Fréttablaðið - 16.03.2013, Blaðsíða 96
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64MENNING
Sýningin er nokkurs konar söng-
leikjastemning. Ég var nýkominn úr
leikhúsinu, fór í sturtu og þá birt-
ist mér einhver sýn sem ég ákvað
að fylgja eftir með þessari sýn-
ingu,“ segir Helgi Þórsson mynd-
listarmaður, beðinn að segja í stuttu
máli frá þema sýningar sinnar í
Kunstschlager. Sýningin heitir Die
Katzen Musikale og Helgi segir þá
vísun augljósa öllum sem til söng-
leikja þekkja. „Það er þó bara einn
þráður sýningarinnar, það er ýmis-
legt fleira sem spilar inn í,“ bætir
hann við. „Þetta eru málverk og
skúlptúrar og myndirnar eru mál-
aðar með sjálflýsandi málningu sem
ég legg síðan áherslu á með því að
nota blacklight. Það skapar stemn-
ingu annars heims og ég er mjög
ánægður með útkomuna, held þetta
verði mjög áhrifarík sýning og mjög
ólík því sem ég hef áður gert.“
Þú ert að vinna í leikhúsinu seg-
irðu? „Já, ég sé um hljóð myndina
í Karma fyrir fugla í Þjóð-
leikhúsinu. Svo er ég að vinna verk
á aðra sýningu sem verður opnuð
í Hafnarborg um næstu helgi. Þar
er þemað andlegt, sýnendur eru
heilarar og sjáendur og listamenn
sem leggja stund á andlega iðju.
Ég stunda hugleiðslu og fæ þá oft
myndir úr undir meðvitundinni
sem ég ætla að sýna sýnishorn af
þar.“
Þannig að það er meira en nóg
að gera? „Já, það hefur hist þannig
á núna, eiginlega of mikið, en það
er líka mjög gaman að vinna þetta
svona hrat og sjá heila sýningu
verða til á nokkrum dögum.“
Sýningin í Kunstschlager verður
opnuð klukkan 20 í kvöld og verður
síðan opin í tvær vikur.
fridrikab@frettabladid.is
Hugljómun
í sturtunni
Die Katzen Musikale nefnist myndlistarsýning Helga
Þórssonar sem opnuð verður í Kunstschlager í kvöld.
Helgi lofar áhorfendum upplifun af öðrum heimi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖTTURINN Í HEIÐURSSÆ-
TI Helgi segir nafn
sýningarinnar Die Katzen
Musikale augljósa vísun sem
söngleikja aðdáendur ættu
að kveikja á.
M á l þ i N g I ð
MIlLiMáL Og MAtArLeIfAr
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat, fyrrum
aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á þessu
ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til til framhalds-
náms erlendis á skólaárinu 2013-2014.
Veittur er einn styrkur að upphæð 750.000 kr.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist fyrir 15. maí nk.
til formanns sjóðsins:
Halldór Friðrik Þorsteinsson
Grænuhlíð 19
105 Reykjavík
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.
Styrkur til
tónlistarnáms
MINNINGAR
SJÓÐUR
JPJ
Óska eftir að kaupa enskt english course
tungumálnámskeið
Ég borga 30.000 fyrir námskeiðið
Upplýsingar í 865-7013
Óperan Systir Angelica eftir
Puccini verður sýnd í Tjarnar-
bíói klukkan 17 og 20 í dag. Óp-
hópurinn stendur fyrir því. „Það
eru bara konur í sýningunni
og því einungis kvenhlutinn í
Óp-hópnum sem kemur fram.
Við erum sex talsins og svo er
hópur kvenna og stúlkna til við-
bótar,“ segir Hörn Hrafns dóttir,
ein söngkvennanna í óperunni
Systir Angelica sem verður sýnd
tvívegis í Tjarnabíói í dag. Leik-
stjóri er Randver Þorláksson,
Antonía Hevesi er tónlistarstjóri
og Flensborgarkórinn tekur þátt.
„Við erum búin að vera með sýn-
inguna í undirbúningi frá því
um miðjan janúar en í kollinum
mun lengur,“ segir Hörn og upp-
lýsir að búningarnir hafi verið
fengnir að láni hjá Íslensku óper-
unni. „Það leggjast allir á eitt til
að gera sýninguna sem glæsileg-
asta,“ lofar hún. - gun
Kvennaópera
SYSTIR ANGELICA Erla Björg Káradóttir
í sínu hlutverki.