Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 24

Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 24
KYNNING − AUGLÝSINGSumarbústaðir MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 20132 Á heimasíðu forsætisráðuneyt- isins má kynna sér lög og reglur þjóðfánans. Öllum er heimilt að nota fánann sé farið eftir settum reglum. Æskilegt er að almenn- ingur dragi fána á stöng á fána- dögum, þá daga sem ríkisfán- inn er hafður uppi á opinberum byggingum. Fánann má nota við öll hátíðleg tækifæri, jafnt þau sem tengjast einkalífi sem önnur, eða á sorgarstundum, þá dreginn í hálfa stöng. Hér á eftir fara helstu reglur um þjóðfánann en ítarlegri reglur má finna á for saetisraduneyti.is. Fánastöng og fánastærð Fánastöng getur verið annað- hvort upp af húsi eða út frá hlið þess. Skal stönginni komið fyrir á smekklegan hátt. Einnig má reisa fánastöng á jörðu. Á efri enda fánastangar er æski- legt að sé hnúður með skoruhjóli, sem fánalínan leikur liðlega í. Neðarlega á stönginni eða í beinu framhaldi af henni sé snerill til að festa fánasnúruna. Hentugt er að fánastöng sé þannig komið fyrir að auðvelt sé að losa hana eða fella. Fánastöng skal vera einlit. Fánatími Fána skal eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði eigi vera leng- ur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis. Ef f lagg- að er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningar- athöfn má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem at- höfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis. Fáni dreginn að húni Þegar draga á fána að húni er rétt að halda honum samanbrotn- um undir holhendi. Festingar viti fram (venjulega sigurnagli eða þverspýta að ofan, en lykkja að neðan). Þegar fánalínan hefur verið leyst er sá endi hennar sem vindur ber lengra frá stönginni hnýttur með fánahnút við efri festingu fánans, en hinn endinn við lykkjuna að neðan, einnig með fánahnút. Fáninn er dreginn með jöfnum hraða að húni og skal efra horn hans falla að húninum. Fá- nalínan skal vera strengd. Fáni dreginn niður Þegar fáni er dreginn niður er það gert með jöfnum, hægum hraða. Fáninn er leystur af neðri festingu, tekinn saman undir holhendi og síðan leystur frá efri festingu. Fá- nasnúran er jöfnuð, snúruend- ar lagðir saman og hnýttur á þá lykkjuhnútur og snúran síðan vafin um snerilinn og fest traust- lega. Fáni dreginn í hálfa stöng Ef draga á fána í hálfa stöng er það gert með þeim hætti að fáninn er fyrst dreginn að húni og síðan felldur, svo að þriðjungur stangar- innar sé fyrir ofan efri jaðar fánans. Við jarðarför eða aðra sorgarathöfn skal fáninn dreginn að húni þegar henni er lokið og skal hann blakta þar uns fánatíma lýkur. Ýmsar reglur um fánann Þegar fáni er dreginn á stöng eða dreginn niður skal gæta þess að hann snerti ekki jörð, vatnsyfir- borð eða gólf. Sé fáni á stöng við altari, ræðu- stól eða ræðuborð, leiksvið eða annan sambærilegan stað skal hann vera vinstra megin séð frá áhorfanda. Séu fánarnir tveir skulu þeir vera sinn til hvorrar handar. Hvorki skal sveipa ræðustól þjóðfánanum né hafa hann fram- an á ræðustól. Eigi má nota þjóðfánann til að sveipa með honum styttu eða annan hlut, sem á að afhjúpa, og aldrei skal nota hann sem borð- dúk eða gólfábreiðu. Hvenær má nota fánann? Það er skemmtilegt að flagga heima eða í sumarbústaðnum, enda margir sem gera það. Til að nota fánann þarf þó að kunna helstu reglur er varða hann. Íslenski fáninn á Lögbergi. GRÓÐUR FYRIR SUMAR BÚSTAÐARLANDIÐ Farskólinn – Miðstöð símennt- unar á Norðurlandi vestra býður upp á námskeið um gróður og tré við sumarbústaði í apríl. Farið verður yfir ræktun skrautrunna, berjarunna, limgerðisplantna, lauftrjáa og sígræns gróðurs út frá gróðursetningu, jarðvegi, áburðargjöf og umhirðu. Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að þekkja sérkenni og harðgerði tegunda og ættu að geta valið fjölbreyttan trjágróður fyrir sumarbústaðarlandið. Gert er ráð fyrir tólf þátttakendum á hverju námskeiði en hægt er að óska eftir kennslu á öllu Norður- landi vestra. Nánari upplýsingar er að finna á farskolinn.is. Ábyrgð byggingastjóra Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar og stýra byggingaframkvæmdum í samræmi við samþykktir, lög og reglur. Markmið þess er að upplýsa þá um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld. Farið yfir hlutverk byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta, lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit. Kynnt gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis, stöðu- og lokaúttektir. Á námskeiðinu er kynnt og afhent Byggingarstjóramappa, en hún er vísir að gæðakerfi fyrir byggingarstjóra. Í nýjum mannvirkjalögum er gert ráð fyrir því að byggingarstjórar hafi gæðakerfi vegna starfa sinna. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun. Þetta er jafnframt síðasta námskeiðið um ábyrgð byggingastjóra á vorönn 2013. Námsmat: 100% mæting. Kennari: Magnús Sædal byggingafulltrúi og Gunnar Pétursson lögfræðingur. Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík. Tími: Laugardagur 25. maí kl. 9.00 - 17.00. Lengd: 12 kennslustundir. Fullt verð: 45.000 kr. Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr. Skúlatún 2 - 105 Reykjavík Sími 590 6400 - Fax 590 6401 idan@idan.is - www.idan.is Gerir þú þér grein fyrir ábyrgðinni? Skráning á www.idan.is og í síma 590 6400. Námskeið fyrir byggingamenn 25. maí í Reykjavík Skráning á idan.is Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.