Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 118
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 86
„Það hefði verið svekkjandi
að komast ekki inn því ég
lagði mikið á mig og inn-
tökuferlið var taugatrekkj-
andi með vinnubúðum og
svefnlausum nóttum. Svo var
alltaf skorið niður eftir hvert
próf. Svolítið eins og Hungur-
leikarnir í kvikmyndagerð.“
ELSA MARÍA JAKOBSDÓTTIR ER
EINN AF SEX NEMENDUM SEM
HEFJA LEIKSTJÓRANÁM VIÐ DEN
DANSKE FILMSKOLE Í HAUST.
UMSÓKNARFERLIÐ VAR LANGT OG
STRANGT OG TÓK ÞAÐ HANA HEILT
ÁR AÐ UNDIRBÚA UMSÓKNINA.
„Amma hélt að þetta væri eitthvað fyrir mig og fékk
vinkonu sína til að kenna mér tökin. Ég hef síðan
notað netið og bækur til að auka við þekkinguna
mína. Mér fannst orkering strax mjög skemmtileg
iðja þó að það hafi tekið mig hálft ár að ná góðum
tökum á þessu. Amma hafði því rétt fyrir sér,“ segir
Bergdís Inga Brynjarsdóttir, sem hannar skart undir
heitinu Dís by Bergdís. Aðferðin sem Bergdís notar
við skartgripagerðina er á mörkum þess að vera
orkering og hnútar. Hún hefur þróað aðferðina sjálf
síðustu þrjú ár. „Það er ekkert nýtt að búa til skart
með orkeringu og þess vegna skipti mig máli að gera
þetta að mínu. Ég er gamall skáti og kannski þess
vegna fór ég að leika mér með kaðla og hnúta og
blanda því saman við orkeringu,“ útskýrir hún.
Bergdís lauk sveinsprófi í kjólasaumi frá Iðnskól-
anum árið 2007 og nemur nú fatahönnun við Uni-
versität der Künste í Berlín. Hún segir Berlín hafa
orðið fyrir valinu því hún vildi upplifa eitthvað nýtt
og spennandi. „Ég ólst upp í Noregi og vildi því ekki
læra á Norðurlöndunum. Ég vildi eitthvað nýtt.“
Hönnunarnámið fer allt fram á þýsku og viðurkenn-
ir Bergdís að það hafi gengið brösuglega til að byrja
með. „Ég hef fengið að gera sum verkefnin á ensku ef
ég bið sérstaklega um það. Annars er ótrúlegt hvað
Þjóðverjar eru þolinmóðir gagnvart útlendingum,
þeir eru alltaf tilbúnir til að hlusta á mann og það er
mikill kostur.“
Hún ætlar að dvelja áfram úti í Berlín að námi
loknu og þróa skartgripalínuna enn frekar. „Ég ætla
að halda áfram að þróa línuna og jafnvel bæta við
töskum. Þessa stundina hef ég mestan áhuga á fylgi-
hlutum,“ segir hún að lokum. - sm
Nýtir sér skátakunnáttuna
Bergdís Inga býr til skart með því að blanda saman orkeringu og skátahnútum.
SKÁTAKUNNÁTTAN NÝTT Bergdís Inga
Brynjarsdóttir, fatahönnunarnemi í Berlín,
notar orkeringu og hnúta til að búa til falleg
hálsmen og eyrnalokka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er skemmtilegasta verkefni
sem ég hef unnið á ferlinum,“ segir
Jörundur R. Arnarson, sem hafði
yfirumsjón með tæknibrellunum í
kvikmyndinni Ófeigur gengur aftur
sem verður frumsýnd 27. mars.
Brellurnar skipa stóran sess í
þessari gamansömu draugamynd
og eru einar þær umfangmestu í
íslenskri kvikmyndagerð til þessa.
„Þetta eru rúmlega tvö hundruð
skot, sem er töluvert mikið. Djúpið
á hugsanlega enn þá metið en það
munar ekki miklu á þessum tveim-
ur myndum,“ segir Jörundur, sem
hefur unnið við Hollywood-mynd-
ir á borð við Harry Potter, Tinker
Tailor Soldier Spy, Clash of the Tit-
ans og Contraband. Í síðastnefndu
myndinni voru brelluskotin um
fjögur hundruð. Hann hefur einn-
ig unnið við hinar íslensku Djúpið,
Rokland og XL. „Þetta er búinn að
vera ansi stór pakki á þremur mán-
uðum. Við byrjuðum í desember og
þetta er búin að vera heilmikil törn,“
segir hann um vinnuna við myndina
Ófeigur gengur aftur en Jónmundur
Gíslason, samstarfsmaður hans hjá
Reykjavík IO, vann brellurnar með
honum.
Eitt af því sem er óvenjulegt
við gerð myndarinnar er að Jör-
undur var sjálfur á tökustað allan
tímann og gátu leikstjórinn Ágúst
Guðmundsson og tökumaðurinn
Bergsteinn Björgúlfsson, Besti, því
nýtt sér sérþekkingu hans. Ágúst
hafði reyndar haft hann með í ráðum
í langan tíma, eða frá því að einungis
handritið var tilbúið. „Ég byrjaði að
pæla í hvernig ætti að útfæra draug-
inn í tökunum. Ég lagði til ákveð-
ið plan og það var farið eftir því
og árangurinn er svolítið eftir því.
Það náðist mjög flott mynd á frekar
ótrúlegum tíma,“ segir hann en tök-
urnar stóðu yfir í rúma tuttugu daga.
Aðspurður segir Jörundur að
brellurnar hafi ekki verið mjög
dýrar. Þar spilaði inn í að ekki
þurfti að notast við svokallað „green
screen“ og sparaði það tíu tökudaga.
Hann bætir við að venjulega séu
brellur í íslenskum myndum ósýni-
legar, eins og að taka burtu víra eða
bæta við sjó þar sem vantaði við gerð
Djúpsins. „En hérna erum við að tala
um að búa til smá fantasíu. Þetta er
stærsta og mesta tilraunin til þess í
íslenskri kvikmyndagerð hingað til
og það er lygilegt hversu ódýrt við
sluppum.“ freyr@frettabladid.is
Rúmlega tvö hundruð
brelluskot í Ófeigi
Jörundur R. Arnarson hafði yfi rumsjón með brellunum í Ófeigur gengur aft ur.
Aðspurður segir Jörundur að brellurnar við gerð draugsins, sem Laddi leik-
ur, jafnist á við það sem gengur og gerist erlendis. „Ágúst vildi fá nokkuð
klassískan, gegnsæjan draug sem við þekkjum úr gamaldags myndum.
Ég hefði ekki gert þetta öðruvísi ef þetta hefði verið erlend framleiðsla,“
segir hann. Draugurinn átti því ekki að vera í ætt við hryllingsmyndir
nútímans þar sem þeir eiga að hræða líftóruna úr fólki. „Við vorum að
reyna að gera fyndna fjölskyldumynd og þetta átti að vera draugur sem
maður hefur einhverja samúð með.“
Ágúst vildi klassískan, gegnsæjan draug
ÁGÚST OG LADDI Leikstjórinn Ágúst Guðmundsson ásamt „draugnum“ Ladda við
tökur á myndinni Ófeigur gengur aftur.
Gæti fengið Bodil-verðlaun
Edduverðlaunaafhending þeirra Dana
fer fram í kvöld, laugardagskvöld. Veitt
eru verðlaun fyrir kvikmyndir og kvik-
myndagerð, en verðlaunin þar eiga sér
heldur lengri sögu en hér og hafa verið
veitt síðan vorið 1948. Íslendingar
eiga fulltrúa í flokki heimildarmynda,
tónlistarmanninn Jóhann Jóhanns-
son, sem margir þekkja úr sveitum á
borð við HAM, Apparat Organ
Kvartett og Unun. Jóhann
samdi nefnilega tónlist-
ina í heimildarmyndinni
Blökkudrengurinn hvíti
(Sort Hvid Dreng),
sem fjallar um baráttu
albínóadrengs í Tansaníu
og þykir sigurstrangleg í
sínum flokki. - óká
Sigur Rós hjá Fallon
Sigur Rós kemur fram í kvöldþætti
Jimmys Fallon á sjónvarpsstöðinni
NBC síðar í mánuðinum. Þátturinn
verður tekinn upp 22. mars og verður
þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin
spilar í þættinum. Jónsi og félagar
eru á leiðinni í tónleikaferð um
Norður-Ameríku. Fyrstu tónleik-
arnir verða í Patriot Center í
Washington tveimur dögum
eftir spilamennskuna hjá
Fallon, eða 24. mars. Eftir að
tónleikaferðinni um Norður-
Ameríku lýkur tekur við
ferðalag um Asíu og
að því loknu spilar
sveitin á hinum
ýmsu tónlistar-
hátíðum í sumar. - fb
Kynnir í tískupartíi
Það var gleði og glaumur í opnunar-
hófi Reykjavík Fashion Festival þar
sem prúðbúnir gestir mætti í Gyllta
salinn á Hótel Borg. Það var því við-
eigandi að fjölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason var kynnir kvöldsins og
fórst honum það vel úr hendi. Sölvi
hefur ekki farið leynt
með áhuga sinn á
hönnun og tísku en
hann opnaði einmitt
skóskáp sinn hér
í Fréttablaðinu á
síðasta ári en
Sölvi er stoltur
eigandi meira
en fimmtíu
para af skóm.
- áp
Þetta
er skemmti-
legasta
verkefni sem
ég hef unnið
á ferlinum.
Jörundur R. Arnar-
son tæknibrellunum
www.me
rkismen
n.is