Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 46
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22 Ég er að reyna að komast að kjarna borgarinnar og maður kemst ekki mikið nær kjarnanum en að borgar-stjóra í djúpsvefni,“ segir Finnbogi Pétursson um sýningu sem hann opnar í Höggmyndagarðinum við Nýlendugötu á laugardag. Í miðjum garðinum verður komið fyrir gömlum ljósastaur og á hann hengdar tvær tæplega hálfrar aldar hátarabjöllur úr gamla hljóðkerfi Reykjavíkurborgar. Finnbogi fékk leyfi Jóns Gnarr borgarstjóra til að hljóðrita nætursvefn hans og mun upptakan óma úr hátalarabjöllunum í garðinum í sumar. „Hugmyndin er fólk komi í garðinn á hvaða tíma sem er, leggist og láti sig dreyma með borgarstjóranum,“ segir Finnbogi. Hann segist hafa viljað fanga stundina þar sem fulltrúi borgarinnar, sjálfur borgarstjór- inn, stígur úr hinum daglega heimi og inn draumaheiminn þar sem hann endurhleður sig yfir nóttina. „Jón tók vel í þetta og var svo vænn að hleypa mér svona nálægt sér. Ég lét hann hafa upptökutæki, kenndi honum á það og sýndi honum hvar hann ætti að stilla því upp. Svo lagðist hann til hvílu og fór í gegnum öll stig svefnsins sem við förum í gegn á hverri nóttu til að endurhlaða kerfið.“ Upptakan af svefni borgarstjóra um átta klukkustundir verður leikin í sífellu allan sólarhringinn þar til í ágúst þegar sýning- unni lýkur. Nágrannar þurfa þó ekki að óttast ónæði af völdum verksins. „Ég er ekki að „blasta“ neinu. Upptakan er mjög lágstemmd; þetta er aðallega þögn eða hægur andardráttur, brotin upp með einstaka hrotu. Af öðrum verkum mínum er þetta lík- lega einna mest í ætt við hljóðskúlptúr sem ég gerði á aldarafmæli Halldórs Laxness. Þar var meginuppistaðan upptaka af upplestri Halldórs þar sem ég hafði klippt út öll orðin en spilaði bara þögnina.“ Skúlptúrinn er öðrum þræði nostalgíuverk. „Ég fór stundum í bæinn með pabba á þjóðhátíðardaginn þegar ég var strákur og man vel eftir hátarabjöllunum, það má meðal annars sjá þeim bregða fyrir á 40 til 50 ára gömlum myndum af þjóðhátíðarhöldum í Reykjavík,“ segir Finnbogi en hann bjargaði bjöllunum frá förgun fyrir nokkrum árum og hefur haft þær í garðinum hjá sér síðan. Finnbogi hefur verið í hópi fremstu mynd- listarmanna landsins um nokkurt skeið og einbeitt sér að hljóðtengdum innsetningum, til dæmis verkið Diabolus sem hann sýndi á Feneyjatvíæringnum 2001 sem fulltrúi Íslands. Hann segist þó aldrei hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera hljóðlista- maður. „Hver hugmynd og hvert verk hafa einfald- lega leitt mig að því næsta. Þetta er eins og að setja niður fræ sem verður að tré sem maður tekur afleggjari af og þegar yfir lýkur er kominn skógur. Svona er það með alla krea- tíva vinnu, þar sem hugmyndirnar skarast og tvístrast. Ég er bara myndlistarmaður með mikinn áhuga á hljóði og það hefur leitt mig á þennan stað, að reyna að hljóðtengja allt.“ Sýning Finnboga í Höggmyndagarðinum verður opnuð á laugardag klukkan 12. Dvalið í drauma- höll borgarstjóra Hljóðupptaka af nætursvefni Jóns Gnarr borgarstjóra verður leikin í Höggmyndagarðinum í sumar. Upptakan er hluti af hljóðskúlptúr Finnboga Péturssonar á sýningu sem verður opnuð á á laugardag. FINNBOGI PÉTURSSON MYNDLISTAMAÐUR Auk sýningar Finnboga verður sýning sænska myndlistarmannsins Pers Svensson opnuð hjá Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur klukkan 12 á laugardag. Sýningin nefnist „The Forces of Nature // Icelandic Document II“. Svensson er fæddur í Gautaborg í Svíþjóð árið 1965. Hann er gestalistamaður hjá SÍM og hefur unnið nýtt höggmynda- og hljóðverk í verkstæði Myndhöggvarafélagsins fyrir sýninguna. Í verkinu fjallar hann um náttúruöflin og geómetrísk form eða frumstæð hljóð úr náttúrunni. Verk Svenssons er unnið úr upptökum sem hann tók upp á ferð sinni um Íslandi í júlímánuði árið 1981. Það byggir á eldra verki Svensson, „The Iceland Document“, frá sama ári. Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina en sýningin stendur einungis yfir næstu helgi. FRUMSTÆÐ HLJÓÐ ÚR NÁTTÚRUNNI ➜ Hvernig sefur þessi maður á nótt- unni? Gestir geta komist að því í Högg- myndagarðinum við Nýlendugötu í sumar, jafnvel lagst í grasið og látið sig dreyma með borgarstjóranum. @ Harpa, Eldborg — 17. maí kr. 4.800 Verk eftir Christian Marclay Julia Wolfe Florent Ghys Christian Marclay Todd Reynolds Mira Calix Michael Gordon David Lang Jóhann Jóhannsson Tyondai Braxton Anna Clyne Nick Zammuto „ Það má bara enginn listunnandi láta þetta fram hjá sér fara“ —Curver Thoroddsen Tónleikarnir njóta stuðnings bandaríska sendiráðsins á Íslandi MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.