Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 42
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Vegna stærðar blaðsins á morgun, fimmtudag,
verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi.
Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í
fimmtudagsblaðið færist því fram til kl. 13.30.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
UNNUR JÓNSDÓTTIR
Hjallabraut 21, Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 8. maí. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
17. maí kl. 15.00.
Beatrice Helga Anna Marie
Cathrine Ann Paul Jón
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Elskuleg móðir okkar,
HREFNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Stóra-Klofa,
lést á uppstigningardag 9. maí. Jarðarförin
fer fram frá Skarðskirkju í Landssveit
laugardaginn 18. maí kl. 14.00.
Kristján Árnason og Inger Nielsen
Ruth Árnadóttir og Grétar N. Skarphéðinsson
Okkar ástkæra eiginkona, mamma,
tengdamamma, amma, langamma og systir,
KRISTÍN HERMANNSDÓTTIR
Langagerði 128,
andaðist í faðmi fjölskyldunnar 12. maí
að Sunnuhlíð. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 17. maí kl. 13.00.
Sæmundur Bæringsson
Bæring Sæmundsson Ragnhildur Elín Ágústsdóttir
Ágústa Ingibjörg Sæmundsdóttir Mark E. Wiles
Geir Sæmundsson Marianne Culbert
Eydís Björg Sæmundsdóttir Hólmgeir Hólmgeirsson
Helga Hermannsdóttir Sævar Friðþjófsson
börn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KARÍTAS JÓNSDÓTTIR
Brekkugötu 54, Þingeyri,
verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju
laugardaginn 18. maí kl. 14.00.
Ragnar Kjaran Elísson María Kristjánsdóttir
Hanna Laufey Elísdóttir Bjarki Laxdal
Ósk Elísdóttir Jóhann Dalberg Sverrisson
Friðfinnur Elísson Guðrún Fjóla Kristjánsdóttir
Þröstur Kjaran Elísson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
TUMI TICH DU
lést á Droplaugarstöðum 3. maí. Útförin fer
fram frá Grafarvogskirkju við Fjörgyn, 112
Reykjavík fimmtudaginn 16. maí kl. 10.00.
Cheg Wushueng Ywrée
Áki Kim Feng Yu Dísa Chau Buu Truong
Óli Lin Kam Yu Anna Yung Yueh Lin
Xiuyun Yu Chuantong Wu
Ása Mei Ling Yu
Árni Hao Vinh Yu
Ásgeir Huy Vinh Yu
Ari Luong Vinh Yu
Wing Wa Yu
Wing Kit Yu
Deyi Wu Anni Li
Yanzhen Wu Bingshun Chen
Yanping Wu
Heitung Huang
Yuwei Chen
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir, afi og bróðir,
ÁRSÆLL GUÐMUNDSSON
frá Bjargi, Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, laugardaginn
11. maí. Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju,
föstudaginn 17. maí kl. 13.00.
Karen Olga Ársælsdóttir Einar Þór Egilsson
Daníel Máni Einarsson
Ellen María Einarsdóttir
Aðalsteinn Guðmundsson
Okkar ástkæra,
SIGRID VALTINGOJER
lést miðvikudaginn 8. maí í Berlín.
Minningarathöfn hennar á Íslandi verður
tilkynnt síðar.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Birgit Guðjónsdóttir
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
dóttir, systir, amma og langamma,
ANDREA ÞÓRDÍS
SIGURÐARDÓTTIR
Þórðarsveig 5,
kvaddi okkur að kvöldi uppstigningardags
9. maí 2013 á líknardeild Landspítalans,
Kópavogi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sigurður Óskar Klein Leona Klein
Jens Kristján Klein Brynhild Leivsdóttir Klein
Elías Erlingsson Anný Gréta Þorgeirsdóttir
Þórgnýr Thoroddsen Rúna Vala Þorgrímsdóttir
Elín Ása Guðmundsdóttir
Guðmundur Hróbjartur Sigurðsson Susanne Sigurdsson
og fjölskyldur.
Eiginkona mín, fósturmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
AÐALSTEINA HELGA
MAGNÚSDÓTTIR
frá Grund í Eyjafirði,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð 7. maí verður jarðsungin frá
Grundarkirkju þriðjudaginn 21. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Gísli Björnsson
Bjarni Aðalsteinsson
Hildur Arna Grétarsdóttir
Margrét Ragna Bjarnadóttir Lauritzen
Sigríður Birna Bjarnadóttir
Helga Aðalbjörg Bjarnadóttir
Magnús Ingvar Bjarnason
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður, afa og langafa,
GUNNARS ÞORBERGS
HANNESSONAR
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Grund fyrir hlýju og alúð.
