Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 37

Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 37
GALLIANO MÓTMÆLT Til stendur að John Galliano kenni þriggja daga mast er class- námskeið við Parsons-listaháskólann í New York. Nú gengur undirskriftalisti á netinu þar sem þessu er mótmælt í ljósi þess að Galliano lét niðrandi ummæli falla um gyðinga, en fyrir þau var hann dæmdur til fjársektar. Steinunn Edda Steingrímsdóttir keypti pallíettu-blaser í versluninni Corner í Smáralind fyrir skemmstu og hefur hann verið í mikilli notkun síð- an. Hann kom fyrst upp í huga hennar þegar hún var beðin um að sýna flík í uppáhaldi. Við jakkann er hún í svartri skyrtu frá Primark og svörtum galla- buxum úr Top Shop. Hálsmenið er frá Shop Couture. „Ég er gefin fyrir að vera sem mest í svörtu en poppa það upp með einni flík eða fylgihlut í lit. Þá geng ég mikið í skyrtum enda auðvelt að klæða þær bæði upp og niður og flott að bera háls- men við.“ En hvers vegna skyldi vera farið fram á svartan klæðnað í vinnunni? „Þetta er algeng krafa hjá virtum snyrtivöru- keðjum. Þar er það förðunin sem skiptir mestu og á sem minnst að skyggja á hana,“ segir Steinunn Edda, sem byrjar hvern morgun á því að setja upp fallega förðun. „Stundum legg ég áherslu á augun og stundum á varir. Suma daga er ég í miklu litastuði en aðra vel ég létta og látlausa förðun.“ Steinunn Edda segir morgunverkin taka frá tuttugu mínútum upp í klukkustund. Hún segir förðunina skipta miklu máli í starfinu enda mikil- vægt fyrir viðskiptavini að geta séð hvernig vörurnar koma út í raun. En fer svona mikil dagleg förðun ekk- ert illa með húðina? „Nei, enda eru þetta mjög góðar vörur. Á húðina nota ég vönduð krem og góðan grunn frá Make Up Store og passa mig alltaf á að þrífa hana vel á milli.“ ■ vera@365.is POPPAR UPP MEÐ PALLÍETTUM SVART Í GRUNNINN Steinunn Edda Steingrímsdóttir, förðunarfræðingur og verslunarstjóri í Make Up Store, er alltaf í svörtu í vinnunni. Í frítímanum finnst henni því gaman að klæðast litum og er veik fyrir glimmeri og pallíettum. BYRJAR DAGINN Á FALLEGRI FÖRÐUN Steinunn Edda þarf starfs síns vegna að setja upp fallega förðun á hverjum morgni. Það tekur frá tuttugu mín- útum upp í klukkustund, allt eftir því stuði sem hún er í hverju sinni. „Suma daga er ég í miklu litastuði en aðra vel ég létta og látlausa förðun.” MYND/VILHELM Teg 301048 - létt fylltur í 70-85B, 75-90C á kr. 5.800,- boxer buxur í stíl á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. Laugardaga frá kl. 10-14 NÝKOMINN AFTUR !

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.