Fréttablaðið - 08.03.2013, Blaðsíða 32
FRÉTTABLAÐIÐ
10 • LÍFIÐ 8. MARS 2013
Heilsa, matur og haming ja. Yfirheyrslan og helgarmaturinn.
MATARBLOGG CATHERINE ELISABET BATT
É
g ákvað tólf ára gömul að
ég ætlaði að læra grasa-
lækningar, ég veit ekkert
hvers vegna,“ segir Ásdís
Ragna Einarsdóttir,
sem útskrifaðist með BS-gráðu í
grasalækningum frá University
of East London árið 2005. „Jurtir
eru frábær leið til þess að bæta
heilsuna og virknin í þeim nýtist
okkur svo vel. Þær eru líka svo
aðgengilegar, vaxa allt í kring-
um okkur, þótt úrvalið á Íslandi
mætti alveg vera meira, sérstak-
lega fyrir okkur
sem erum að
nota þær í svona
miklum mæli.
Íslenska flóran
er samt mjög
flott og ofboðs-
lega kraftmikl-
ar og góðar jurt-
ir sem vaxa
hérna. Við
grasalæknar
þurfum samt að sækja hráefni til
annarra landa og þá kaupum við
yfirleitt lífrænar jurtir sem fá að
vaxa í sínu eðlilega umhverfi.“
Eru margir lærðir grasalækn-
ar á Íslandi? „Nei, við erum bara
þrjár á öllu landinu sem erum
lærðar í þessu og praktiserum.
Þetta er ansi lítil stétt enn sem
komið er, en það breytist von-
andi í framtíðinni.“
Mataræði hluti af meðferð
Ásdís Ragna rekur stofur bæði
í Reykjanesbæ og Reykjavík og
hefur meira en nóg að gera. „Það
kemur alls konar fólk til mín.
sumir eru kannski búnir að fara
allan hringinn og mæta til mín
með greininguna á enninu, búnir
að prófa allar aðrar aðferðir. Það
er samt sem betur fer að breyt-
ast, fólk er farið að koma til mín
áður en það leitar annað og er
mun opnara fyrir því að prófa
grasalækningarnar.“
Þú ráðleggur fólki líka um
mataræði, ekki satt? „Ég er ekki
lærður næringarfræðingur en
auðvitað lærum við undirstöðu-
atriði næringarfræðinnar sem
hluta af náminu, eins og læknar
gera, og ég legg mikla áherslu á
næringuna sem meðferð. Þannig
að ég lít á það sem hluta af með-
ferðinni að breyta mataræðinu,
minnka það sem er slæmt fyrir
okkur og auka fjölbreytnina.“
Hollara nammi fyrir krakkana
Eitt af því sem talað er um sem
vaxandi vandamál er offi ta
barna, hvað geturðu ráðlagt for-
eldrum til að draga úr hættunni
á henni? „Mataræði hjá börnum
er oft dálítið einhæft og svo eru
það þessir skipulögðu nammi-
dagar sem ég hef aldrei skilið.
Auðvitað má hafa einhverja
gulrót í lok vikunnar og gera
sér dagamun með því að fá sér
eitthvað sætt en það er fárán-
legt að hafa einhvern einn dag
þegar gúffað er í sig öllu sem er
í boði. Það er auðvelt að koma
þeim upp á hollara mataræði
með því að elda hafragraut til
dæmis í staðinn fyrir sykrað
morgunkorn, nota hreinar ósykr-
aðar mjólkurvörur og sæta þær
til dæmis með hunangi og nota
grófara brauð í samlokurnar,
þau eru fl jót að sætta sig við það.
