Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 26
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Auglýsing
Um tillögu að breyttu deiliskipulagi
Austurbyggðar á Selfossi
Samkvæmt 1.mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. auglýsir
bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að breyttu
deiliskipulagi Austurbyggðar á Selfossi í Sveitarfélaginu
Árborg. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast að austan
af nýjum vegi er gengur suður frá Langholti, nýjum vegi
til suðurs, Suðurhólum, nýju hverfi Gráhellu til vesturs og
grænu svæði sunnan Baugstjarnar til norðurs. Íbúðum er
fjölgað um 14 íbúðir. Íbúðum í raðhúsum er fjölgað um 24 á
móti kemur fækkun einbýlishúsa um 10 heildar fjölgun íbúða
er því 14 íbúðir.
Teikningar ásamt greinagerð , vegna tillögunnar mun liggja
frammi á skrifstofu skipulags og- byggingarfulltrúa að
Austurvegi 67 Selfossi frá og með 2. maí 2013 til og með
10. júní 2013.
Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila athugasemdum rennur út 10. júní 2013 og
skal þeim skilað skriflega til skipulags og byggingarfulltrúa á
skrifstofu hans að Austurvegi 67 , 800 Selfossi.
Á sama tíma er teikning og greinagerð til kynningar á
heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er
að skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags og-
byggingarfulltrúa í netfangið skipulag@arborg.is.
Selfossi, 29. apríl 2013
Bárður Guðmundsson
skipulags- og byggingafulltrúi
Að beiðni innanríkis-
ráðherra hefur Þjóðskrá
Íslands þróað nýja raf-
ræna auðkenningarleið
inn á einstaklings miðaða
vefi stofnana, sveitar-
félaga, félagasamtaka
og fyrirtækja. Óhætt
er að segja að um sé að
ræða tímamót í rafrænni
stjórnsýslu en auðkenn-
ingarleiðina hefur Þjóð-
skrá nefnt Íslykil. Íslykill
samanstendur af kenni-
tölu og lykilorði, en ef
þörf er á auknu öryggi er
hægt að styrkja Íslykil-
inn með talnarunu sem send er
sem SMS í farsíma.
Jafnframt hefur Þjóðskrá
Íslands opnað nýtt heildstætt
auðkenningarkerfi þar sem val
er um Íslykil, styrktan Íslykil
og rafræn skilríki á snjallkorti.
Með auðkenningarkerfi Ísland.
is er lagður grunnurinn að því
að Íslendingar geti sótt allar
opinberar upplýsingar í gegnum
netið, jafnvel um sín viðkvæm-
ustu einkamál, notið hvers slags
opinberrar þjónustu og kosið.
Starfshópur innanríkisráðherra
Forsaga þessa máls er sú að
26. júní á síðasta ári skipaði
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra stýrihóp um rafræna
stjórnsýslu og rafrænt lýðræði í
samvinnu við Samband íslenskra
sveitarfélaga. Hópurinn skilaði
tveimur megintillögum í októ-
ber sl., annars vegar frumvarpi
sem orðið er að lögum og heim-
ilar rafrænar íbúakosningar og
hins vegar ofangreindum
auðkenningarleiðum.
Stýrihópurinn lagði til
að rekstur og þjónusta
rafrænna auðkenninga
yrði miðlæg á vefsvæð-
inu Ísland.is og þann-
ig skapaður rammi um
rafrænar auðkenningar,
nokkurs konar vegabréf
á vefslóðum. Til að gera
langa sögu stutta gerði
innanríkisráðherra til-
lögur stýrihópsins að
sínum, afhenti Þjóðskrá
verkefnið og lagði sitt
af mörkum til að Þjóð-
skrá fengi það fjármagn sem til
þurfti.
Fullt forræði hins opinbera
Það er mikilvægt að opinberir
aðilar hafi fullt forræði yfir
þeim auðkenningarleiðum sem
notaðar eru á opinberum vefjum
eða í samskiptum við opinbera
aðila og í raun ætti að skilgreina
auðkenninguna sem ómissandi
upplýsinga innviði. Hingað til
hefur fyrst og fremst verið boðið
upp á tvær leiðir inn á rafræna
opinbera þjónustu. Annars vegar
veflykil ríkisskattstjóra og hins
vegar rafræn skilríki. Þessar
leiðir mæta ekki þörfum fyrir
almenna opinbera stjórnsýslu á
Íslandi.
