Fréttablaðið - 08.03.2013, Side 49
FÖSTUDAGUR 8. mars 2013 | MENNING | 33
Ummæli Kate Middleton, hertoga-
ynju af Cambridge, sem hún við-
hafði á samkomu í Fiskisögusafni
Grimsby hafa vakið upp gríðar-
legar vangaveltur um kyn væntan-
legs afkomanda hennar og Willi-
ams Bretaprins.
Þegar Diane Burton, íbúi í
Grimsby, færði hertogaynjunni
hvítan bangsa að gjöf mun Middle-
ton hafa þakkað fyrir sig með
þessum orðum: „Takk, ég tek við
þessu fyrir d… “ og stoppaði svo í
miðri setningu. Þegar annar gest-
ur spurði Middleton hvort hún hafi
ætlað að ljúka setningunni með
„dóttur minni“ svaraði hertogaynj-
an: „Við ætlum ekki að segja frá.“
Á Kate von á stúlkubarni?
HERTOGAYNJAN Margir velta fyrir sér
kyni væntanlegs barns Kate Middleton.
Breski leikarinn Robert Pattin-
son vill ekki að unnustan og
fyrrverandi meðleikkona í Twi-
light-myndunum, Kristen Stew-
art, heimsæki hann til Ástral-
íu þar sem Pattinson dvelur nú
við tökur á kvikmyndinni The
Rover.
Parið hefur verið í eins konar
„saman/sundur“-sambandi eftir
framhjáhald Stewarts með leik-
stjóranum Rupert Sanders síð-
asta sumar.
Kunnugir segja að Pattinson
þurfi á hvíld að halda. Stewart
hefur á meðan eytt miklum tíma
með móður sinni í Bandaríkj-
unum.
Vill ekki heimsókn frá Kristen
PARIÐ Pattinson þarf á hvíld að halda.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 08. MARS 2013
Fundir
18.00 Aðalfundur ÆSKÞ verður haldinn í
Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík. Aðild-
arfélög eru hvött til að senda fulltrúa sína
en hvert aðildarfélag sem greitt hefur
félagsgjöld hefur tvö atkvæði. Virkur þátt-
takandi telst hver sá sem er á fjórtánda
aldursári eða eldri og tekur þátt í starfi
eins af aðildarfélögum ÆSKÞ. Boðið
verður upp á kvöldverð á fundinum.
Sýningar
15.00 Meistaraneminn Katla Rós Völu-
dóttir opnar einkasýningu í Kubbnum,
sýningarsal myndlistardeildar að Laugar-
nesvegi 91. Sýningin ber heitið Uppgjör.
Hátíðir
20.00 Tónlistarhátíðin Reykjavík Folk
Festival heldur áfram á Kexi Hosteli
við Skúlagötu. Í kvöld koma þar fram
Elín Ey, Árstíðir, Valgeir Guðjónsson og
Þjóðlagasveit höfuðborgarsvæðisins.
Miðaverð er kr. 3.000 á stök kvöld en kr.
7.999 fyrir þriggja daga passa.
Upplestur
18.00 Árni Páll les 27. Passíusálminn í
Grafarvogskirkju í tilefni föstunnar.
Umræður
17.00 Agnes M. Sigurðardóttir, biskup,
Andrea Rose Cheatham Kasper og
Khola Maryam Hübsch tala fyrir
hönd sinna trúarbragða á umræðu-
fundi í Norræna húsinu, Sturlugötu 5.
Umræðuefnið er Konur í trúarbrögðum,
réttur og ábyrgð og verður kristni, gyð-
ingdómur og islamstrú til umræðu.
Kvikmyndir
20.00 Hitchcock-myndin Rear Window
verður sýnd í Bíói Paradís, í tilefni af
Hitchcock-hátíð bíósins og Svartra
sunnudaga.
Tónlist
12.00 Raddbandafélag Reykjavíkur
heldur hádegistónleika í Háteigskirkju.
Miðaverð er kr. 1.000.
21.00 Hljómsveitin Trust the Lies
fagnar útgáfu sinnar fyrstu plötu með
tónleikum á Ellefunni. Ásamt þeim
munu Mercy Buckets og Moldun stíga á
svið. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Svokallað Fógetakvöld verður
haldið á Café Rosenberg. Halli Reynis,
Guðmundur Rúnar og Rúnar Þór eru á
meðal þeirra sem þar koma fram.
21.30 Latíntríó Tómasar R. Einarssonar
leikur á Heimstónlistarklúbbi Café
Haití. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Dream Central Station gefur
út sína fyrstu breiðskífu í lok síðasta
árs og heldur útgáfutónleika á Volta
af því tilefni. Vinahljómsveitir þeirra,
Nolo og Oyama, koma einnig fram og
DJ Dauði og DJ Pilsner þeyta skífum.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 og platan seld
á sérstöku tilboðsverði.
22.00 Hljómsveitin Skálmöld heldur
tónleika í Höllinni í Vestmannaeyjum.
Tónleikarnir eru hluti af Íslandstúr
hljómsveitarinnar sem gengur undir
yfirskriftinni Myrkur, kuldi, ís og snjór
2013. Miðaverð er kr. 3.000.
22.00 Cuba Libre heldur tónleika á
Græna hattinum, Akureyri. Miðaverð er
kr. 2.000.
22.00 Ljúflingurinn í Low Roar spilar
nýtt efni á efstu hæð Dillons. Aðgangur
er ókeypis.
23.00 Guðmundur Pétursson og Kippi
Kaninus halda tónleika á Faktorý Bar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Hljómsveitin Homo and the
Sapiens skemmtir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Fyrirlestrar
12.00 Peter J. Katzenstein og Ólafur
Þ. Harðarson fjalla um skuldakrepp-
una í Evrópu, stórveldi og smáríki
innan Evrópusambandsins, í fundaröð
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram í stofu 132 í Öskju
HÍ.
13.00 Sigurður Árni myndlistarmaður
heldur hádegisfyrirlestur í fyrirlestra-
röðinni Vinnustofan í myndlistardeild
Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi
91. Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
20.00 Halldór Haraldsson heldur fyrir-
lestur í húsi Lífspekifélagsins að Ing-
ólfsstræti 22. Fyrirlesturinn fjallar um
Swami Vivekananda, sem fæddist fyrir
150 árum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is