Fréttablaðið - 16.03.2013, Side 18
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Skoðun visir.is
Lagarfljót, mesta vatns-
fall Íslands, eftir Helga
Hallgrímsson náttúru-
fræðing á Egilsstöðum, er
stórbrotið verk sem kom
út haustið 2005, ári eftir
að framkvæmdir hóf-
ust við byggingu álvers
í Reyðarfirði. Ál verið
skyldi knúið orku frá
Kárahnjúkavirkjun eins
og alþjóð veit. Val gerður
Sverrisdóttir var þá
iðnaðar ráðherra. Flokks-
systir hennar, Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra, hafði
skömmu fyrir jól 2001 snúið við
úrskurði Skipulags stofnunar
sem lagðist gegn virkjuninni
af umhverfisástæðum. Með
úrskurði umhverfisráðherra var
rutt úr vegi síðustu lagahindrun-
inni sem hamlað gat virkjunar-
framkvæmdum.
Náttúruverndarsinnar reyndu
þó enn að andæfa, þeirra á meðal
Helgi Hallgrímsson. Hann hafði
árum saman rannsakað náttúru-
far eystra og safnað margvíslegu
efni til bókarinnar. Í formála
segir Helgi: „Innan fárra ára
verða afdrifarík tímamót í sögu
Lagarfljóts þegar öllu jökulvatni
Jökulsár á Dal verður beint um
jarðgöng til virkjunar í Fljótsdal
og þaðan í fljótið. Eftir það verð-
ur Lagarfljót allt annað vatns-
fall en það er nú.“ Lokaorð for-
málans eru: „Við ritun þessarar
bókar hefur mér stundum fund-
ist að ég væri að skrifa eftirmæli
um látinn vin.“
Spárnar orðnar að veruleika
Í bók Helga er gerð grein fyrir
þeim hörðu átökum sem árum
saman stóðu um Kárahnjúka-
virkjun í sérstökum
kafla. Þar eru reifuð
áhrif virkjunarinnar á
vatnakerfi Lagarfljóts
m.a. byggð á mati Lands-
virkjunar á umhverfis-
áhrifum. Matið sýndi
fram á að litur fljótsins
yrði dekkri og því myndi
draga úr silungsveiði.
Þar kom einnig fram
að hækkuð grunnvatns-
staða myndi valda breyt-
ingum á ræktuðu landi,
einkum í Fljótsdal. Í matinu er
engu spáð um áhrif á fuglalíf en
Helgi leggur áherslu á samhengið
í lífríkinu. „Jurtalíf á grunnum
mun að líkindum eyðast, einnig
mun botndýralíf rýrna verulega
og þar með fæða fiska og fugla.“
Þessar spár eru nú orðnar að
veruleika fáum árum eftir að
Kárahnjúkavirkjun var gangsett.
Lífríki Lagarfljóts fórnað
Í Fréttablaðinu 12. mars má lesa
í forsíðufrétt: „Lífríkið er nánast
búið í Lagarfljóti,“ segir Gunnar
Jónsson, formaður bæjarráðs
Fljótsdalshéraðs, um úttekt á
áhrifum Kárahnjúkavirkjunar á
fljótið.“ Fréttablaðið hefur einnig
fjallað um mikið landbrot. Fram
kom í viðtali við formann bæjar-
ráðs að hann væri í „sjokki“ yfir
niðurstöðum úttektarinnar. Samt
hefur ekkert gerst annað en það
að spár hafa gengið eftir. Héraðs-
búar og aðrir Íslendingar standa
nú frammi fyrir afleiðingum
pólitískra ákvarðana sem tekn-
ar voru fyrir um áratug. Mat á
umhverfisáhrifum lá fyrir og
því verður að telja að stjórn-
málamenn hafi tekið „upplýsta
ákvörðun“ ákaft studdir af hluta
Austfirðinga. Lífríki Lagarfljóts
var fórnað fyrir álver í Reyðar-
firði.
Enn verðum við að vona að
stökkbreytt Lagarfljót hafi
ekki jafn víðtæk áhrif á búsetu-
skilyrði manna og fiska og fugla
á Fljótsdalshéraði.
Hvellur
Í Bíói Paradís hefur heimildar-
myndin Hvellur eftir Grím
Hákonarson verið sýnd um
margra vikna skeið. Myndin
lýsir harðri en sigursælli baráttu
þingeyskra bænda gegn stækkun
Laxár virkjunar. Þar var um mik-
ilvægt lífríki Mývatns að tefla.
Einn bændanna sem tóku þátt
í því að sprengja stífluna efst í
Laxá segir í myndinni að sigur
Þingeyinga í Laxárdeilunni hafi
byggst á samstöðu heimamanna.
Sú samstaða var ekki fyrir hendi
á Austurlandi.
Austfirðingar eiga þó fjársjóð
fólginn í „eftirmælum“ Helga
Hallgrímssonar um fljótið sem
áður var.
Lagarfl jót. In memoriam
NÁTTÚRU-
VERND
Steinunn
Jóhannesdóttir
rithöfundur
➜Mat á umhverfi sáhrifum
lá fyrir og því verður að telja
að stjórnmálamenn hafi
tekið „upplýsta ákvörðun“
ákaft studdir af hluta
Austfi rðinga. Lífríki Lagar-
fl jóts var fórnað fyrir álver
í Reyðarfi rði. Enn verðum
við að vona að stökkbreytt
Lagarfl jót hafi ekki jafn víð-
tæk áhrif á búsetuskilyrði
manna og fi ska og fugla á
Fljótsdalshéraði.
2.507
LAUGARDAGUR 9. MARS
Andlegt ofb eldi í Sjálfstæðis-
fl okknum
Þórir Stephensen, fv. dómkirkjuprestur
1.312
MÁNUDAGUR 11. MARS
Óvinur nr. 1
Þórður Snær Júlíusson blaðamaður
1.239
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS
Átt þú 750 þúsund kall á lausu?
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
1.082
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS
Frekar í sjúkrabíl í óbyggðum en í
heimabyggð?
Guðlaug Einarsdóttir, ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur
677
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS
Hvar eru konurnar?
Kolbeinn Óttarsson Proppé blaðamaður
408
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS
Vertu óþæg!
Erla Hlynsdóttir pistlahöfundur
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
MYNDARLEGUR
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
www.landrover.is
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
M
MM
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
M
M
E
N
N
E
M
MMM
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
MMM
M
M
M
MMM
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
M
E
N
N
E
MMM
N
E
M
N
N
E
M
E
M
E
N
N
E
M
E
N
N
E
M
E
E
N
N
E
E
N
N
E
E
N
N
EE
NN
NN
/
S
ÍA
/
S
ÍAA
/
S
ÍAA
/
S
ÍA
/
S
ÍAÍA
S
ÍAAÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍAA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍAA
/
S
ÍÍ
/
SS
/
/
///
N
M
5
/
N
M
5
N
M
5
N
M
5
N
M
5
N
M
5
/
N
M
5
N
M
5
/
N
MMMM
N
MM
/ / / // / //
6
9
7
3
7
3
7
3
6
9
7
3
7
3
7
3
6
9
7
3
6
9
7
3
6
999
6
9
66666
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
TABBERT HJÓLHÝSUM
SÝNING ALLA HELGINA Á
LÍTTU VIÐ OG
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ
Laugardagur 11:00- 16:00
Sunnudagur 12:00-16:00
Opið