Fréttablaðið - 02.05.2013, Blaðsíða 20
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR 1. MAÍ | 20
Ólíkar kröfur fólksins á 1. maí
Sólin skein á göngumenn í kröfu-
göngum í gær. Fjölmenni gekk
fylktu liði niður Laugaveginn í
göngu verkalýðsfélaganna að úti-
fundi sem haldinn var á Ingólfs-
torgi. Ekki voru mikið færri í
Grænu göngunni sem fylgdi í
kjölfarið, en göngumenn í henni
beygðu inn Pósthússtrætið og inn
á Austurvöll þar sem haldinn var
útifundur.
Sú tvískipting er kannski
ástæðan fyrir því að þótt gang-
an virtist vera óvenju fjölmenn í
ár var ekki hið sama að segja um
fundinn á Ingólfstorgi. Saman-
lagður fjöldi fundanna tveggja
bendir þó til þess að fjöldi Íslend-
inga sé enn reiðubúinn að mæta á
útifundi kröfum sínum til stuðn-
ings.
Yfirskrift dagsins, af hálfu
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna,
var „Kaupmáttur, atvinna, vel-
ferð“. Ræðumenn á fundinum
voru Ólafía Björk Rafnsdóttir,
for maður VR, og Snorri Magnús-
son, formaður Landssambands
lögreglumanna.
Snorri varaði við því að kom-
andi kjaraviðræður gætu orðið
erfiðar, en samningar verða laus-
ir fyrir áramót.
„Komandi kjaraviðræður þurfa
ekki að verða erfiðar en það er því
miður allt útlit fyrir það á þess-
ari stundu að þær gætu orðið það
og þegar hafa heyrst af því fréttir
að einstaka stéttir búi sig jafnvel
undir verkfallsátök.“
Græna gangan var haldin í
fyrsta skipti, en með henni átti að
hvetja nýkjörið Alþingi til góðra
verka í umhverfismálum og
minna um leið á að þingið hefði
ekki umboð til að framfylgja
virkjanastefnu á kostnað náttúr-
unnar. kolbeinn@frettabladid.is
Vopnin brýnd
fyrir kjara-
samningana
Fjölmenni var í göngu verkalýðsfélaganna 1. maí.
Þetta er 90. árið sem staðið er fyrir göngu á 1. maí.
Græn ganga náttúruverndarsinna var síst fámennari.
FJÖLBREYTTAR
KRÖFUR Fjöl-
breytileg kröfu-
spjöld voru á lofti
í fjölmennri kröfu-
göngu verkalýðs-
félaganna í gær.
Veðrið lék enda
við göngumenn,
þótt snjókorn féllu
úr lofti þegar leið
á útifundina.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Feðgarnir Grétar Halldórsson og Arnaldur Grétarsson voru á útifundi
verkalýðsfélaganna á Ingólfstorgi með dóttur Arnaldar, Urði. Grétar
segir að þetta sé hefð í fjölskyldunni sem hafi gert þetta í mörg ár og
Arnaldur segir þau vera þar til að sýna samstöðu með kjarabaráttu
verkalýðsins.
„Það er ævarandi verkefni að standa vörð um innviði samfélagsins,
heilbrigðiskerfið og menntakerfið, svo eitthvað sé nefnt.“ Grétar tekur
undir það og segir daginn skipta mjög miklu máli. Hann telur ekki að
hann sé að missa gildi sitt.
„Ég held ekki og alls ekki miðað við fólksfjöldann hér í dag og
prýðilega göngu. Ég held að það blundi alltaf með fólki að það þarf að
sýna samstöðu. Til dæmis er ASÍ eitt fjölmennasta verkalýðssamband
í heiminum, það er að segja með 80 prósenta þátttöku í verkalýðs-
félögum á Íslandi.“
➜ Þetta er ævarandi verkefni
Guðmann Elísson fylgdist með fundi Grænu göngunnar á
Austurvelli og minnti á Gálgahraun með kröfuskilti. Hann er
mjög ósáttur við fyrirhugaðar vegaframkvæmdir þar og segir
það skelfilegt fyrir sig, og aðra, verði vegurinn lagður eins og
skipulag gerir ráð fyrir.
