Fréttablaðið - 16.03.2013, Síða 45
BRUGGHÚS
LAUGARDAGUR 16. MARS 2013
Kynningarblað
Bruggverksmiðjur
Heimabrugg
Gosbjór
Bjórkokkteilar
Vinsælustu bjórarnir
Á þeim þremur árum sem brugghúsið Borg hefur verið starfrækt hafa brugg-meistararnir Sturlaugur Jón Björnsson
og Valgeir Valgeirsson komið fram með sextán
nýjar tegundir á markað. „Á
fyrsta ári Borgar var bjórinn
Bríó skapaður. Við gerð hans
voru nýju tækin slípuð til og
prufukeyrð. Það er óneitan-
lega gaman að taka þátt í svona
verkefni. Sjálfur hef ég mikla
sköpunarþörf og er bjórgerð-
in bara hluti hennar,“ segir
Sturlaugur, sem er menntaður í öl-
gerðarvísindum frá Bandaríkjunum.
Byrjað á Bríó
Bríó var fyrsta tegundin sem brugguð var á
Borg og var þróaður í samstarfi við Ölstofuna.
„Hugmyndin var að búa til bjór sem væri nokk-
uð hefðbundinn en samt með sérstöðu. Því var
ákveðið að búa til þýskan pilsner. Kormákur og
Skjöldur, sem eiga Ölstofuna, prufuðu bjórinn
þar og komu svo reglulega til okkar í heimsókn
og smökkuðu.“ Fyrst um sinn var Bríó aðeins
fáanlegur á krana á Ölstofunni en þegar vin-
sældir hans jukust var hann fluttur yfir í stóra
brugghúsið og settur á flöskur og dósir. „Á þess-
um skamma tíma hefur hann svo unnið gull-
verðlaun í flokki þýskra pilsnerbjóra í World
Beer Cup og hlaut heimsmeistaratitil í flokki
pilsnerbjóra í World Beer Awards árið 2012.“
Blómabragð frá Bæjaralandi
Humlar eru klifurjurt sem er um tveggja metra
há. Til eru margar tegundir sem hafa verið þró-
aðar og betrumbættar öldum saman. „Huml-
arnir sem notaðir eru í Bríó eru Mittelfrau-
humlar frá Bæjaralandi, sem er einn af þessum
fornu drykkjum sem ekki hefur þótt ástæða til
að eiga við um langa hríð vegna gæða og sér-
stöðu.“ Í venjulegum bjór er humlabragð ekki
áberandi en það finnst sem beiskjubragð. „Bríó
er beiskari en hefð bundinn ljós lagerbjór en
humlarnir geta líka gefið okkur bragð og lykt,
eins og blómabragðið í Bríó. Það fer hins vegar
allt eftir því hvernig þeir eru notaðir í fram-
leiðsluferlinu.“
Úlfur
Úlfur er önnur vel lukkuð tegund
frá bruggmeisturunum á Borg,
fyrsti India pale ale bjórinn sem
framleiddur er á Íslandi. Hann var
þriðji bjórinn sem framleiddur var
á Borg og sérstakur fyrir marg-
ar sakir. „Úlfur var fyrsti bjórinn
sem kom frá Borg á flöskum og
vann líka til verðlauna á World
Beer awards 2012 í flokki India
pale ale.“ Slíkir bjórar urðu til
á 18. öld þegar nýlendustefna
Breta var allsráðandi. Bjór var
ofar lega á óskalista Breta sem
bjuggu á Indlandi en sigling-
in var of löng fyrir hefðbund-
inn bjór. George Hodgeson,
eigandi Bow-brugghússins,
leysti vandamálið með meira
af humlum og alkóhóli í bjórn-
um, sem jók geymsluþol hans.
„Fyrir vikið er beiskja India
pale ale öflugri en bjóráhuga-
menn eiga að venjast en þessi
bjórstíll náði engu að síður út-
breiðslu og varð mjög vinsæll.“
Heimsmeistarinn Bríó frá Íslandi
Bruggmeistarinn Sturlaugur Jón Björnsson eyðir flestum dögum í brugghúsinu Borg, sem er tilrauna- og vöruþróunarbrugghús
Ölgerðarinnar. Hann átti stóran þátt í gerð bjórsins Bríó sem hlotið hefur mörg alþjóðleg verðlaun.
Hér eru bruggmeistarar Ölgerðarinnar samankomnir í Brugghúsi Borgar. Sturlaugur er lengst til
vinstri, þá Guðmundur Mar Magnússon og Valgeir Valgeirsson.
BRÍÓ ÞÝÐIR GLEÐI Á ÍTÖLSKU
Bríó er nefndur eftir fjöllistamanninum Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni, sem lést
fyrir aldur fram árið 2009. Hann var góður vinur þeirra Kormáks og Skjaldar sem eiga og reka
Ölstofuna. „Hann var afskaplega skemmtilegur maður, mikill sagnameistari og tryggur viðskipta-
vinur Ölstofunnar,“ segir Kormákur. „Hann var kallaður Bríó en bríó er gamalt ítalskt orð yfir gleði.
Bríó er eiginlega sérstakur lífsstíll, en orðið lýsir þeim sem kunna að njóta lífsins og lystisemda
þess en stilla öllum áhyggjum í hóf,“ segir Kormákur, sem tók þátt í þróun bjórsins frá upphafi í
samstarfi við Brugghúsið Borg.