Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 66
| ATVINNA |
Fræðsluþjónusta Hafnarfjarðar
Skólastjóri grunnskóla
Staða skólastjóra Víðistaðaskóla í Hafnarfirði er laus til
umsóknar.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli og eru horn-
steinar skólastarfsins ábyrgð, virðing og vinátta.
Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki
og stöðugleiki er í starfsmannahaldi.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu, teymisvinnu, skapandi
hugsun og starfsgleði. Í skólanum er unnið samkvæmt
SMT-skólafærni og grænfánaverkefni er í gangi.
Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika og góða og
víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf, kennslu- og stjórnunarreynsla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-
eða kennslufræði
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sé reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Reynsla og/eða þekking á SMT- skólafærni æskileg
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækj-
anda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni
sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á færni hans
til að sinna skólastjórastarfi.
Upplýsingar um starfið veitir Magnús Baldursson, sviðs-
stjóri fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar í síma 585 5800,
netfang magnusb@hafnarfjordur.is og Sigurður Björg-
vinsson, skólastjóri Víðistaðaskóla í síma 595 5800, netfang
sigurdur@vidistadaskoli.is
Umsóknir berist Fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar, Strand-
götu 6, 220 Hafnarfjörður fyrir 25. mars 2013.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013 en
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf með fráfarandi
skólastjóra í maí/júni vegna undirbúnings næsta skólaárs.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar
jafnt sem konur hvattir til að sækja um stöðuna. Laun
og kjör eru samkvæmt samningum KÍ og launanefndar
sveitarfélaga.
Sviðsstjóri fræðsluþjónustu
Sölustarf.
Heildverslun
Heildverslun með sérvörur leitar eftir sölukonu/
manni til starfa frá og með 15. apríl.
Starfið felur í sér þjónustu/heimsóknir við fasta
viðskiptavini á Stór-Reykjavíkursvæðinu ásamt hluta
af landsbyggð. Reynsla ekki skilyrði en æskileg.
Áhugasamir sendið inn umsókn m/mynd á
box@frett.is, merkt: Sölustarf
Sálfræðingur á tauga-
og hæfingarsviði
Laus er til umsóknar 100% staða sálfræðings á tauga-
og hæfingarsviði Reykjalundar.
Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að starfa sem
sálfræðingur á Íslandi, þekkingu og reynslu á sviði
taugasálfræði, taugasálfræðilegra greininga fullorð-
inna, vitrænni þjálfun og vinnu með hópa og
aðstand endur. Starfið felst í greiningu og endurhæf-
ingu fólks með langvinna taugasjúkdóma og áunna
vitræna skerðingu.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Sálfræðinga-
félags Íslands og fjármálaráðherra auk stofnana-
samnings Sálfræðingafélags Íslands og Reykjalundar.
Umsóknir berist til Ingu Hrefnu Jónsdóttur,
forstöðusálfræðings (ingah@reykjalundur.is).
Upplýsingar um starfið veitir Inga Hrefna og
Guðrún Karlsdóttir, yfirlæknir tauga- og hæfingarsviðs
(gudrunk@reykjalundur.is).
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2013.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf hið fyrsta.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegum teymum þar
sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og
heildræna sýn. Óskað er eftir einstaklingi með færni í
samskiptum og sveigjanleika, frumkvæði og sjálfstæði
í starfi sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu
innan endurhæfingar.
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 –
www.reykjalundur.is
SKÁLAVÖRÐUR
Í DREKA
Ferðafélag Akureyrar auglýsir
laus störf skálavarða í Dreka og
Herðubreiðarlindum í sumar.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar
Antonsson í síma 862 32 62 eftir
klukkan 19.00.
Umsækjendur sendi umsókn sína
ásamt meðmælum á netfangið
hilmar.a@simnet.is
fyrir 15. apríl.
Leiðsögufyrirtækið Trek ferðir skipuleggur gönguferðir og
jöklaferðir allt árið um kring. Við óskum eftir að ráða sem
fyrst duglegann starfskraft í starf ferðafulltrúa. Starfið
felur í sér gerð ferðagagna, tilboða, sölu- og markaðs-
mála ásamt fleiru. Hér er um fjölbreytt starf að ræða hjá
ört vaxandi fyrirtæki.
• Aldur 25 – 40 ára
• Góð ensku kunnátta
• Þriðja tungmál er kostur
• Reynsla og/eða menntun í ferðaþjónustu á Íslandi
• Góð tölvukunnátta
• Mikil þjónustulund
Umsóknir sendist á trek@trek.is , nánari upplýsingar í
síma 571-3344.
Trek ferðir ehf - Skólavörðustígur 41 – www.trek.is
Ferðafulltrúi
kopavogur.is
Kópavogsbær
Staða aðstoðarskólastjóra Álfhólsskóla er laus
til umsóknar. Leitað er að stjórnanda sem býr
yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi skólastarf
í samvinnu við skólastjóra, kennara og foreldra.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013.
Menntunar og hæfniskröfur
Kennsluréttindi og kennslureynsla á
grunnskólastigi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi
framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og
menntunarfræða, stjórnunar eða í öðrum
greinum sem nýtast í starfi.
Forystuhæfileikar, samskiptahæfni og góðir
skipulagshæfileikar.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2013.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bjarnadóttir
skólastjóri sigrunb@kopavogur.is
eða í síma 570-4150 og 863-6811.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Álfhólsskóli
óskar eftir
aðstoðarskólastjóra
kopavogur.is
Kópavogsbær
Snælandsskóli
óskar eftir
aðstoðarskólastjóra
Staða aðstoðarskólastjóra Snælandsskóla
er laus til umsóknar. Leitað er að stjórnanda
sem býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi
skólastarf í samvinnu við skólastjóra, kennara
og foreldra. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst.
Menntunar og hæfniskröfur
Kennsluréttindi og kennslureynsla á
grunnskólastigi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi
framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og
menntunarfræða, stjórnunar eða í öðrum
greinum sem nýtast í starfi.
Forystuhæfileikar, samskiptahæfni og góðir
skipulagshæfileikar.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2013.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Magnea
Einarsdóttir, skólastjóri mein@kopavogur.is í
síma 570-4380 og 698-0828.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Save the Children á Íslandi
16. mars 2013 LAUGARDAGUR16