Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 27
Nýja EGF Dagkremið er silkimjúkt og nærandi og gefur þurri húð góðan raka sem endist
allan daginn. Kremið er mjög rakagefandi, ver húðina fyrir kulda og veitir henni mjúka og
fallega áferð. Það hentar einnig mjög vel undir farða.
Dagkremið er ofnæmisprófað eins og allar EGF húðvörurnar og það er án litar- og
paraben efna eða annarra ónauðsynlegra aukaefna.
● Mjög nærandi og rakagefandi
● Viðheldur réttu rakajafnvægi húðarinnar
● Gefur húðinni mjúka og fallega áferð
● Án parabenefna
ENDIST ALLAN DAGINN
Nýja dagkremið frá Sif Cosmetics er fjórða
húð varan sem fyrirtækið markaðssetur á Ís-
landi undir EGF-vörumerkinu. „Nýja krem-
ið er sérþróað fyrir þurra og mjög þurra
húð og er það árangur öflugs þróunarstarfs
hjá okkur,“ segir Björn Lárus Örvar, fram-
kvæmdastjóri og stofnandi Sif Cosmetics
og ORF Líftækni. Áður hafa komið á markað
EGF Húðdropar™, EGF Dagkrem fyrir venju-
lega húð og EGF Húðnæring fyrir líkamann.
Upphaflega EGF Dagkremið fékk frábærar
viðtökur þegar það var sett á markað haustið
2011. Það er létt og þægilegt dagkrem sem
veitir húðinni góðan raka og næringu. „Við
höfðum þó fengið tillögur frá fólki með þurra
húð um að það vildi feitara krem, sérstak-
lega fyrir veturinn,“ útskýrir Björn. Úr varð að
þróað var nýtt krem í samvinnu við ítalska
sérfræðinga sem meðal annars þróa snyrti-
vörur fyrir einstaklinga út frá mælingum á
eiginleikum húðarinnar. Nýja EGF Dagkrem-
ið er sérstaklega þróað fyrir þurra og mjög
þurra húð og til að nota á móti EGF Húð-
dropunum, sem er virkari vara sem á frekar
að nota á kvöldin áður en gengið er til náða.
Húðdroparnir eru endurnærandi, græðandi
og viðhalda unglegu yfirbragði.
Mikill áhugi innanlands og utan
Allar húðvörurnar frá Sif Cosmetics hafa
notið fádæma vinsælda hér á landi og er-
lendis. Húðdroparnir voru m.a. mest selda
snyrtivaran í Magasin du Nord í Kaup-
mannahöfn í febrúarmánuði. Erlendir blaða-
menn hafa sýnt vörunum mikinn áhuga
og talað um þær sem nýjasta æðið meðal
þeirra sem vilja fylgjast með því sem er að
gerast á snyrtivörumarkaði. „Við tökum á
móti miklum fjölda erlendra blaðamanna í
hverjum mánuði sem vilja fjalla um þá ein-
stöku tækni sem við notum og um virkni
húðvaranna frá okkur,“ segir Björn, en nán-
ast vikulega birtast greinar um húðdropana
í erlendum tímaritum víðsvegar um Evrópu.
Nú síðast birtist t.d. þriggja síðna grein í
Cosmopolitan í Tyrklandi um húðvörurnar
auk þriggja síðna greinar um Ísland. Þá var
fjallað um vörurnar á dönsku sjónvarpsstöð-
inni TV2 á dögunum og eitt vinsælasta tíma-
rit Írlands, Social & Personal, valdi húð-
næringuna bestu fáanlegu húðvöruna fyrir
líkamann. „Við höfum alls ekki getað kvart-
að yfir áhuga erlendra fjölmiðla á fyrirtæki
okkar eða vörum,“ segir Björn. Sé að marka
umfjallanir þessara miðla nota margir þekktir
einstaklingar vörurnar, svo sem leik konurnar
Uma Thurman, Kelly Preston og Marion
Cotillard.
Einstök tækni við framleiðslu
EGF Dagkremið inniheldur EGF frumuvaka.
Frumuvaki er prótein sem stýrir endurnýjun
húðfrumna og hægir á náttúrulegu ferli öldr-
unar. Dr. Stanley Cohen og dr. Rita Levi-
Montalcini hlutu Nóbelsverðlaunin í læknis-
fræði árið 1986 fyrir uppgötvun sína á
frumuvökum og hlutverki þeirra við endur-
nýjun húðfrumna. Húðfrumurnar framleiða
sjálfar EGF en magn þess í húð minnkar
með aldri. Húðfrumurnar þekkja EGF frumu-
vakann og setja í gang sameindaferli þegar
hann binst við yfirborð þeirra. EGF húðvör-
urnar virkja því eiginleika húðfrumnanna
sjálfra til þess að endurnýja sig. „Við fram-
leiðum þennan frumuvaka í byggplöntum og
höfum þróað til þess einstæða tækni,“ upp-
lýsir Björn, en frumuvakarnir eru framleiddir í
samstarfi við ORF Líftækni hf.
„Notendur eru trúir vörunni og kaupa hana
aftur og aftur. Við höfum haldið stöðu okkar
sem mest selda snyrtivaran hjá stærstu
evrópsku flugfélögunum og í mörgum virt-
ustu snyrtivöruverslunum Evrópu,“ segir
Björn. Nýja EGF Dagkremið fyrir þurra og
mjög þurra húð er nú fáanlegt í helstu snyrti-
vöruverslunum og apótekum um land allt.
NÝTT EGF DAGKREM FYRIR
ÞURRA HÚÐ FRÁ SIF COSMETICS
Sif Cosmetics, dótturfyrirtæki ORF Líftækni hf., hefur sett á markað nýtt EGF Dagkrem sem er sérþróað fyrir þurra og mjög þurra húð.
Húðvörurnar frá Sif Cosmetics hafa notið mikilla vinsælda jafnt hér á landi sem erlendis.
EGF Húðvörurnar frá Sif Cosmetics eru vinsælar innan lands sem utan. MYND/STEFÁN
Björn Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni, í hátækni-
gróðurhúsi fyrirtækisins.
AUGLÝSING: SIF COSMETICS KYNNIR
Sjá nánar á visir.is/lifid
Í Grænu smiðjunni eru framleiddir frumuvakar í húðvörur Sif Cosmetics og til læknisfræðilegra rann-
sókna.
Hátæknigróðurhús
Í GRINDAVÍK
Græna smiðjan er tvö þúsund fermetra hátæknigróðurhús ORF Líftækni hf.
í Grindavík sem tekið var í notkun í maí 2008. Þar eru framleiddir frumuvak-
ar í húðvörur Sif Cosmetics og til læknisfræðilegra rannsókna með erfða-
tækni í byggi. Græna smiðjan er eitt fullkomnasta gróðurhús landsins. Hita-
stigi, birtu og rakastigi er stjórnað nákvæmlega til að aðstæður fyrir rækt-
unina séu sem bestar. Bygginu er sáð á annan enda færibanda og þremur
mánuðum seinna er það skorið upp á hinum endanum. Byggið er rækt-
að í hreinum vikri og fær öll nauðsynleg næringarefni í næringarlausn með
vökvun. Þannig er hámarks hreinleiki tryggður í ræktuninni.