Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 48
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
H.S. - MBL
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STAR TREK 3D 5.20, 8, 10.40(P)
MAMA 8, 10.10
IRON MAN 3 3D 8, 10.40
LATIBÆR 6
OBLIVION 5.30
Empire Hollywood reporter
5%
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
STAR TREK KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
NUMBERS STATION KL. 8 16
MAMA KL. 8 - 10.15 16
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
LATIBÆR KL. 4 L
SCARY MOVIE KL. 6 14
OBLIVION KL. 10.10 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
MAMA KL. 8 - 10 16
NUMBERS STATION KL. 6 - 8 12
EVIL DEAD KL. 10 14
THE CALL KL. 6 16
NUMBERS STATION KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
PLACE BEYOND THE PINES KL. 6 - 9 12
EVIL DEAD KL. 10.10 18
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
IN MEMORIAM? (L) 23:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50
THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50
ON THE ROAD (L) 22:00
FUCK FOR FOREST (16) 18:00
FOR YOU NAKED (L) 20:00
ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR (L) 22:00
SLÓ Í GEGN Á ÞÝSKUM
KVIKMYNDADÖGUM
EFTIR
ÓMAR RAGNARSSON
IN MEMORIAM
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
BAKÞANKAR
Svavar
Hávarðssonar
FYRIR fáeinum dögum hlustaði ég á sögu
sem gerði mig bæði reiðan og dapran í
senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins
um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkr-
unarheimilisins Tjarnar á Þingeyri vegna
fjárskorts. Í stuttu máli þá stóð til að loka
heimilinu í sumar til að spara fáeinar
milljónir – og heimili er hérna lykil-
orðið. „Aðgerðin“ fólst einfaldlega í
því að rífa gamalt fólk út af heimili
sínu og setja það í geymslu á sjúkra-
húsi til þess að spara kerfinu vasa-
peninga. Ég ætla ekki að rekja þessa
sögu nákvæmlega – það hefur
þegar verið gert afburða vel
og með þeirri niðurstöðu að
það „fundust peningar“ sem
komu í veg fyrir fyrrnefnda
lokun. Því skal þó haldið til
haga að hér var ekki um eins-
dæmi að ræða.
HITT langar mig að nefna
og það er spurningin um
hvernig þessi hugmynd náði
upphaflega flugi. Hvernig
þróast samtal ráðamanna um
það hvernig eigi að brjóta á þeim grund-
vallarmannréttindum fólks að fá að vera
í friði á eigin heimili? Að ræna fólk því
mikilvægasta á þessu æviskeiði – nefni-
lega friðnum í sálinni. Mátuðu þessir góðu
menn hugmyndina við sjálfan sig? Lögðu
þeir í það að meta hvaða þýðingu eitt stutt
sumar getur raunverulega haft í þessu
samhengi? Það er mér til efs.
EN getur verið að þessi saga hafi mun
djúpstæðari merkingu en sést við fyrstu
sýn? Er hún ekki aðeins ein birtingar-
mynd mun víðtækara skeytingarleysis
okkar yngri í garð þeirra kynslóða sem eru
komnar að marklínunni?
ÞESSA dagana er okkur tíðrætt um for-
sendubrest og nauðsynlegar leiðréttingar
á skuldbindingum. Í einhverjum tilfellum
á það rétt á sér – þó að þau séu sennilega
miklu færri en sumir vilja vera láta. En
mitt í þeim skylmingum öllum, gætum við
þá sammælst um eitt. Að sýna þeim sem
ganga um eins og girðingarlykkjur eftir
erfiði síðustu áratuga tilhlýðilega virðingu.
Mér segir svo hugur um að þau eigi það
skilið – þótt ekki sé nú tekið dýpra í árinni.
Girðingarlykkjurnar
„Ég sé ekki eftir að hafa farið í
þessa aðgerð enda mikill léttir að
lifa ekki í skugga krabbameins-
ins lengur,“ segir Valdís Konráðs-
dóttir sem lét fjarlægja brjóst sín
fyrir einu og hálfu ári síðan eftir
að upp komst að hún væri með
genið BRCA1.