„Ég byrjaði á því þegar ég var mjög ungur að elta kindurnar
hans afa míns þarna í hrauninu. Núna síðasta árið hef ég
labbað með hund þarna í hrauninu. Það er mikilvægt að hafa
svona stað þar sem maður getur aftengst, því er svo mikilvægt
að hafa svona svæði stutt frá bænum til þess.“
Hann segist ekki mæta í kröfugönguna á hverju ári, en
hafa gert það undanfarin ár og var alls ekki ósáttur við að
göngurnar hefðu verið tvær þetta árið. Hann hefði ábyggilega
gengið með verkalýðsfélögunum í ár hefði Græna gangan ekki
verið.
„Það tengist lífskjörunum að það sé ekki vaðið yfir náttúru
Íslands. Ganga mín hérna núna er til að standa með náttúr-
unni og leggja áherslu á það að hún njóti vafans. Mér finnst
það hið besta mál að tengja þessar göngur saman. Og svo er
þessi staða komin upp, mér líst ekki á að þessir flokkar hafi
fengið flest atkvæði og mér finnst ótrúlegt að fólk hafi kosið
þessa stóriðjuhvetjandi pólitíkusa yfir sig.“
➜ Náttúran verður að njóta vafans
Ingþór Eyþórsson og Arna Björg Jóhannsdóttir gengu í
kröfugöngu verkalýðsfélaganna ásamt dóttur sinni Lovísu
Björgu. Þau fara í gönguna á hverju ári og finnst 1. maí skipta
verulega miklu máli.
„Eins og ég sagði við tíu ára stelpu í gærkvöldi [fyrrakvöld],
þá gerði þetta gagn fyrir 60-70 árum. Í dag komum við til
að sýna samstöðu, af því að kerfið virkar ekki. Við reynum
samt okkar besta og sýnum það með því að mæta hér,“ segir
Ingþór.
Arna Björg segir daginn skipta gríðarlega miklu máli fyrir
alla landsmenn og mikilvægt sé að taka unga fólkið með. „Við
erum að sýna gott fordæmi fyrir komandi kynslóð og tökum
Lovísu með. Við verðum að sinna ungviðinu.“
Þau segja daginn vera dag samstöðunnar. „Við erum að
minnast þess sem við gátum gert í gamla daga, en getum ekki
gert lengur.“
➜ Samstaða af því að kerfið virkar ekki
Ragnheiður Eiríksdóttir, Elvar Geir Sævarsson og Siv Karlsdóttir voru
á leið frá Austurvelli á Ingólfstorg, þar sem þau vildu fylgjast með því
sem fram fór á báðum fundum. Ragnheiður var ósátt við að fundirnir
væru tveir á sama tíma. „Við ætlum eiginlega að reyna að taka stöðuna
á báðum fundunum. Mér finnst mjög leiðinlegt að það skuli vera svona
klofningur, þar sem það er ekki alveg nógu mikið af mjög róttækum Ís-
lendingum. Það er erfitt að það skuli ekki bara vera hægt að hafa þetta á
einu sviði, en við þurfum eiginlega að taka stöðuna á báðum.“
Elvar segir það hryggja sig að eitt af slagorðum dagsins skuli vera
aukinn kaupmáttur. Atvinna sé ekki mannréttindi heldur lúxus. „Mér
finnst skilin á milli verkalýðshreyfingarinnar og SA vera að mást út.“
Siv var hins vegar hæstánægð með að komast í kröfugöngu, en hún
býr í Keflavík þar sem ekki er hefð fyrir slíku. „Ég kem því í bæinn og
geng, sem er stórkostlegt.“
➜ Leiðinlegt að hafa tvo fundi
Fréttablaðið rakst á stöllurnar Tiffany og Elizu sem eru á ferð
hér á landi. Þær segja að 1. maí skipti greinilega meira máli á
Íslandi en í heimalandi þeirra, Frakklandi.
„Við þekkjum vel um hvað þessi dagur snýst því hann er
einnig haldinn hátíðlegur heima í Frakklandi. Þar fá allir frí,
en það eru þó ekki tónleikar og jafn mikil dagskrá þar og hér.
Heima er þetta í raun bara frídagur og skiptir ekki eins miklu
máli og hann gerir greinilega hér,“ segir Eliza.
Tiffany segir þær styðja kröfu verkafólks. „Já, við gerum
það. Við erum á ferðalagi og vildum nota tækifærið til að
fylgjast með dagskránni og styðja um leið kröfu verkafólks.“
➜ Mikilvægari hér en í Frakklandi