Fréttablaðið - 15.05.2013, Page 4
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT:
Rangt var farið með ártal í frétt blaðs-
ins í gær um hrun aðsóknar til kennara-
náms. 156 var hafnað um skólavist árið
2006. Beðist er velvirðingar á villunni.
SÆVAR CIESIELSKI
gir sögu sínase
ókin byggir á fangelsis-B
pappírum Sævars
Ciesielskis.
Æska og unglingsár
Sævars.
Aðdragandi Guðmundar-
og Geirfinnsmála.
Gæsluvarðhaldið.
Dramatísk
frásögn af einu
frægasta sakamáli
Íslandssögunnar.
SKRUDDA
NÁTTÚRA Óbætanlegur skaði hefur
verið unninn á flestum merk-
ustu hraunhellum landsins. Frjáls
umferð almennings og ferðaþjón-
ustufyrirtækja í flesta þekkta hella
landsins hefur haft þetta í för með
sér.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
samráðsnefndar umhverfis- og auð-
lindaráðherra um verndun hella.
Megintillaga nefndarinnar er að
allir hraunhellar í landinu verði
friðlýstir með heildarfriðun.
Árni B. Stef-
ánsson, augn-
læknir og hella-
könnuður, segir
að á síðustu árum
hafi ágangur í
þekktum hellum
stóraukist ár frá
ári. Því hafi fylgt
hraðari og meiri
hrörnun þess-
ara einstöku náttúrufyrirbæra en
nokkru sinni fyrr. Hann segir að
fjöldi hraunhella á landinu sé á
sjötta hundrað að minnsta kosti en
ástandið í dag sé með þeim hætti
að þorri allra hraunhella í land-
inu liggi undir skemmdum vegna
mannaferða. Sem dæmi nefnir
hann alla stóru hellana sem marg-
ir þekkja; Surtshelli, Stefánshelli,
Raufarhólshelli, Víðgelmi og Borg-
arhelli.
„Þetta eru merkilegustu hellarn-
ir og það er búið að brjóta og fjar-
lægja allar hraunmyndanir sem þar
var að finna í hundraða vís. Þessar
skemmdir hafa verið viðvarandi um
árabil og ef heldur áfram sem horf-
ir munu þeir hellar sem eftir eru
smám saman verða rúnir þeim sér-
kennum sem þá prýða,“ segir Árni
og vísar til sérkenna hellanna eins
og dropasteina og hraunstráa.
Árni segir að ástandið sé með
hreinum ólíkindum hér á landi.
Nú séu staðsetningarhnit flestra
hraunhella landsins aðgengileg í
bókum og á netinu, en erlendis er
þessu þveröfugt farið og almennt
er staðsetning þeirra einfaldlega
ekki gefin upp. „Að gefa upp stað-
setningu hellis með þessum hætti
er ávísun á skaða og ekkert annað,
því miður.“ Árni bætir því við að
verndargildi íslenskra hraunhella
sé mjög mikið á heimsvísu, enda sé
meirihluta slíkra hella hér að finna.
Í skýrslunni segir að enn sé
töluvert eftir af viðkvæmum og
fallegum hellum á landinu en þeir
séu jafnt og þétt að skemmast vegna
óheftrar umferðar. Þess vegna eru
tillögur nefndarinnar um allsherj-
arfriðun komnar til. Þá segir jafn-
framt að helsta og raunar eina ógnin
við þau náttúruundur sem fólgin
eru í íslenskum hellum er umferð
manna. „Ástandið, sem einkennist
af stöðugum og vaxandi skemmd-
um, er óviðunandi og kallar á rót-
tæk viðbrögð sem hlýtur að miðast
við að forða frekara tjóni jafnhliða
því að fólk geti áfram notið þeirrar
náttúru sem í hellunum býr.“
svavar@frettabladid.is
Ómetanlegir hraunhellar
þegar verið stórskemmdir
Frjáls umferð almennings og ferðaþjónustufyrirtækja hefur valdið óbætanlegum skaða á flestum merkustu
hraunhellum landsins. Grípa þarf til heildarfriðlýsingar að mati samráðsnefndar og loka tugum hella án tafar.
Megintillaga nefndarinnar er að allir hraunhellar í landinu verði friðlýstir
með heildarfriðun. Hellar verði greindir í þrjá flokka eftir stigi friðunar.
■ Lokaðir hellar: Hellar sem eru lokaðir allri almennri umferð. Umgengni
og rannsóknir eru háðar reglum sem setja þarf fyrir hvern helli. Lagt er til
að 24 hellum verði lokað fyrir allri umferð svo fljótt sem auðið er.
■ Sýningarhellar: Hellar sem eru opnir ferðafólki í fylgd leiðsögumanna.
Umgengni og rannsóknir eru háðar reglum sem setja þarf fyrir hvern helli.
■ Opnir hellar: Hellar sem eru öllum opnir án eftirlits. Umgengni og rann-
sóknir eru háðar reglum sem setja þarf fyrir hvern helli, en stýra og bæta
þarf aðgengi að hellunum og umgengni innan þeirra.
Tillögur samráðsnefndar
SURTS-
HELLIR
Einn
þekktasti
hraunhellir
landsins
sem hefur,
eins og
margir fleiri,
tapað miklu
af gildi sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
FRÁ UNDIRRITUN Páll Á. Jónsson, frá
Mílu og Jörundur Valtýsson frá utan-
ríkisráðuneytinu skrifa undir. MYND/MÍLA
FJARSKIPTI Míla og utanríkisráðu-
neytið hafa undirritað samning
um eignarhald og rekstur á ljós-
leiðara sem liggur umhverfis
landið, en ljósleiðarinn var lagður
á vegum Atlantshafsbandalags-
ins. Í samningnum er skýrt kveð-
ið á um eignarhald á þeim átta
þráðum sem eru í ljósleiðaranum
og réttindi og skyldur sem þeim
fylgja. Míla fer með eignarhald
á fimm þessara þráða en utan-
ríkisráðuneytið hefur umsjá með
þremur fyrir hönd Atlantshafs-
bandalagsins.
Einnig er samið við Mílu um
áframhaldandi þjónustu við
umrædda þrjá þræði í umsjá rík-
isins. Um er að ræða endurnýjun
á fyrri samningi. -ósk
Lengt í þjónustusamningi:
Ljósleiðari um-
hverfis landið
ÁRNI B.
STEFÁNSSON
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, fráfarandi atvinnuvegaráð-
herra, skrifaði grein sem birtist á
vefsíðu Financial Times í gærkvöldi
þar sem hann veltir upp þeirri
spurningu hvort stjórnmálamenn
geti mætt óraunhæfum væntingum
kjósenda í Evrópu á tímum niður-
skurðar.
Hann bendir á að jafnvel þótt
stjórnvöld á Íslandi hafi verið gerð
að fyrirmynd um hvernig takast
ætti á við efnahagshrun hafi flokk-
arnir tveir sem margir vilja kenna
um hrunið aftur
verið kosnir til
va lda . Ha n n
segir þetta vekja
upp grundvall-
arspurningar og
spyr hvort ein-
hver stjórnmála-
maður geti upp-
fyllt óraunhæfar
væntingar kjós-
enda í Evrópu.
Steingrímur segir að þrátt
fyrir að hagvöxtur hafi vænkast,
verðbólga minnkað, gjaldmiðill-
inn komist í betra jafnvægi og
atvinnuleysi minnkað um helming
hafi þáverandi ríkisstjórn beðið
afhroð í nýliðnum kosningum.
Erfitt sé að svara hvers vegna en
sumir vilji meina að hún hafi ekki
auglýst árangur sinn nægilega vel.
Steingrímur segir að stjórnmála-
menn í Evrópu eigi mikið verk
fyrir höndum. Þær ákvarðanir
sem þeir þurfi að takast á við séu
ekki líklegar til vinsælda því kjós-
endur vilji árangur strax. - hó
Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi ráðherra, skrifar í Financial Times:
Segist gáttaður á kosningunum
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VÍSINDI Of þungar mýs léttust
þegar þær fengu viðbótarskammt
af bakteríunni Akkermansia
muciniphila sem er í meltingar-
færunum. Ónæmi músanna gagn-
vart insúlíni minnkaði jafnframt
en það er eitt helsta einkenni
sykursýki 2, að því er segir í frétt
á vef BBC.
Vísindamennirnir sem gerðu
rannsóknina hafa hug á að kanna
hvort bakterían hafi sömu áhrif
á menn. Engar breytingar voru
gerðar á mataræði músanna. - ibs
Uppgötvun vísindamanna:
Baktería lausn
við ofþyngd
UMFERÐ
Rúta lokaði vegi
Þjóðvegur 1 milli Breiðdalsvíkur og
Egilsstaða lokaðist um tíma í gær þegar
50 manna rúta fór þversum á veginum
innst í Breiðdal við Breiðdalsheiði.
Björgunarsveit frá Breiðdalsvík kom til
aðstoðar.
212,8443
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,01 120,59
184,45 185,35
155,76 156,64
20,896 21,018
20,662 20,784
18,184 18,29
1,181 1,188
179,79 180,87
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
13.05.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
Strekkingur V-til, annars hægari.
HÆGT HLÝNANDI Í dag og á morgun ríkja norðlægar áttir með nokkuð björtu veðri
um sunnanvert landið en á föstudaginn snýst vindur í suðaustanátt. Ekki verða ýkja
miklar breytingar á hitastigi en það hlýnar þó lítillega á norðanverðu landinu.
2°
5
m/s
4°
9
m/s
9°
4
m/s
7°
6
m/s
Á morgun
Víða 3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
10°
6°
8°
5°
6°
Alicante
Aþena
Basel
24°
25°
20°
Berlín
Billund
Frankfurt
25°
19°
22°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
23°
16°
16°
Las Palmas
London
Mallorca
22°
12°
22°
New York
Orlando
Ósló
18°
28°
12°
París
San Francisco
Stokkhólmur
16°
20°
13°
7°
1
m/s
6°
11
m/s
1°
3
m/s
2°
4
m/s
2°
2
m/s
6°
7
m/s
3°
3
m/s
10°
2°
10°
3°
4°