RSK-lykillinn er eingöngu í
boði fyrir 16 ára og eldri en þörf
er á auðkenningu fyrir yngri ald-
urshópa og hann skortir aðra fjöl-
breytni sem Íslykillinn býður upp
á.
Þau rafrænu skilríki sem
notuð eru í dag eru flest í eigu
fjármála stofnana og hefur notk-
un þeirra ekki náð sér á strik.
Ekki er raunhæft að reikna með
mikilli aukningu í notkun raf-
rænna skilríkja í nánustu fram-
tíð eða ekki fyrr en þau verða
notendavænni en þau eru í dag.
Rafræn skilríki í einhverri mynd
eru þó nauðsynleg fyrir stóra
fjármálagjörninga, aðgang sér-
fræðinga að sjúkraskrám o.s.frv.
Stjórnsýsla 21. aldar
Þrátt fyrir það að Íslendingar
séu fremstir þjóða hvað varðar
tölvueign og tölvufærni erum
við aftar lega í flestum mæling-
um hvað varðar rafræna stjórn-
sýslu. Það er ljóst að íbúunum er
ekki um að kenna heldur hinu
opinbera. Sú ákvörðun innan-
ríkisráðherra að fela Þjóðskrá
Íslands uppbyggingu opinbers
auðkenningar kerfis er mikil-
vægt skref í átt til stjórnsýslu 21.
aldar innar. Stjórnsýslu þar sem
allir íbúar, hvar sem þeir búa á
landinu, geta sótt og skilað upp-
lýsingum, sótt um þjónustu, fyllt
út eyðublöð og kosið á netinu í
gegnum öruggar auðkenningar í
eigu hins opinbera.
Vegabréf á vefslóðum
➜ Sú ákvörðun innanríkis-
ráðherra að fela Þjóðskrá
Íslands uppbyggingu opin-
bers auðkenningakerfi s,
er mikilvægt skref í átt til
stjórnsýslu 21. aldarinnar.
Almannatryggingakerfið
er ein af þeim grunn-
stoðum sem sameigin-
leg t vel ferða rkerfi
okkar Íslendinga bygg-
ir á. Tryggingastofnun
annast viðamikla þætti
almannatrygginganna
og greiðir árlega um 100
milljarða króna til ein-
staklinga af skatttekjum
ríkissjóðs, en það sam-
svarar um það bil fimmt-
ungi af fjárlögum ríkis-
ins. Fyrst og fremst er
hér um að ræða lífeyris-
greiðslur til ellilífeyrisþega og
öryrkja, meðlagsgreiðslur og
greiðslur til vistmanna á öldrun-
arstofnunum. Í hverjum mánuði
fá um 55 þúsund einstaklingar
greiðslur frá Tryggingastofnun,
flestir fá greiðslur mánaðarlega
og aðrir sjaldnar. Yfir árið fá
um 70 þúsund manns einhverjar
greiðslur frá Tryggingastofnun,
en það jafngildir ríflega fimmt-
ungi allrar þjóðarinnar.
Þegar um svo háar fjár hæðir
er að ræða er mikilvægt að fara
vel með og hafa hugfast að hér
er um að ræða skattfé okkar
Íslendinga. Tryggingastofn-
un annast greiðslur og þjón-
ustu í samræmi við löggjöf sem
Alþingi setur og hefur að meg-
inmarkmiði að greiða réttar
bætur til réttra aðila á réttum
tíma. Almannatrygginga kerfið
er flókið og býður upp á hættur á
mistökum og svikum. Það er því
mikil vægt að hafa öflugt eftirlit
með bótagreiðslum Trygginga-
stofnunar, eins og Ríkis-
endurskoðun hefur nýlega árétt-
að. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að Tryggingastofnun
hafi á undanförnum árum byggt
upp eftirlit með bótagreiðslum,
en mikil vægt sé að gera enn
betur. Til þess þurfi stofnunin
auknar eftirlits heimildir í lögum
og aukið rekstrar fé. Vísar Ríkis-
endurskoðun m.a. til hinna nor-
rænu ríkjanna, sem hafa eflt
sitt eftirlit umtalsvert á síðustu
árum. Í skýrslunni er einnig
tekið dæmi af sænsku trygginga-
stofnuninni (Försäkrings kassan)
sem fær um 4% af umfangi
útgreiðslna til reksturs-
i n s , e n r e k s t u r
Trygginga stofnunar
nemur innan við 1% af
umfangi útgreiðslna.