Í gær birtist grein eftir Angel-
inu Jolie í New York Times þar
sem leikkonan greindi frá því að
hún hefði látið fjarlægja á sér
bæði brjóstin í þeim tilgangi að
fyrirbyggja brjóstakrabbamein.
Jolie ákvað að opna sig um ferlið
til að miðla reynslu sinni til ann-
arra kvenna. Móðir Jolie lést úr
brjóstakrabbameini 56 ára gömul
eftir áratuga langa baráttu við
sjúkdóminn.
„Ég er með genið BRCA1, sem
stóreykur líkur á brjósta-og leg-
hálskrabbameini. Læknarnir töldu
að líkurnar á að ég fengi brjósta-
krabbamein væru 87 prósent og
líkurnar á leghálskrabbameini
væru um 50 prósent,“ skrifar Jolie
en hún fór í fyrstu aðgerðina þann
2. febrúar síðastliðinn. Við tók
þriggja mánaða ferli með þremur
stórum aðgerðum en sú síðasta var
í apríl.
Saga Valdísar svipar til Jolie.
Valdís fór í blóðprufu eftir að
móðir hennar hafði fengið brjósta-
krabbamein tvisvar sinnum. Hún
var ein af systkinum sínum sem
greindist með BRCA1-genið og
tók þá við aukið eftirlit. „Mér var
strax greint frá því að brjóstnám
væri möguleiki en ég lét eftir-
litið duga fyrst. En það tók á að
fara í skoðun á sex mánaða fresti
og bíða eftir niðurstöðum. Þegar
móðir mín greinist með meinvörp
í beinum, þrátt fyrir mikið eftirlit,
blasti raunveruleikinn við,“ segir
Valdís sem vildi ekki sitja og bíða
eftir krabbameininu. „Mig létti
rosalega eftir aðgerðirnar. Auð-
vitað er þetta smá mál, bæði lík-
Vildu ekki sitja og
bíða eft ir krabbameini
Leikkonan Angelina Jolie ritaði grein í New York Times í gær þar sem hún
greindi frá því að hafa fj arlægt bæði brjóstin fyrr á árinu til að fyrirbyggja
brjósta krabbamein. Valdís Konráðsdóttir fór í brjóstnám af sömu ástæðu fyrir
einu og hálfu ári síðan.
OPNAÐI SIG
Í NEW YORK
TIMES Grein
Angelinu Jolie
sem birtist í New
York Times í gær
vakti athygli en
þar sagðist hún
hafa látið fjarlæg-
ja bæði brjóst sín
til að fyrir byggja
brjóstakrabba-
mein. Leikkonan
fræga fór í þrjár
aðgerðir og sú
síðasta var núna í
apríl.
NORDICPHOTOS/GETTY
amlega og andlega, en það skiptir
höfuðmáli að hafa góðan stuðning
og húmorinn að vopni. Ég er mjög
ánægð með útkomuna og skamm-
ast mín ekki að fara í sund.“ Með
aðgerðunum minnkaði Jolie lík-
urnar á brjóstakrabbameini frá
87 prósentum niður í 5. Hún hrós-
ar maka sínum, Brad Pitt, fyrir
að hafa staðið þétt við bakið á sér
meðan á ferlinu stóð en hann var
viðstaddur allar aðgerðirnar. „Við
finnum öll til vanmáttar þegar við
heyrum orðið krabbamein. Í dag
er hins vegar hægt að taka blóð-
prufu og sjá hverjar líkurnar eru
á brjósta-og leghálskrabbameini.“
Bataferlið hjá Valdísi gekk vel
en meðal annars voru geirvörtur
myndaðar úr eyrnasneplunum og
með náttúrulegu húðflúri. „Við
erum nokkrar sem höfum farið
í fyrirbyggjandi brjóstnám sem
erum að velta fyrir okkur að búa
til samtök. Það skiptir miklu máli
fyrir þær konur sem greinast með
þetta erfðagen að fá upplýsingar
frá konum sem hafa gengið í gegn-
um þetta. Það er mjög gott að þetta
sé komið í umræðuna.“