Guðrún Sigurðardóttir
Sigurður Gunnarsson Ólöf G. Ásbjörnsdóttir
Helga Árnadóttir
Óli Ragnar Gunnarsson Ragnheiður Júlíusdóttir
Heimir Gunnarsson Ragnhildur Birgisdóttir
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför sonar okkar, bróður, barnabarns,
uppeldisbróður og frænda,
SIGURÐAR INGA FOLDAR
SIGURÐSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Anný Helena Hermansen Kolbeinn Hreinsson
Sigurður Stefán Foldar Ómarsson
Bjarni Sigurðsson
Sindri Már Kolbeinsson
Kolbeinn Þór Kolbeinsson
Kristín Birna Kolbeinsdóttir
Auður Erla Högnadóttir Ólafur Sigurþórsson
uppeldissystkini, frændsystkini og aðrir aðstandendur.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR ÞÓRÐUR SÆMUNDSSON
rafvirki,
Mávahlíð 33,
sem lést miðvikudaginn 8. maí, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn
16. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á félag hjartasjúklinga, Hjartaheill.
Jónína Sigurðardóttir
Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir
Sigurður H. Ólafsson Guðfinna Hákonardóttir
Hafdís Ólafsdóttir Guðmundur Már Ragnarsson
og barnabörn.
Sigurður Yngvi Kristinsson er nýráð-
inn prófessor við læknadeild Háskóla
Íslands og sá yngsti sem gegnir stöðu
prófessors við deildina í dag.
Sigurður Yngvi lauk námi við lækna-
deild HÍ árið 2000 og flutti í kjölfarið
til Svíþjóðar þar sem hann stundaði
sérnám og doktorsnám í blóðsjúk-
dómum við hina virtu Karolinska-
stofnun í Stokkhólmi. Hann segir
dvölina í Svíþjóð hafa verið góða og
ber háskólasjúkrahúsinu vel söguna.
„Þetta er einn besti háskóli heims
og þar eru mörg og góð tækifæri til
þess að stunda rannsóknir. Mér og
fjölskyldu minni leið mjög vel í Stokk-
hólmi, það er gott að ala upp börn þar
og Svíar hugsa vel um mann,“ segir
Sigurður Yngvi. Hann og kona hans
eiga saman þrjú börn á aldrinum fimm
til fjórtán ára. Fjölskyldan flutti aftur
til Íslands í júlí í fyrra og hóf Sigurður
Yngvi störf við HÍ um haustið. „Við
sjáum alls ekki eftir því að hafa flutt
aftur heim. Líklega toguðu fjölskyldan,
vinirnir og landið í mann.“
Sigurður Yngvi sinnir fyrst og
fremst rannsóknarstarfi við háskól-
ann ásamt hópi doktorsnema, en er
einnig sérfræðingur í blóðsjúk dómum
á Landspítalanum. Hann og teymi
hans rannsaka tiltölulega sjaldgæfan
sjúkdóm er nefnist mergæxli, en hér á
landi greinast um 20 manns með sjúk-
dóminn á ári.
„Það er til forstig mergæxlis sem
er heldur algengt og margir eru með
þetta forstig án þess að vita af því. Ég
nota gögn um þetta forstig talsvert
mikið til að skilja betur fylgikvilla og
horfur sjúkdómsins. Þó að engin lækn-
ing sé til við sjúkdómnum eru lífs líkur
sjúklinga miklu betri núna en þær
voru fyrir nokkrum árum. Planið er
að byggja upp öflugan rannsóknarhóp
í kringum þessar rannsóknir. Þetta
verður mitt ævistarf,“ segir Sigurður
sem hefur fengið fjölda styrkja til að
geta sinnt þessu rannsóknarstarfi
áfram.
Ungi læknaprófessorinn fyllir 40
árin á morgun og hyggst fagna stór-
afmælinu með fjölskyldu sinni og
vinum. „Ég hugsa að ég hitti nokkra
vini í hádegismat og eyði svo kvöldinu
með fjölskyldu minni. Ég held svo gott
afmælispartý seinna í sumar,“ segir
hann að lokum. sara@frettabladid.is
Yngsti prófessorinn við
læknadeild HÍ
Sigurður Yngvi Kristinsson er yngsti prófessorinn við læknadeild Háskóla Íslands í dag.
Hann fagnar fertugsafmæli sínu á morgun með fj ölskyldu og vinum.
YNGSTI PRÓFESSORINN Í LÆKNADEILD
Sigurður Yngvi Kristinsson er yngsti
prófessor læknadeildar HÍ. Hann stundar
meðal annars rannsóknir á mergæxli við
skólann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN