Fréttablaðið - 02.05.2013, Page 2

Fréttablaðið - 02.05.2013, Page 2
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Þetta er eins og maður fær veturinn verstan, ég verð að viður- kenna það. Jóhannes H. Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • fiskikongurinn.is Opið laugardag 10–15 Stærð 9-12 Millistærð Humarhalar . . . . . . . . . . . . . . . . 6.900 kr.kg Smáir Humarhalar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.900 kr.kg Humarklær . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 990 kr.kg Humarsúpa 1. líter . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.490 kr.kg Fiskisúpa 1.líter . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.490 kr.kg Stærð 24-30 Stærð 15-18 Guðni, er þetta hálfgert kvalræði hjá ykkur? „Nei, þetta bjargast alltaf í okkar sveit.“ Guðni Örn Hauksson er formaður björgunar- sveitarinnar Hafliða á Þórshöfn. Sveitin lagði nótt við dag og bjargaði tveimur af sex háhyrningum sem syntu upp í fjöru við Heiðarhöfn á Langanesi. VIÐSKIPTI Engilbert bauð í golfvöll Sveitarstjórn Grímsness- og Grafnings- hrepps hafnaði kauptilboði athafna- mannsins Engilberts Runólfssonar fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags í golfvöllinn að Minni-Borg. LANDBÚNAÐUR Fulltrúar Bænda- samtakanna (BÍ) funduðu með embættismönnum í atvinnuvegar- áðuneytinu á mánudag til að ræða horfur á Norður- og Austurlandi vegna yfirvofandi hættu á kali í túnum og heyskorti. Gerð verður allsherjar könnun á stöðu bænda eftir veturinn. Bóndi í Fljótum segir veturinn standast samanburð við það versta sem menn þekki til. Sindri Sigurgeirsson, formað- ur BÍ, segir að viðvarandi kulda- tíð hafi orðið til þess að menn settust niður. „Það er hins vegar ekki okkar trú að um yfirvofandi neyðar ástand sé að ræða. En við viljum vera tilbúin. Niðurstaðan er að hafa samband við búnaðar- samböndin landið um kring því við viljum vita í hvaða sveitum mesti snjórinn er, hvar mesta kalhættan er og hvernig heyforða bænda er háttað. Einnig viljum við vita hvort til eru fræ ef mikið þarf að rækta upp. Ef vorar illa, sem ekki virðist útilokað, viljum við einfaldlega vita þetta í tíma.“ Þeir sem funduðu voru Bænda- samtökin, atvinnuvega ráðuneytið, Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins og Bjargráðasjóður, sem bætir bændum fjárhagslegan skaða vegna kals eins og segir í verklags- reglum sjóðsins. Jóhannes H. Ríkharðsson, bóndi á Brúnastöðum í Fljótum, segir stöðuna langt frá því góða. Allt sé á kafi í snjó og sem í janúar yfir að líta. „Þetta er eins og maður fær veturinn verstan, ég verð að viður- kenna það. Skaflarnir hérna heima við hús eru um sex metrar á dýpt og kominn maí.“ Jóhannes er með 800 fjár en búnaðar hættir nútímans gera ekki ráð fyrir öðru en að beita vélum allan veturinn. Það er hins vegar ekki hlaupið að slíku þegar allt er á kafi vikur og mánuði á enda, segir Jóhannes. „Ég er orðinn tæpur á fóðri enda uppskerubrestur í fyrra- sumar vegna þurrka. Maður hefði kannski sloppið ef fé hefði ekki verið komið í hús í byrjun nóvem- ber á fulla gjöf.“ Það er huggun harmi gegn, segir Jóhannes, að hann óttast ekki kal í túnum hjá sér. Það segir hann hins vegar ekki eiga við um alla bændur í sveitinni. Sauðburður er hafinn á Brúna- stöðum og vandamál með hýsingu er yfirvofandi þar sem og á mörg- um bæjum, enda erfitt að hleypa fé úr húsi vegna snjóþyngsla. „Þetta er svona að síga af stað, þrjátíu eða fjörutíu eru bornar. En við brugðum á það ráð að fá okkur grænlenska vinnumenn – það þurfti vana menn fyrst svona er komið,“ segir Jóhannes hlæjandi og bætir við að ekkert sé annað eftir en að gera grín að öllu saman. svavar@frettabladid.is Bændur taka birgða- stöðu eftir kuldatíð Bændasamtökin kanna á landsvísu hver staða bænda er eftir veturinn. Heyforði fer þverrandi og hætta á kali í túnum. Bóndi í Fljótum segir veturinn á við það versta sem hafi sést. Allt er á svarta kafi í snjó en sauðburður er þegar hafinn. REYKJAVÍK Nóg er að gera hjá starfsmönnum borgarinnar sem sjá um að tína upp rusl þessa dagana, enda hefur mikið rusl safnast upp í vetur og eftir vindasama daga undanfarið. „Það er alltaf nóg að gera en þó aðeins meira á vorin og á sumrin,“ segir Grímur Þ. Jónasson, starfsmaður á Hverfamiðstöð Reykjavíkur- borgar í Laugardal. Grímur hefur starfað hjá Reykjavíkurborg síðan árið 1979, eða í 34 ár, og kann því vel. Hann segir starfið vera þægilega útivinnu en það sé þó alltaf betra á sumrin þegar sólin er á lofti. Grímur hefur farið víða undanfarna daga. Þegar Fréttablaðið hitti á hann var hann að tína rusl við Hverfisgötu, en hann hefur hreinsað svæð- in við Reykjavíkurtjörn og Klambratún undanfarna daga, enda hafði mikið af rusli safnast upp á svæðinu. - hó Hreinsunarstarf í Reykjavík stendur nú yfir sem endranær: Alltaf nóg af rusli í borginni HREINSAR TIL Grímur Þ. Jónasson hefur unnið hjá Reykjavíkurborg frá árinu 1979. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HAPPDRÆTTI Vann 54 milljónir í lottó Einn Íslendingur og einn Dani skiptu á milli sín fyrsta vinningi í Víkinga- lottóinu í gærkvöldi. Hvor um sig hlýtur rúmar 54 milljónir króna í vinning. Á SVARTA KAFI Handmokað var ofan af sauðburðarskýlinu á Brúnastöðum sem var að falla saman undan snjófarginu. MYND/JÓHANNES RÍKHARÐSSON AKUREYRI Sakaskrá ríkisins hefur synjað beiðni Akureyrarbæjar um að senda sérstaklega upplýs- ingar um auðgunarbrot hjá þeim sem sækja um starf á öldrunar- heimilum í bænum. Félagsmálaráð samþykkti um miðjan mars að fá upplýsingarn- ar til viðbótar venju bundinni beiðni til sakaskár um saka- vottorð einstaklinganna. Inda Björk Gunnarsdóttir, for- maður félagsmálaráðs, segir ástæðu ákvörðunar ráðsins vera þá að starfsmenn öldrunar- heimila vinni þétt og náið með vistmönnum inni á stofnunum. Engin atvik varðandi þjófnað eða annað slíkt hafi þó komið upp. „Fólkið hefur aðgang að her- bergjum fólks og þetta var sett fram til að setja smá varnagla,“ segir hún. „Þetta er eitt af því sem kom upp þegar við vorum að ræða sakavottorðin, hvort það væri ekki rétt að fylgdi, eins og kynferðisbrot og fíkniefnabrot.“ Fram kemur á vef Akureyrar vikublaðs að sakaskrá hafi ekki heimild til að gefa umbeðnar upplýsingar en umsækjandi geti sjálfur sótt slíkt sakavottorð til sýslumanns. Ástæðan sé sú að ferlið sé bæði kostnaðarsamt og tímafrekt, sem gæti raskað ráðningar ferlinu og tímaramma þess. Inda segir að ekki sé enn búið að ákveða hvort umsækjendur eigi að sækja um upplýsingarn- ar sjálfir til að vísa fram við umsókn. - sv Akureyrarbær vill vita hvort starfsumsækjendur á elliheimilum hafi framið auðgunarbrot: Fá ekki upplýsingar um þjófnaði á skrá SYNJAÐ UM UPPLÝSINGAR Akureyrar- bær hefur ekki ákveðið hvort umsækj- endur um starf á öldrunarheimilum þurfi að framvísa upplýsingum um hvort þeir hafi framið auðgunarbrot. MENNTAMÁL Alls munu 24 íslensk- ir stúdentar þreyta inntöku- próf í læknisfræði fyrir háskóla í Slóvakíu. Greint var frá því í Fréttablaðinu í fyrra að íslenskir nemendur hefðu þennan möguleika til að geta stund- að nám í öðrum Evrópulöndum í greinum eins og læknisfræði og öðlast full réttindi. Í fyrra fóru átta í læknisfræði til Slóvakíu. - sv 24 þreyta inntökupróf: Vilja í lækna- nám í Slóvakíu RANNSÓKNIR Þekkingarfyrirtækið Matís hefur hafið DNA-greiningar á geninu DMRT3; geninu sem stjórnar skeiðgangi íslenska hestsins. Rannsakend- urnir, Lisa Andersson hjá Capilet Genetics AB og fleiri sem uppgötvuðu genið, telja víst að fundurinn geti bætt kynbótastarf hestsins. Í einfaldaðri mynd geta hestar haft eina af þremur arfgerðum. Ein arfgerðin er þegar hestar eru arf- hreinir fyrir skeiðgeninu (AA) og búa yfir skeiði. Séu tvö arfhrein hross pöruð saman gefa þau af sér arf- hreint alhliðahross (AA). Önnur arfgerðin gefur af sér arfblendna hesta (CA) og eru slíkir hestar yfirleitt fjórgangshross en séu þeir paraðir við arfhreinan eða arfblendinn einstak- ling geta þeir gefið af sér alhliða afkvæmi í 50% eða 25% tilfella. Þriðja arfgerðin er arfhrein án skeiðgensins (CC) og hestar með þessa arfgerð eru í flestum tilfellum gang- treg hross. Með því að DNA-greina hross fyrir þessu geni geta ræktendur valið undaneldisgripina með tilliti til þess hvort þeir eru alhliða hestar (arfhreinir), klárhestar með tölti (arfblendnir) eða hreinir klárhestar. - shá Matís DNA greinir gen sem getur bætt kynbótastarf íslenska hestsins: Skeiðgenið greint á Íslandi ÍSLENSKT Genarannsóknir gætu breytt kynbótastarfi á næstu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.