Tryggingastofnun
hefur verið brautryðj-
andi íslenskra stofnana í
eftir liti með opinberum
greiðslum og stefnir að
því að gera enn betur.
Mistök og svik
Eftirlitið felst einkum í
því að koma í veg fyrir
mistök og svik. Mistök
geta átt sér stað með ýmsum
hætti t.d. vegna skráningar-
mistaka hjá starfsmönnum eða
rangra upplýsinga frá lífeyris-
þegum. Bótasvik eru mun alvar-
legri og fela í sér ásetning um
lögbrot. Slík svik tengjast oft-
ast rangri upplýsingagjöf um
búsetu, sambúðarform og tekjur.
Reynslan hefur sýnt að fólk er þá
m.a. að svíkja út heimilis uppbót,
mæðra-/feðralaun, meðlag og líf-
eyri. Á síðasta ári voru samtals
skráð 616 mál hjá eftirlitinu sem
fengu áframhaldandi meðferð
eftir skoðun. Flest komu í kjölfar
eftirlitsvinnu innan stofnunar-
innar, en nokkur eftir utanað-
komandi ábendingar.
Í kjölfar efnahagshrunsins var
eins og margir hefðu velt meira
fyrir sér siðferðisspurningum
og meðal annars að ekki væri
rétt að sumir kæmust upp með
að svíkja út greiðslur sem fjár-
magnaðar eru af sameiginlegu
skattfé okkar. Almenningur var
því fyrst á eftir duglegur við að
senda stofnuninni ábendingar um
hugsanleg bótasvik og hefur það
borið góðan árangur. Talsvert
hefur dregið úr þessum ábend-
ingum upp á síðkastið, hvort
sem það stafar af áhugaleysi eða
fækkun bótasvika. Á heimasíðu
Tryggingastofnunar, www.tr.is,
er að finna ábendingahnapp þar
sem hægt er að koma með ábend-
ingar um hugsanleg bótasvik.
Talið er að aðeins brot af
bóta svikum uppgötvist árlega,
en á síðasta ári voru stöðv-
aðar greiðslur sem nema um
100 milljónum króna á árs-
grundvelli. Miðað við erlendar
rannsóknir gætu svikin verið
miklu umfangsmeiri eða á bilinu
2–3 milljarðar króna. Það er því
mikilvægt að styrkja eftirlitsþátt
Tryggingastofnunar og tryggja
að skattfé okkar verði vel nýtt
og fari aðeins til þeirra sem eiga
rétt á því.
Samstarf við marga
Eftirlitseining Trygginga-
stofnunar á samstarf við marga
aðila, bæði innanlands og erlend-
is. Hér innanlands má nefna
lögregluna, Þjóðskrá Íslands,
sveitar félög og Ríkisskattstjóra.
Erlendis er fyrst og fremst um
að ræða systurstofnanir Trygg-
ingastofnunar í nágrannalönd-
um okkar. Gott samstarf við
erlendar stofnanir er mikilvægt
því flutningur lífeyrisþega á
milli landa færist í vöxt og hafa
meðal annars komið upp tilvik
þar sem einstaklingar reyna að
fá sambærilegar greiðsluteg-
undir frá tveimur löndum eða
leyna erlendum tekjum. Til eru
dæmi um einstaklinga á fullum
örorkulífeyris greiðslum, sem
virðast á sama tíma vera í fullri
atvinnu erlendis eða í atvinnu-
rekstri. Þeir skrá lögheimili sitt
á Íslandi til að halda örorku-
lífeyri og viðhalda búseturétti
vegna ellilífeyris og fleiri rétt-
inda, en telja ekki fram erlendu
tekjurnar á skattframtali. Hér
er því um að ræða a.m.k. tvöfalt
brot sem felst í að skrá rangt
lögheimili og leyna erlendum
tekjum.
