Fréttablaðið - 08.03.2013, Síða 28
FRÉTTABLAÐIÐ
6 • LÍFIÐ 8. MARS 2013
Snæfríður Ingadóttir. Heilsa, matur og hamingja. Yfirheyrslan og helgarmaturinn.
T
annstönglar úr íslenskum
stráum, ætlaðir túristum,
ný bók og þriðja barnið á
leiðinni – hefurðu alltaf
verið svona hugmyndarík
og atorkusöm? Við skulum orða
það þannig að ég hef alltaf haft
gaman af því að koma hlutum í
verk enda sérlega gefandi að sjá
eigin hugmyndir verða að veru-
leika. Ég hef áður gefið út bækur
og eignast börn en Tannstráin
eru fyrsta varan sem ég kem á
markað og allt ferlið í kringum
það hefur verið mjög skemmti-
legt og lærdómsríkt.
Nú hefurðu verið búsett á
Akureyri í rúm tvö ár. Hvernig
kanntu við þig þar og hvaða kosti
hefur Akureyri fram yfi r höfuð-
borgina að þínu mati? Ég er alin
upp á Akureyri
en flutti þaðan
sem unglingur
og ætlaði
mér
aldrei
að flytja
hingað
aftur.
Bærinn hefur hins
vegar komið mér skemmtilega
á óvart á fullorðinsárum, en allt
hefur sína kosti og galla. Helsti
kosturinn við Akureyri er stærð-
in, allt er í göngufæri. Ég sakna
hins vegar oft fleiri valmögu-
leika þegar kemur að verslun og
þjónustu.
Þreytt á álaginu
Framan af starfaðir þú sem
fréttakona á RÚV fyrir norðan,
kunnirðu því starfi vel? Það var
mjög gaman að vinna á RÚV
Norðurlandi. Þetta er lítill
vinnustaður með góðu fólki. Það
var sérlega gaman að kynnast
Norðurlandi í gegnum starfið því
fréttamennskunni fylgdu mikil
ferðalög, allt frá Hvammstanga
til Vopnafjarðar. En starfinu
fylgdi líka ákveðið álag sem ég
var orðin þreytt á og því ákvað
ég að hætta.
Sérðu fyrir þér að þú munir
starfa við
fjölmiðla
aftur síð-
ar meir?
Ég hef
gaman
af því að
búa til
efni fyrir
fjöl-
miðla,
það á vel
við mig
enda hef
ég starf-
að við
fagið í
15 ár. Ég
er því alls
ekki hætt þó að ég hafi
hætt í fréttunum á RÚV.
Flestir stungið upp í sig strái
En að nýju verkefnunum
þínum, sem eru afar ólík og
skemmtileg. Byrjum á tann-
stönglunum eða Tannstráun-
um eins og verkefnið kallast.
Hvernig kom það verkefni til?
Það hafa flestallir Íslendingar,
sem á annað borð hafa eitthvað
verið úti í náttúrunni, stungið
strái upp í sig. En að skera strá,
setja þau í pakka og bjóða sem
tannstöngla er hugmynd sem er
frá föður mínum, Inga Ragnari
Sigurbjörnssyni, komin. Hann
SNÆFRÍÐUR HEF LÆRT AÐ
LÁTA LEIÐINLEG VERKEFNI EIGA SIG
Snæfríður Ingadóttir fjölmiðlakona situr ekki auðum höndum þrátt fyrir að hafa hætt starfi sínu sem fréttakona RÚV á Akureyri ekki alls fyrir löngu.
Hún situr nú við skriftir á fjórðu túristabókinni sinni, býr til tannstöngla úr íslenskum stráum og gengur með sitt þriðja barn. Lífi ð spjallaði við Snæfríði.
SNÆFRÍÐUR INGADÓTTIR.
ALDUR: Korter í fertugt.
HJÚSKAPARSTAÐA:
Gift Matthíasi Kristjánssyni.
BÖRN: Ragnheiður Inga, 5 ára,
Margrét Sóley, 3 ára og þriðja
dóttirin er væntanleg
í heiminn í maí.
STARF: Sjálfstætt starfandi.
Börn hafa ótrú-
lega aðlögunar-
hæfni og það virð-
ist alveg sama
hvað ég er að
brasa, stelpurn-
ar taka því alltaf
sem sjálfsögðum
hlut.
Snæfríður ásamt hug-
myndasmiðnum föður
sínum og við vinnslu á
tannstönglunum.
ALLT Í RÆKTINA
Grensásvegur 8, sími 553 7300
mán-fim 12–18, fös 12–19, lau 12–17
Kr. 1.190,-
Kr. 1.990,-
Kr. 1.390,-
Kr. 1.490,-
Kr. 2.990,-
Kr. 1.390,-
Kr. 3.290,-