Fréttablaðið - 08.03.2013, Page 22
FÓLK|HELGIN
Sjónabókin er einstök í heiminum,“ segir Solveig Theodórsdóttir, formað-ur Heimilisiðnaðarfélagsins, en þrír
listamenn munu fjalla um útsaum, vefnað
og prjón upp úr munstrum Sjónabókarinnar
á málþingi á sunnudaginn, í tilefni 100 ára
afmælis Heimilisiðnaðarfélagsins.
Sjónabókin var gefin út af félaginu árið
2009 og inniheldur munstur frá 17. og 18. öld.
„Þetta eru gömul handrit sem einungis
eru til á Þjóðminjasafninu og byggja öll á
reitamynstrum,“ útskýrir Solveig. „Hver kafli
er tileinkaður manni eða konu sem teiknað
hefur munstur og er fyrsti kaflinn tileinkaður
Ragnheiði Jónsdóttur, biskupsfrú á Hólum,
en hún er einmitt með sjónabókina sína í
hendinni á fimm þúsund króna seðlinum.“
Málþingið hefst klukkan 10.
Guðrún J. Kolbeins, vefnaðarlistakona og
kennari, fjallar um vefnaðarlist að fornu og
nýju og hvernig nýta megi munstrin úr Sjóna-
bókinni í nútímanum. Jóhanna Pálmadóttir,
framkvæmdastjóri textílsetursins á Blöndu-
ósi, fjallar um útsaumslist, Gréta Sörensen
prjónahönnuður fjallar um að prjóna af list
og Ingibjörg Ágústsdóttir, handverkslista-
maður í Stykkishólmi, talar um að hún sæki
andagift sína til bókarinnar.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Fallegt mynstur á
þjóðbúningi.
FORNT HANDVERK
Málþingið
verður haldið í
fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins
milli klukkan 10
og 12 á sunnudag
og er öllum opið.
Á sunnudaginn er
einnig hinn árlegi
þjóðbúningadagur
á safninu. Allir sem
mæta í þjóðbúningi
fá ókeypis inn á
safnið.
Daði vinnur nú meistaraverkefni í umhverfis- og auðlindafræði í samstarfi við verkfræðiskrifstof-
una Verkís. Verkefnið felst í því að kanna
möguleika og hagkvæmni þess að reka
hjólaleigukerfi í Reykjavík. Kerfið væri
svipað þeim sem rekin eru í fjölda borga
víðs vegar um heim. „Þetta væri þriðja
kynslóð af hjólaleigukerfi, sem þýðir að
notendur skrá sig inn með einhvers konar
auðkenni; á netinu, með kreditkorti, síma
eða með öðrum hætti. Þannig veit kerfið
ávallt hver er með hvaða hjól og jafnvel
hvar það er,“ segir Daði.
Hjólin væru læst í sérstökum hjóla-
stöndum sem komið væri fyrir á við-
eigandi stöðum. „Þegar viðskiptavinur
greiðir fyrir hjól aflæsist það. Tökum
dæmi af manni sem leigir hjól á Hlemmi
og hjólar vestur í Háskóla, þar væri annar
hjólastandur þar sem hægt væri að skila
hjólinu af sér.“
Spurður um staðsetningu slíkra stöðva
segir Daði könnunina einmitt taka mið af
því hvar fólk vilji fá slíkar stöðvar. „Sjálfur
teldi ég að æskilegt væri að hafa þær hjá
strætóstoppistöðvum, stórum vinnu-
stöðum, bílastæðahúsum og fjölförnum
stöðum. Vel heppnað kerfi sem væri
samtvinnað strætó gæti styrkt strætó og
strætó styrkt hjólakerfið.“
Daði hefur fundið mikinn áhuga þeirra
aðila sem málið snertir eins og hjá
borgaryfirvöldum og Strætó. „Þetta er allt
spurning um peninga, sem er víst lítið til
af um þessar mundir. Í Denver er svona
hjólakerfi rekið á samfélagslegum grunni
og ekki gerð krafa um neinn hagnað. Svo er
líka spurning hvort einhver fyrirtæki vildu
taka þátt í að skapa svona kerfi.“
Um þessar mundir vinnur Daði að
kostnaðargreiningu á kerfinu auk greining-
ar á samfélags- og umhverfislegum ávinn-
ingi þess. „Minni umferð, minni mengun,
bætt lýðheilsa og meiri strætónotkun.
Þetta eru allt þættir sem þarf að að skoða
og taka inn í myndina.“
Fólk er hvatt til að taka þátt í könnunni
á slóðina www.kannanir.is/nemendur/in-
dex.php?sid=48788&lang=is. „Því fleiri sem
taka þátt, þeim mun marktækari verða
niðurstöðurnar.“ Einnig er hægt að fletta
Daða upp á Facebook og finna könnunina
þar. ■ vidir@365.is
HJÓLALEIGUKERFI
Í REYKJAVÍK
BÆTTAR SAMGÖNGUR Daði Hall meistaranemi stendur fyrir viðhorfskönnun
á netinu um það hvort fólk myndi nýta sér hjólaleigukerfi ef boðið væri upp á
slíkt í Reykjavík. Þess konar kerfi er að finna í borgum víða um heim.
KÖNNUN Á NETINU
Daði hvetur fólk til að
taka þátt í könnuninni
og leggja sitt af mörkum
til að athuga kosti þess
og galla að reka hjóla-
leigukerfi í Reykjavík.
Könnunin má finna á
Facebook-síðu hans
undir nafninu Daði Hall.
MYND/GVA
Mjúkar fermingargjafir frá 4.990 kr
Öll fermingartilboðin á
www.lindesign.is
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
iðl
ak
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
G
all
up
n
óv
.-s
ep
t.
20
12
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu.
60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MESGBLAÐ Á