilt þorp. Mikið pólitískt uppnám
varð í kjölfarið, bæði í Malasíu og
á Filippseyjum.
Soldáninn segist eiga erfðatil-
kall til Sulu-héraðs á sunnanverð-
um Filippseyjum og gerir einnig
tilkall til Sabah-héraðs á eyjunni
Borneó, en það hérað tilheyrir
Malasíu. Mikilvægar náttúruauð-
lindir eru í Sabah-héraði.
Stjórnarherinn í Malasíu brást
við á þriðjudag með loftárásum,
en svo virðist sem flestir Filipps-
eyingarnir, sem fylgja Kiram, hafi
sloppið óskaddaðir frá þeim.
Í gær réðust svo sveitir lögreglu
og hers á liðsmenn soldánsins og
lauk þeim hildarleik með því að 31
Filippseyingur lá í valnum.
Najib Razak, forsætisráðherra
Malasíu, hefur hafnað vopnahlés-
tilboði frá soldáninum: „Þeir verða
að leggja niður vopn, og það eins
fljótt og hægt er,“ sagði Razak. - gb
Filippseyskur soldán í stríð við stjórnarherinn:
Skotbardagi kostaði
tugi lífið í Malasíu
JAMALUL KIRAM Sendi 200 manna lið
frá Filippseyjum í síðasta mánuði og
lagði undir sig heilt þorp.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐ Barkabólga er landlægur vágestur víða um lönd.