Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 36

Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 36
 | 4 2. maí 2013 | miðvikudagur Í fyrstu hafði Páll Harðarson, for- stjóri Nasdaq OMX Iceland (Kaup- höll Íslands), efasemdir um að rétt væri að binda í lög hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja. Núna telur hann lögin nauðsynleg til að knýja á um breytingar til batnaðar. Lögin, sem taka gildi í septem- ber komandi, kveða á um að hlut- fall hvors kyns í stjórnum fyrir- tækja þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri skuli aldrei vera undir 40 prósentum. Mörg fyrirtæki hafa þegar brugðist við með breyting- um í tengslum við aðalfundi sína. „Í Evrópu var umræða um að setja þessa kvöð um kynjahlutföll bara á skráð félög en okkur finnst nú eiginlega betra að hafa þetta al- mennt,“ segir Páll. Langsótt að kvóti sé til trafala „Ég lít á þessi lög sem tæki til að breyta hugarfari og held að þegar það hafi tekist, sem ég held að muni gerast mjög hratt, verði engin þörf á þessum lögum leng- ur. Þá verði þetta bara faglegt og niður staða faglegrar skipunar stjórna verði sú að kynjajafnvægi verði nokkurn veginn.“ Um leið er Páll þeirrar skoðunar að ávinningur fylgi auknu kynja- jafnvægi í stjórnum fyrirtækja. „Ég held það sé tvíþætt. Þótt konur og karlar geti verið mismunandi innbyrðis held ég samt að við fáum fjölbreyttari viðhorf inn í við- skiptalífið. Það held ég að hafi gildi í sjálfu sér. Í öðru lagi stuðlar þetta að því að fyrirtæki leiti út fyrir þægindahringinn. Og með því er ég að vonast til að fagleg sjónar- mið verði ríkjandi í meiri mæli en áður við skipan stjórna og stuðli að auknu heilbrigði í viðskipta lífinu,“ segir hann og telur að fyrir þessar sakir verði heildar áhrifin á við- skiptalífið mjög góð. Um leið telur Páll ekki að hend- ur fyrirtækja séu bundnar um of með lögunum, jafnvel þótt leitað sé að stjórnarmanni með ákveðna hæfileika, þekkingu eða tengsla- net. „Ég er eiginlega sannfærður um að svo sé ekki og langsótt að þetta sé eitthvert vandamál. Þvert á móti tel ég meiri líkur á að leit- að sé einmitt á þessum forsendum, á forsendum þekkingar og hvaða þekkingarvöntun sé í stjórninni ef farið er út fyrir þæginda hringinn eða kunningjahópinn. Umræðan trúi ég þá að snúist frekar um fag- legan bakgrunn stjórnarmanna.“ Um leið bendir Páll á að í könn- un KPMG á stjórnarmönnum komi fram að algengara sé að konur í stjórnum séu ekki með nein tengsl við félögin, en leiðbeiningar um góða stjórnarhætti geri einmitt ráð fyrir ákveðnu hlutfalli óháðra stjórnarmanna. Meðvitundin var kviknuð Í Kauphöllinni hafa kynjahlutföll stjórna þegar breyst mjög mikið. Árið 2008 voru konur til dæmis bara tíundi hluti stjórnarmanna í skráðum fyrirtækjum. Ef talin er með Tryggingamiðstöðin (TM), sem skráð verður í Kauphöllina núna í maíbyrjun, eru skráð félög núna með nánast jöfn kynjahlut- föll í stjórnum sínum. Konur eru 24 talsins, eða 46,2 prósent, og karlar 28, eða 53,8 prósent. „Breytingin frá 2008 er mjög dramatísk,“ segir Páll en bendir á að strax á síðasta ári hafi hlutfall kvenna í stjórnum verið komið upp í um það bil þriðjung. „Og nú er þetta farið að mjaka sér upp að 50 prósentum og komið nokkuð nærri jafnvægi. Þarna held ég að lögin hafi haft töluvert að segja, en áður en þau komu til var reyndar farið af stað með verkefni, sem Viðskiptaráð stóð að meðal annarra, um aukið kynja- jafnvægi í stjórnum. Meðvitund- in var því kviknuð áður.