Fréttablaðið - 02.05.2013, Síða 54
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. pest, 6. í röð, 8. sauðagarnir, 9.
mærð, 11. komast, 12. lína, 14. eftir-
gjöf, 16. fisk, 17. dvelja, 18. flan, 20.
númer, 21. steintegund.
LÓÐRÉTT
1. líkamshluti, 3. tveir eins, 4. vitnis-
burður, 5. hamfletta, 7. neðsta lag, 10.
af, 13. svelg, 15. kropp, 16. geisla-
hjúpur, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kvef, 6. áb, 8. vil, 9. lof, 11.
ná, 12. strik, 14. náðun, 16. ál, 17. una,
18. ras, 20. nr, 21. agat.
LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. vv, 4. einkunn, 5.
flá, 7. botnlag, 10. frá, 13. iðu, 15. nart,
16. ára, 19. sa.
Gangi
þér vel
með
þetta,
Jói!
Nei! Held
að það
fái að
fjúka!
Zææælir!
Svo að
þú ætlar
að halda
taglinu?
Greinilega ekki! En
það versta er að
mér finnst þetta
eiginlega líta
ágætlega út!
Breyta þér?
Ætlar hún
aldrei að
læra?
Sannleikurinn er
sá að ég gerði
þetta til að pirra
Kamillu. Hún vildi
breytingar og
það fær hún svo
sannarlega!
Jæja, hvar
lagði ég
frá mér
lyklana?
Ég skil ekki
hvernig hægt
er að týna
bíllyklum!
Ef ég ætti bílykla
myndi ég bræða þá við
hendina á mér!
Einhver væri alveg bara
„Ertu með lyklana?“
og ég væri bara
„Audda hvað heldur þú?“
og þeir væru bara „Gaur!“
Ég léti þá
aldrei frá mér!
Ég myndi aldrei
Aldrei!
TÝNA
ÞEIM!
Hmmm...
hann lítur út fyrir
að vera
séntílmaður.
Ég leyfi honum
að taka fyrsta
skrefið.
Hún hlýtur að vera
ein af þessum
nútímakonum.
Ég leyfi henni
að taka fyrsta
skrefið.
Sniff!
Sniff!
Solla!
Voruð þið aftur að leika með ilmvatnið mitt?
En skrýtin spurning.
Afhverju ertu að spá í það?
Umboðs- og dreifingaraðili Ørgreen á Íslandi
UMBURÐARLYNDI er einn af mínum
helstu kostum. Ég er umburðar lyndur
maður og ég geri umburðarlyndi hátt
undir höfði í skoðunum mínum til lífsins.
Umburðarlyndi er birtingarmynd sam-
kenndar og samúðar. Það erum við
umburðarlynda fólkið sem höldum
þjóðfélaginu saman. Ef ekki væri til
umburðar lynt fólk eins og ég þá væri
hér hver höndin upp á móti annarri.
Ég er stoltur af sjálfum mér því ég er
ekki þrjóskur og þröngsýnn eins og
flestir. Ég er umburðarlyndur.
EN ég þoli ekki Framsóknar flokkinn,
Eurovision, Crocs-skó, Bíladaga á
Akureyri, Hamborgarafabrikk-
una, grenjandi krakka,
verðtryggingu, gula bíla,
athyglis sýki, sértrúarsöfn-
uði, Bylgjuna, öryggisleitar-
hlið á flugvöllum, vega-
sjoppur úti á landi, hunda,
rapp, raunveruleika-
sjónvarp, U2, FM,
B5, Korputorg, fólk á
kommenta kerfum, lottó,
póker og hvers konar
innleiðingu á erlendum
hefðum eins og hrekkja-
vöku og Valentínusardegi
í þágu markaðs- og gróða-
hyggju. Ofangreint get ég
ekki umborið. Að öðru leyti er
ég umburðarlyndur.
NEMA náttúrulega ef við erum að tala
um jólatónleika, smálánafyrirtæki, illa
máli farna íþróttafréttamenn, sjálfselsku,
íslensku krónuna, maraþonhlaup, auglýs-
ingar um MBA-nám, sveitaböll, kántrí-
tónlist, símasölumenn, dagskrána á RÚV,
ljósabekki, Þjóðkirkjuna, Fálkaorðuna,
stafsetningarvillur, SÁÁ, LÍÚ og önnur
frek hagsmunasamtök, arkitektúr frá 10.
áratugnum og að heyra íslenska tungu
við lendingarhlið flugvalla eftir nokk-
urra daga ferð í útlöndum. Ofangreint get
ég ekki umborið. En fyrir utan það er ég
umburðarlyndur.
EN að sjálfsögðu hata ég sægreifa, banka-
plebba, erlenda hrægamma, stjórnmála-
menn, öfgafemínista, kaffiþambandi
listamenn, líkamsræktarfrömuði, bóta-
þega, lögfræðinga, presta, heilara, hag-
fræðinga og atvinnumenn í fótbolta sem
kunna ekki að skora. Að sjálfsögðu hata ég
fólk sem talar of hægt og fólk sem talar of
hratt. Að sjálfsögðu hata ég fólk sem talar
um eitthvað sem mér finnst vera kjaft-
æði. Að sjálfsögðu hata ég 90% þjóðar-
innar. Að sjálfsögðu hata ég alla sem eru
ekki umburðarlyndir og með nákvæm-
lega sömu skoðun og ég. Slíkt get ég ekki
umborið.
Í samfélaginu er margt sem þarf að laga.
En sem betur fer er til umburðarlynt fólk
eins og ég. Sem betur fer er ég umburðar-
lyndur!
Umburðarlyndi