Fréttablaðið - 02.05.2013, Qupperneq 28
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Í öllum skóla samfélögum
þarf að leggja sérstaka
áherslu á og standa vörð
um góða líðan nem-
enda. Mikilvægt er að
skólastjórinn og skóla-
samfélagið taki af festu
á forvörnum til að koma í
veg fyrir einelti og á ein-
elti þegar það kemur upp
eða ef grunur vaknar um
það. Til að það takist verða
allir þeir aðilar sem koma
að skólastarfinu að standa
saman til að móta sem
jákvæðastan skólabrag,
starfsanda og vinnugleði
þannig að nemendum finn-
ist þeir velkomnir í skól-
ann og finni fyrir öryggi.
Starfsmenn skólans
þurfa og eiga að stuðla að
umburðarlyndi og félags-
legri samkennd og bregð-
ast á viðeigandi hátt við
öllum nemendum, hvort
sem þeir eiga í félags-,
náms- eða hegðunar-
erfiðleikum. Ég tel það
meðal mikilvægustu hlut-
verka skólastjóra að stuðla
að þessu og beita sér fyrir
skólamenningu sem hefur þessi
einkenni. Skóli fyrir alla er afar
mikilvæg undirstaða þess að
tryggja öllum nemendum jöfn
tækifæri á öllum sviðum í námi
og félagslífi. Mikilvægt er að allir
fái kennslu við hæfi og áhuga og
nemandi sé alltaf í brennidepli.
Við þurfum að kveikja neista og
áhuga nemenda fyrir námi og það
gerist ef nemandi finnur fyrir vel-
líðan og öryggi.
Fjölbreyttir kennsluhættir
Mikilvægt er að bjóða upp á fjöl-
breytta kennsluhætti sem höfða
bæði til getu og áhuga nemandans
með sérstaka áherslu á líðan hans.
Rannsóknir sýna að fjölbreyttir
kennsluhættir styrkja skólastarf-
ið og draga úr erfiðleikum tengd-
um námi. En auðvitað verður að
bregðast við erfiðleikum sem upp
koma hverju sinni. Til að þróa
fjölbreytta kennslu er mikilvægt
að vinna að jákvæðri hegðun, þar
sem ein af grundvallarréttindum
nemenda eru að hafa vinnufrið í
skólanum þannig að þeir geti náð
sem bestum tökum á náminu og
að kennslan nýtist þeim sem best
í framtíðinni. Skapa þarf svigrúm
og tækifæri til að auka teymis-
vinnu og auka samstarf starfs-
fólks með aukinni faglegri sam-
vinnu.
Skólinn er fyrir alla og allir
eiga þar að fá námstækifæri og
námsaðstæður sem hæfa þroska,
forþekkingu og áhugasviðum og
skólastjóri þarf hafa forystu um
að móta starfið í þessum anda.
Það eru tveir meginlyklar að
uppbyggingu öflugs og farsæls
skólastarfs og það eru kennararn-
ir og stjórnendurnir. Rannsóknir
og reynslan sýna að það kemur
enginn metnaðarfullu skólastarfi
til leiðar (og engri þróun í skóla-
starfi raunar) nema öflugur kenn-
arahópur með sterka sameigin-
lega sýn. Starfsmannahópur sem
tekur mið af grunngildum skól-
ans og býr yfir mikilli kennslu-
fræðilegri hæfni, sem vinnur vel
saman sem heild og lærir saman.
Skólastjórinn þarf að helga sig
því að vera faglegur leiðtogi og
gegnir lykilhlutverki í að móta þá
lærdóms menningu sem þarf til að
byggja upp öflugt og framsækið
skólastarf.
Grunnskólar landsins þurfa á
þessum umrótatímum að stíga
markvisst skref í stefnumótun og
fræðslustarfi til að ná vel til for-
eldra, standa fyrir jákvæðri rök-
ræðu um foreldraþátttöku og til
að hafa bein áhrif á viðhorf for-
eldra til menntunar og árang-
urs í skóla. Þannig mun skólinn
geta skapað farveg til að nálgast
samstöðu um námskröfur, aga
og þann ramma sem skólinn og
foreldrar geta borið sameigin-
lega ábyrgð á gagnvart námi og
félagslegri umgjörð nemenda. Það
er sameiginlegt verkefni heimila
og skóla að byggja upp heilsteypta
einstaklinga sem geta tekist á við
lífið og framtíðina.