“ PÁLL HARÐARSON Á SKRIFSTOFU SINNI Þótt fleira skipti máli í tengslum við góða stjórnarhætti en kynjahlutfall í stjórnum segir forstjóri Kauphallarinnar að slík áhersla stuðli að því að við skipan stjórnarmanna verði faglegur bakgrunnur fyrst og fremst látinn ráða. „Og nóg er til af góðu fólki af báðum kynjum,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Dramatísk breyting á fáum árum Á fimm árum hefur hlutur kvenna í stjórnum skráðra fyrirtækja farið úr tíundaparti í nærri helming. Í haust taka gildi ný lög um kynjahlutföll. Áhersla á jafnan hlut stuðlar að faglegri vinnubrögðum við skipan stjórna. „Ég geri ráð fyrir að öll stærri fyrirtæki verði búin að koma kynjahlutföllum í stjórn í lag fyrir tilsett tímamörk,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur hjá KPMG. Fyrirtækið hefur staðið fyrir árvissum könnunum á meðal stjórnarfólks. „En við höfum ekki tekið saman nýjar tölur frá því í september í fyrra,“ segir hún. Miðað hefur verið við september til þess að öllum aðalfundum hafi örugglega verið lokið og mánaðarfrestur liðinn sem fyrirtæki hafa til að tilkynna um nýjar stjórnir til fyrirtækja skrár. Endanleg áhrif lögbundinna kynjahlut- falla sem taka gildi í september verða því ekki ljós fyrr en með haustinu. „Spurningin er kannski helst hvernig minni fyrirtæki sem eru á mörkunum í starfsmannafjölda og fjölskyldu- fyrirtæki bregðast við,“ segir Berglind. Eftirlitsskyld fyrirtæki, lífeyrissjóðir, bankar og skráð fyrirtæki verði hins vegar örugglega búin að taka á sínum málum, eins og sjá hafi mátt á tilkynningum frá fjölda þeirra í kjölfar aðalfunda undanfarið. „Þar hefur maður séð mjög faglegar ráðningar og reynslumiklar og flottar konur sem eru að koma inn í stjórnir.“ Af stóru bönkunum þremur á bara Íslandsbanki eftir að laga kynjahlutfall í sinni stjórn. Þar eru nú fimm karlar og tvær konur í stjórn, eða 71 á móti 29 prósentum. „Eigendur og stjórn Íslandsbanka munu að sjálfsögðu gera ráðstafanir til að Íslandsbanki fullnægi kröfum laganna áður en þau taka gildi í haust,“ segir í ályktun aðalfundar bankans. Á aðalfundi Landsbankans var bankaráðsmönnum fjölgað í sjö og eru þar nú þrír karlar og fjórar konur í stjórn, 43 á móti 57 prósentum. Arion banki er síðan með sama fjölda en kynjahlutföllunum snúið við, fjórir karlar og þrjár konur. MP banki hélt aðalfund á þriðjudag og var þar stjórninni breytt þannig að konur eru tvær en karlar þrír, 40 á móti 60 prósentum. Þar var áður ein kona í fimm manna stjórn. STÆRRI FYRIRTÆKI VERÐA INNAN TILSETTRA MARKA Með tilliti til kynjahlutfalls í hverri stjórn íslenskra félaga Kauphallar Ís- lands eru konur 46 prósent stjórnarmanna og karlar 54 prósent. Er þá TM, sem skráð verður í Kauphöllina á næstu dögum, talið með. Ef hins vegar er horft á einstaklingana sem stjórnirnar skipa kemur í ljós að þrjár konur sitja í tveimur stjórnum hver og einn karl er