Fréttablaðið - 15.05.2013, Page 8
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Enginn, síst af öllu
börn, ætti nokkurn
tímann að vera misnot-
aður á þann hátt sem þessi
ungu fórnarlömb voru.
Baljit Ubhey
saksóknari
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
IFRS
Á þremur fróðleiks fundum í
maí verður farið yfir reglur,
dæmi og álitamál er snúa
að beitingu nýrra og
mikilvægra alþjóðlegra
reikningsskilastaðla.
kpmg.is
FIMMTUDAGINN 16. MAÍ
IFRS 10 | Samstæðureikningar
Yfirráð eru einn af hornsteinum reikningsskila
sem gerð eru í samræmi við alþjóðlega reiknings-
skila staðla. Staðallinn IFRS 10 endurskilgreinir
hugtakið yfirráð og inniheldur nýjar reglur sem
þarf að fara eftir.
FIMMTUDAGINN 23. MAÍ
IFRS 12 | Upplýsingagjöf um
hagsmuni í öðrum félögum
Markmið IFRS 12 er að skylda félög til að birta
upplýsingar sem gera notendum reikningsskila
þeirra kleift að leggja mat á eðli hagsmuna í öðr um
félögum, áhættu sem fylgir þeim og áhrif hags-
munanna á fjárhagsstöðu, afkomu og sjóðstreymi.
FIMMTUDAGINN 30. MAÍ
IFRS 13 | Mat á gangvirði
IFRS 13 felur í sér heildstæðan ramma um mat á
gangvirði sem ber að fara eftir þegar skylt er eða
heimilt að meta gangvirði samkvæmt öðrum
alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Fundirnir eru öllum opnir og eru haldnir á skrifstofu
KPMG í Borgartúni 27 frá kl. 8:30 til 10:00. Léttur
morgunverður er frá kl. 8:15.
Hver fundur veitir löggiltum endurskoðendum
1,5 endurmenntunareiningu í reikningsskilum
og fjármálum.
Skráning og nánari upplýsingar er
að finna í KPMG appinu og á kpmg.is
FÓLK „Þetta er bara persónuleg
ákvörðun hjá mér. Þetta tengist í
raun engu sérstöku,“ segir Gunn-
ar Smári Egilsson, formaður SÁÁ
sem hefur ákveðið að bjóða sig
ekki aftur fram til formannsem-
bættis félagsins.
Gunnar Smári tilkynnti stjórnar-
mönnum og starfsfólki tíðindin á
fundi síðastliðinn laugardag. Hann
segir að sér hafi fundist rétt að til-
kynna ákvörðun sína með góðum
fyrirvara fyrir ársfund félagsins.
Aðspurður hvort að ákvörðun
hans tengist að einhverju leyti
átökum innan samtakanna segir
hann svo ekki vera en bætir við:
„Í stórum hópi er alltaf einhver
ágreiningur um stefnur og strauma
og stundum er ágætt að það komi
bara fram. Það er ekki alltaf best
að leysa allt í bakherbergjum. En
mér fannst hins vegar rétt að ég
drægi mig til hlés í þágu stefnunn-
ar í stað þess að takast á við menn.“
Hann segist sáttur við sitt starf
og stoltur af því að samtökin hafi
ekki þurft að skerða þjónustuna
við sinn sjúklingahóp þrátt fyrir
niðurskurð og erfiða tíma. Að
sögn Gunnars Smára hafa sam-
tökin mætt niðurskurði með því að
fjölga félögum og auka söfnunarfé
frá almenningi.
„Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt. Ég er búinn að vera
hér í fimm ár, tvö ár sem formaður,
og farið í gegnum tíma samdrátt-
ar og kreppu. Starfsmenn, félagar,
stjórnarmenn geti verið stoltir af
síðustu árum og hvernig samtök-
in hafa komist í gegnum erfiða
tíma. Við höfum haldið úti svo til
óbreyttri þjónustu og aukið hana
ef eitthvað er. Við höfum reynd-
ar þurft að ganga svolítið á eignir
okkar, ekki sjóði, en við höfum ekki
sinnt viðhaldi á fasteignum og öðru
slíku.“
Aðspurður hvað taki við að
loknu formannsembætti segir
Gunnar Smári ekki tímabært að
ræða það opinberlega. „Ég er að
skoða ákveðna hluti. Lífið hefur
nú alltaf komið mér skemmtilega
á óvart. Ég má því ekki hugsa of
mikið um eitt ákveðið, það þarf
að vera pláss fyrir það óvænta og
skemmtilega.“
hanna@frettabladid.is
Gunnar Smári býður
sig ekki aftur fram
Formaður SÁÁ er ánægður með að ekki hafi þurft að skera niður þjónustu til sjúk-
linga á erfiðum tímum. Hann hyggst ekki bjóða sig aftur fram til formanns. Hann
segir ákvörðunina persónulega en alltaf séu átök í stórum hópum.