Að byggja upp öfl ugt og framsækið skólastarf
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
HEFST 30. MAÍ
GRILLAÐU MEÐ
JÓA FEL
HEFST 30. MAÍ
GRILLAÐ MEÐ JÓA FEL
Jói Fel er mættur aftur og að þessu sinni ætlar hann að
kenna okkur hvernig á að bera sig að við útigrillið í eitt
skipti fyrir öll.
HEFST 11. MAÍ
LATIBÆR
Hinir geysivinsælu Latabæjarþættir snúa aftur!
Fylgist með ævintýrum Íþróttaálfsins, Sollu stirðu
og allra hinna.
HEFST 26. MAÍ
TOSSARNIR
Brottfall er mikið úr skólum. Í Tossunum fylgir
Lóa Pind fimm einstaklingum sem hafa hætt
í skóla, m.a. Jóni Gnarr borgarstjóra.
HEFST 15. MAÍ
HIÐ BLÓMLEGA BÚ
Meistarakokkurinn Árni Ólafur lifir af landinu uppi í
Borgarfirði, kynnir fyrir okkur íslenska matarmenningu
og hefðir með heimaræktuðu hráefni. Nýstárlegur og
skemmtilegur matreiðsluþáttur.
MIÐVIKUDAGSKVÖLD
KALLI BERNDSEN
Kalli Berndsen bregður á leik með litríkan og smekklegan
þátt sem hjálpar þér að líta betur út og skemmtir þér
vel í leiðinni.
NÝTTU ÞÉR NETFRELSI
OG MISSTU EKKI AF NEINU!
Með Netfrelsi Stöðvar 2 getur þú séð uppáhalds-
þáttinn þinn í tölvunni, snjallsímanum eða spjald-
tölvunni hvar og hvenær sem er.
Vertu með Stöð 2, 4 aukastöðvar
og Netfrelsi fyrir 265 krónur á dag
BYRJAÐU SUMARIÐ Í FRÁBÆRUM FÉLAGSSKAP Á STÖÐ 2
ÍSLENSKU ÞÆTTIRNIR
BLÓMSTRA Í MAÍ
FÖSTUDAGSKVÖLD
SPURNINGABOMBAN
Frumlegustu spurningarnar, fyndnustu keppendurnir
og fáránlegustu svörin!
MENNTUN
Dagný
Annasdóttir
talmeinafræðingur,
master í stjórnun
og forystu mennta-
stofnana.
AF NETINU
Hvanngrænt fólk
Mikilli hreinsun er að mestu lokið
hjá Vinstri grænum. Framsóknar-
mennirnir leiðinlegu eru að mestu
horfnir. Eftir situr hvanngrænt fólk í
fylgispekt við Katrínu Jakobsdóttur,
sem hefur pólitíska teflon-húð og
brosir hringinn. Eiginlega eru engir
eftir til vandræða nema gamlingjar
fjórflokksins, Ögmundur og Stein-
grímur, sem ættu að vera löngu
hættir. Eða flúnir í Framsókn með
Vaðlaheiðargöng, Húsavíkurver
og ást á kvótagreifum. Endir hins
pólitíska ferils varð einkar snaut-
legur hjá Steingrími, þegar
menn fóru að ruglast á honum
og Möllernum. Þar fyrir utan er
flokkurinn orðinn heillegur.
www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
Frábær Fanfest CCP
Og ef einhver heldur að tölvu-
leikir njóti ekki sannmælis sem
þau miklu afrek í hönnun sem
þeir í raun og veru eru, þá ætti sá
hinn sami að kynna sér umfjöllun
Museum of Modern Art í New
York. EVE Online er á meðal 14
tölvuleikja sem valdir hafa verið
á nýja sýningu Nýlistasafnsins og
deilir þar plássi með klassískum
leikjum á borð við Pac-Man, Tetris
og SimCity.
Það hefur verið einstaklega
gaman að fylgjast með þeirri hug-
myndaauðgi og þeim krafti sem
einkennir CCP. Nú eru rúmlega 7
ár frá því að fjárfestingafélag mitt,
Novator, keypti hlut í CCP. Fyrir-
tækið var þá miklu smærra en
núna, en krafturinn var hinn sami.
Ekkert bendir til annars en að CCP
muni halda áfram á sömu braut.
www.btb.is
Björgólfur Thor Björgólfsson
➜ Mikilvægt er að allir fái
kennslu við hæfi og áhuga
og nemandi sé alltaf í
brennidepli.