í tveimur stjórnum. Hallar með því örlítið meira á konurnar, sem með slíkri hausa- talningu verða 44 prósent stjórnarmanna á móti 56 prósentum karla. Svipuð lögmál eiga við þegar horft er til hlutar kvenna í sætum stjórnar- formanna félaga Kauphallarinnar, en tvö félög eru með konu sem stjórnar- formann. Félögin eru tíu talsins og hlutur kvenna meðal stjórnarformanna er því fimmtungur á móti fjórum fimmtu hlutum karlanna. Hins vegar vill svo til að þetta er sama konan, Elín Jónsdóttir, sem gegnir þessu hlutverki bæði hjá TM og Regni. Á móti er Benedikt Jóhannesson stjórnar- formaður bæði Nýherja og VÍS, þannig að hausatalning stjórnarformanna íslensku félaganna leiðir í ljós 12 prósenta raunhlutfall kvenna og 88 prósenta hlutfall karla. Kvaðir um kynjahlutföll hvíla ekki á færeysku félögunum í Kauphöllinni, en í stjórnum þeirra er hlutur kvenna samtals rétt tæpur fimmtungur. EKKI SAMA HVERNIG Á HLUTINA ER LITIÐ Af íslenskum félögum Kauphallar Íslands er aðeins eitt, Tryggingamiðstöðin (TM), sem ekki uppfyllir nú þegar ákvæði laga um kynjakvóta sem gildi taka í september. Félagið verður, samkvæmt áætlun, skráð á markað um miðja næstu viku. „Það er ekki búið gera breytingar á stjórninni eins og ætlunin er auðvitað. Þetta er vegna þess að fyrirsjáanlegt var að Stoðir væru að selja sinn hlut,“ segir Elín Jónsdóttir, stjórnarformaður TM. „Við vildum bíða og sjá hluthafalistann í framhaldi af útboði félagsins og skráningu.“ Elín segir að rætt hafi verið um það á aðalfundi TM í mars að boðað yrði til hluthafafundar í júlí eða ágúst. „Mjög líklega verður þetta í ágúst. Þannig geta nýir hluthafar haft áhrif á stjórnarkjör ef þeir vilja, gerðar verða breytingar á samþykktum og kynjahlutföllin löguð.“ BOÐA TIL HLUTHAFAFUNDAR FYRIR HAUSTIÐ ELÍN JÓNSDÓTTIR ÞRÓUN HLUTFALLS KVENNA Í STJÓRNUM SKRÁÐRA FYRIRTÆKJA Á ALÞJÓÐAVÍSU N or eg ur Ís la nd Fi nn la nd Le tt la nd Sv íþ jó ð Fr ak kl an d H ol la nd D an m ör k Sl óv en ía B re tla nd Þý sk al an d Li th áe n Se rb ía ES B -2 7 Té kk la nd M ak ed ón ía M eð al ta l Kr óa tía Sl óv ak ía B el gí a B úl ga ría Sp án n Au st ur rík i Pó lla nd Rú m en ía Íta lía Lú xe m bo rg Ty rk la nd Írl an d Ei st la nd G rik kl an d Ký pu r U ng ve rja la nd Po rt úg al M al ta 50% 40% 30% 20% 10% 0% 44% 36% 29% 28% 26% 25% 22% 21% 19% 19% 18% 18% 18% 16% 16% 16% 16% 15% 14% 13% 12% 12% 12% 12% 12% 11% 10% 10% 9% 8% 8% 8% 7% 7% 4% Staðan í árslok 2012 Þróunin í efstu fimm löndunum árið 2012 50% 40% 30% 20% 10% 0% Noregur Ísland Finnland Lettland Svíþjóð 20 04 20 06 20 08 20 10 20 12 20 04 20 06 20 08 20 10 20 12 ‘04 ‘0 6 20 08 20 10 20 12 20 04 20 06 20 08 20 10 20 12 20 04 20 06 20 08 20 10 20 12 HEIMILD: EVRÓPURÁÐIÐ/NASDAQ OMX ICELAND STJÓRNIR KAUPHALLARFYRIRTÆKJANNA Össur 60% 40% Reginn 40% 60% 40% 60% Marel 57% 43% Hagar 60% 40% Eimskip 60% 40% Alls 54% 46% VÍS 60% 40% Nýherji Icelandair Vodafone TM 80% 20% 40% 60% 40% 60% STJÓRNARHÆTTIR Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is 22 % 35 % 43 % 39 % 4 4% 5% 6 % 1 0% 16 % 36 % 16 % 20 % 20 % 2 6% 2 9% 10 % 21 % 16 % 23 % 2 8% 21 % 24 % 27 % 26 % 26 %

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.