Maður þarf heldur ekkert alltaf
að troða grænmetinu í matinn,
þótt það sé gott. Á mínu heimili
er grænmeti mjög vinsælt sem
fi ngursnakk og krakkarnir tína
þetta bara upp í sig úr skálinni á
meðan þau eru að læra eða horfa
á teiknimyndir fyrir matinn. Á
nammidögum er svo hægt að
kaupa sódavatn í staðinn fyrir
gos og hella út í það lífrænum
ávaxtasafa, kaupa skrautlega
ávexti og skera þá í bita sem
hægt er dýfa ofan í bráðið líf-
rænt súkkulaði. Svo er auðvitað
til alls kyns sælgæti í heilsu-
deildum stórmarkaðanna, hlaup
úr ávaxtaþykkni, lífrænn lakkrís
og alls kyns góðgæti. Það er
minnsta málið að gera vel við sig
og krakkana án þess að hella sér
í botnlaust sykurát.“
- fsb
MATUR AUÐVELT AÐ KOMA KRÖKK-
UM UPP Á HOLLARA MATARÆÐI
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir hefur tröllatrú á gildi góðrar næringar til að rækta
heilsuna. Hún lumar á ýmsum góðum ráðum til að gera þeim yngstu í fjölskyldunni glað-
an dag án þess að það kosti botnlaust sykurát.
Catherine, sem er tveggja barna
móðir, heldur úti blogginu http://
mysweetedgarden.tumblr.com/ en
þar deilir hún myndum og upp-
skriftum að því helsta sem hún
tekur sér fyrir hendur í eldhúsinu.
Lífið fékk Catherine til að deila
uppskrift að einni dásamlegri
skúffuköku sem hentar vel á stóru
heimili.
Súkkulaðikaka
250 gr brætt smjör
4 egg
250 g sykur
500 g hveiti
2 tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1½ bolli nýmjólk við stofuhita
1 bolli súrmjólk
3 tsk. vanilludropar
250 g púðursykur
100 g kakó
Aðferð
Byrjið á því að hita ofninn upp í
175°C.
Hrærið egg, sykur og smjör saman
þar til deigið er ljóst og létt. Það
getur tekið upp í 5 mín. að fá
þennan grunn fullkominn.
Bæta hveitinu við í fjórum skömmt-
um, hrærið vel á milli.
Bætið matarsóda, lyftidufti og salti
við og hrærið vel.
Bætið því næst mjólkinni í og hrær-
ið vel, gætið þess að engir kögglar
séu í deiginu.
Að lokum setjið þið súrmjólk, van-
illudropa, púðursykur og kakó út í
deigið og hrærið í um 2 mín.
Klæðið botninn á ofnskúffunni með
bökunarpappírnum og smyrja hlið-
arnar vel. Hellið deiginu út í.
Bakið í um 35 mín. á 170-180°C.
Smjörkrem
500 g smjör
400 g flórsykur
1 stk. egg
1 tsk. vanilludropar
Þeytið saman smjörið og flórsyk-
urinn þar til það er létt og ljóst.
Bætið vanilludropum við.
Ef þú ætlar að hafa kakóbragð af
kreminu bætirðu kakói við í lokin.
ÁSTRÍÐA FYRIR EFTIRRÉTTUM
Catherine Elisabet Batt hefur verið búsett
á Íslandi í fi mmtán ár og segist elska lífs-
gæðin sem landinu fylgja. Hún hefur mikla
unun af því að baka og veigrar sér ekki við
því að gera eftirrétt fyrir aðeins einn ef því
er að skipta.
http://mysweetedgarden.tumblr.com/
Þú færð TOTAL RESULT vörurnar frá Matrix með 20% afslætti
á öllum sölustöðum Matrix í mars.
Eingöngu selt á hársnyrtistofum
Amplify – fyrir fínnt, þunnt og viðkvæmt hár, gefur lyftingu.
Sleek Look – fyrir úfið og óstýrlátt hár, hemur hárið.
Moisture – fyrir allar hárgerðir sem skortir raka, gefur djúpa næringu.
Color Care – fyrir litað hár, lengir endingu litarins.
Curl life – fyrir liðað eða krullað hár, hemur krullur.
Repair – fyrir illa farið eða skemmt hár, byggir upp.
Skrautlegir ávextir skornir í bita geta komið í staðinn fyrir sælgæti um helgar.
Ásdís Ragna
Einarsdóttir