Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 102
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
Reykjavík Fashion Festival var formlega sett við
hátíðlega athöfn í Gyllta salnum á Hótel Borg á
fi mmtudagskvöldið. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, setti hátíðina með þeim orðum að íslensk
fatahönnun væri á mikilli uppleið. Gestir virtust
spenntir fyrir tískuhátíðinni sem fer fram með sjö
tískusýningum í Hörpu í dag. Nánari dagskrá má
fi nna á vefsíðunni Rff .is.
Fjölmennt
opnunarhóf
RFF
GOTT TEYMI Gunnar Örn Petersen og
Guðmundur Jörundsson.
FLOTT SAMAN Einar Bárðarson og
Áslaug Einarsdóttir.
BROSMILDAR Díana Bjarnadóttir
og Eva Dögg Sigurgeirsdóttir.
VEL KLÆDD Bergþóra Guðnadóttir, Jóel
Pálsson og DJ Margeir.
FLOTTAR Þyrí Huld Árnadóttir, Elísabet
Gunnarsdóttir og Rakel Jónsdóttir.SKEMMTU SÉR Kristinn Jón Ólafsson, Sölvi Tryggvason og Halli Hansen.
STILLTU SÉR UPP Framkvæmdastýra RFF, Þórey Eva Einarsdóttir, forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Jón Ólafsson og Þóra
H. Ólafsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hollywood-parið Danny DeVito
og Rhea Pearlman hefur tekið
aftur upp þráðinn þar sem frá
var horfið í sambandi þeirra. Þau
tilkynntu um skilnað sinn eftir
þrjátíu ára sambúð síðasta haust
en samkvæmt slúður miðlum
vestra hafa þau snúið aftur til
hinnar hlýju hjónasængur.
Téðir miðlar greina einnig frá
því að engin ein ástæða hafi verið
fyrir skilnaði hjónanna, né því
að þau tóku saman aftur. Hinn
68 ára DeVito hafi hreinlega ekki
getað hugsað sér að eyða ævinni
án hinnar 64 ára gömlu Pearl-
man, sem margir muna eftir úr
gamanþáttaröðinni Staupasteini.
Aft ur saman
RHEA PEARLMAN Í hlutverki sínu sem
Carla í Staupasteini.
Tónlistarmaðurinn Dave Grohl, fyrrverandi
trommari Nirvana og höfuðpaur Foo Fighters,
er gríðarlegur aðdáandi ofursmellsins Gang-
nam Style með Psy, sem tryllti heimsbyggð-
ina á síðasta ári. Þessu deildi Grohl með
áhorfendum á South By Southwest-tónlist-
arhátíðinni í Texas sem hófst á fimmtudag,
þar sem hann hélt opnunarræðuna.
„Ég segi það upphátt og af fullkom-
inni einlægni að Gangnam Style er
eitt af eftirlætislögum mínum frá
þessum áratug,“ sagði Grohl. Hann
talaði einnig um hversu erfitt væri
að finna góð nöfn á hljómsveitir og
viðurkenndi að Foo Fighters væri
sérlega asnalegt nafn.
Grohl fílar Gangnam Style
Ný heimildarmynd um söngvar-
ann sáluga úr The Doors, Jim
Morrison, er í undirbúningi.
Myndin nefnist Before the End:
Jim Morrison Comes of Age og
fjallar um hvers konar mann-
eskja Morrison var. Áherslan er
því ekki á goðsögnina Morrison.
Margir ástvinir söngvarans
ræða í fyrsta sinn opinberlega
um hann í myndinni, þar á meðal
bróðir hans Andy Morrison, her-
bergisfélagi hans úr Florida
State-háskólanum, Bryan Gates,
og einnig aðalleikarinn í kvik-
mynd sem Morrison bjó til í
skólanum, Elizabeth Buckner.
Í myndinni verða sýnd heima-
myndbönd sem hafa ekki áður
birst og fjölskylduljósmyndir.
Ný mynd um
Jim Morrison
GOÐSÖGN Ný mynd um Jim Morrison
er í undirbúningi.
Tilnefningar óskast