Til að geta haldið uppi rétt-
látu og hagkvæmu lífeyriskerfi,
öryggisneti sem grípur okkur
ef við lendum í áföllum, þurfum
við að standa saman um að koma
í veg fyrir bótasvik – allir sem
einn.
Eftirlit með bótagreiðslum
BÓTAGREIÐSLUR
Runólfur Birgir
Leifsson
framkvæmda-
stjóri Fjármála- og
rekstrarsviðs Trygg-
ingastofnunar
➜ Talið er að aðeins brot
af bótasvikum uppgötvist
árlega, en á síðasta ári voru
stöðvaðar greiðslur sem
nema um 100 milljónum
króna á ársgrundvelli.
Skuldarar leiti álits
óháðs þriðja aðila STJÓRNSÝSLA
Þorleifur
Gunnarsson
Höfundur er for-
maður stýrihóps
innanríkisráðherra
um rafræna stjórn-
sýslu og lýðræði.
Þ e g a r f j ö l -
skyldur lands-
ins ganga að
samningum við
Umboðsmann
skuldara eiga
þær alls ekki að
samþykkja það
sem fram kemur
hjá honum án
á l i t s þr iðj a
aðila. Mælist
ég til þess að
fólk fari á fund
með óháðum sérfræðingi, sem
fer yfir þeirra stöðu. Þó svo að
Umboðsmaður skuldara eigi að
vera réttargæslumaður er alltaf
betra að fá álit þriðja aðila á mál-
inu þótt það kosti smá pening, því
þegar upp er staðið borgar sig að
fá rétta vissu um sína stöðu með
mati óháðs sérfræðings.
Mistök geta átt sér stað
Þegar Umboðsmaður fær gögn
frá bönkum og öðrum kröfu-
höfum geta allaf mistök átt sér
stað í skráningu eða ósamþykkt-
ir reikningar komið fram. Tek ég
tvö dæmi sem geta komið upp.
Dæmi 1: Aðili sem var með
bílasamning við fjármögnunar-
fyrirtæki.
Sá aðili lenti í vanskilum í
lok árs 2008 og var með nokkra
gjalddaga í vanskilum. Hann
reynir að semja um greiðslur
á láninu og fær frest. Á meðan
hann er með frest koma menn frá
vörslusviptingu og taka bílinn án
þess að vera með neina pappíra í
höndunum. Bíllinn er tekinn upp
í skuldina þegar hér er komið
við sögu. Árið 2013 kemur bíla-
lánið fram aftur og í svipaðri
krónutölu og það var áður fyrr,
en lánið var áður fyrr gengis-
tryggt. Hérna átti skuldarinn að
borga lánið upp, og láta taka bíl-
inn af sér.
Dæmi 2: Krafa frá verktaka
ekki rétt samkvæmt upphaflegu
verðtilboði.
Krafa frá verktaka þar sem
bar á milli kaupanda og selj-
anda um verð á jarðvegs-
vinnu sumarið 2008. Bar þar á
milli upphaflegrar samnings-
fjárhæðar og þeirrar fjár hæðar
sem innheimt var. Samið er
munnlega um verð í upphafi í
jarðvegsvinnu að fjárhæð þrjár
milljónir. Verkið er unnið og
síðan tekur verktakinn mold af
landinu án samþykkis landeig-
anda. Síðan kemur reikningur
frá verktaka upp á sex milljónir
í kjölfarið, sem er orðin að tólf
milljónum árið 2013 hjá Umboðs-
manni skuldara.
Að lokum legg ég áherslu á það
að þessi sérfræðingur sé óháð-
ur fjölskyldunni og ekki tengd-
ur henni persónulegum böndum
öðrum en á öðrum viðskipta-
legum forsendum, háð því að sér-
fræðingurinn sé ekki fjárhags-
lega háður ykkur.
FJÁRMÁL
Óskar Sigurðsson
viðskiptafræðingur
og framkvæmda-
stjóri
➜ Þó svo að Umboðs-
maður skuldara eigi að vera
réttargæslumaður er alltaf
betra að fá álit þrija aðila
á málinu þótt það kosti
smápening, því þegar upp er
staðið borgar sig að fá rétta
vissu um sína stöðu...