HÆTTIR SEM FORMAÐUR Gunnar Smári Egilsson segir ákvörðun sína um að bjóða
sig ekki aftur fram til formanns SÁÁ persónulega. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
BRETLAND, AP Sjö menn voru
dæmdir í fangelsi í London í gær
fyrir kynferðisbrot gegn ólög-
ráða stúlkum. Málaferlin hafa
tekið fimm mánuði.
Mennirnir misnotuðu ungar
stúlkur kerfisbundið. Þeir gáfu
þeim áfengi og eiturlyf og neyddu
þær til kynferðislegra athafna.
Þeir voru dæmdir fyrir nauðg-
anir, mansal og vændi.
Margar stúlknanna voru
neyddar í vændi af mönnunum,
sem starfræktu ofbeldishringinn
á árunum 2004 til 2012 í Oxford.
Þeir fluttu stúlkur um Bretland í
þessum tilgangi.
„Enginn, síst af öllu börn, ætti
nokkurn tímann að vera misnot-
aður á þann hátt sem þessi ungu
fórnarlömb voru,“ sagði saksókn-
ari málsins, Baljit Ubhey.
Hún sagði það sem stúlkurnar
hafi verið látnar gera hafi verið
„sannarlega hræðilegt“ kerfis-
bundið ofbeldi. Þeir hafi enga
ábyrgð tekið á gjörðum sínum.
Mennirnir sem voru dæmd-
ir eru á aldrinum 27 til 38 ára,
en tveir menn til viðbótar voru
ákærðir en sýknaðir. Lengd refs-
ingarinnar verður ákveðin í júní
en mennirnir verða í haldi þang-
að til. - þeb
Sjö menn í Bretlandi dæmdir fyrir mansal, nauðganir og vændi:
Misnotuðu stúlkur í mörg ár
LÖGREGLUMÁL Tveir hælisleitendur
voru handteknir við Grundartanga
eftir hádegi í gær en þeir höfðu
komist um borð í skip sem þar var
við bryggju. Þeir voru færðir í
umsjá lögreglunnar á Suðurnesj-
um.
Samkvæmt frétt RÚV fannst
þýfi á mönnunum en ekki er vitað
hvort þeir hafi áður reynt að kom-
ast um borð í skip. Þá var leitað
að tveimur mönnum til viðbótar í
skipinu. Sú leit bar ekki árangur og
var að lokum hætt. - hó
Hælisleitendur handteknir:
Komust um
borð í skip
RÚSSLAND Bandarískur njósn-
ari í dulargervi var handsam-
aður í Moskvu fyrir skemmstu.
Njósnarinn var að reyna að fá
rússneskan njósnara til liðs við
bandarísku leyniþjónustuna CIA
með því að bera á hann fé, að því
er rússnesk stjórnvöld greindu
frá í gær. Maðurinn þarf að yfir-
gefa Rússland strax.
Ryan Fogle starfaði fyrir
bandaríska sendiráðið í Moskvu
og var með hárkollu, ýmsan
tæknibúnað og mikið magn af
peningaseðlum þegar hann var
handtekinn. Leyniþjónustan í
Rússlandi segir að njósnarinn
sem reynt var að fá til liðs við
Bandaríkjamenn sé sérfræðing-
ur í Kákasus-svæðinu, en þaðan
eru bræðurnir sem eru grunaðir
um að hafa sprengt tvær sprengj-
ur í Boston-maraþoninu í síðasta
mánuði.
Bandaríkjamenn og Rússar
hafa opinberlega unnið saman að
því að komast til botns í því hvort
Tamerlan Tsarnaev hefði verið í
samskiptum við herskáa íslam-
ista í Dagestan. Rússnesk yfir-
völd lýstu því yfir vonbrigðum
sínum með að Bandaríkjamenn
skyldu leynilega vera að rann-
saka málið.
Málið gæti haft alvarleg áhrif
á samskipti ríkjanna tveggja,
sem hafa verið viðkvæm undan-
farin misseri. - þeb
Leyniþjónustumaður í dulargervi sagður hafa reynt að bera fé á kollega:
Njósnari rekinn frá Rússlandi
NJÓSNABÚNAÐURINN Rússar segja
þetta muni sem fundust í fórum Fogle.
Þarna eru hárkollur, vopn, leiðbeiningar
fyrir njósnara og persónulegir munir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í stórum hópi
er alltaf einhver ágrein-
ingur um stefnur
og strauma og stundum
er ágætt að það komi
bara fram.
Gunnar Smári Egilsson,
formaður SÁÁ.
LITRÍKAR ÓSKIR Suður-Kóreskur verka-
maður hengir hér upp eitt af fjölmörg-
um litaspjöldum sem búddistar skrifa
óskir sínar á í Jogye-hofinu í Seúl.
NORDICPHOTOS/AFP