Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 12

Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 12
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Nýtt lyf sem verkar bæði gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu Nýtt! Borgardekk ÍSBRJÓTUR Kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn kom til Íslands fyrir nokkru. Sendiherrann segir Bandaríkin ekki hafa tekið afstöðu til áheyrnaraðildar Kínverja að heimskautaráðinu. „Fyrst og fremst er mark- miðið að huga að hagsmun- um heimskautaríkjanna. Ég held að það séu mikil tæki- færi fyrir hendi,“ segir Luis E. Arreaga, sendi- herra Bandaríkjanna á Íslandi. Bandarísk stjórn- völd kynntu síðastliðinn föstudag stefnumörkun sína í málefnum norðurslóða. „Við höfum farið yfir forgangs- málin og ákváðum að setja þrennt í forgang; öryggismál, umhverfis- mál og aukna samvinnu á svæðinu. Í hnotskurn erum við að finna það sem verður mikilvægast á næstu tíu árum og við munum vinna að. Nú höfum við grunninn en nákvæm atriði verða útfærð á næstu mán- uðum. Hugmyndin er að nákvæm stefna verði tilbúin í sumar,“ segir Arreaga. Getum unnið saman Hann segist telja að á ýmsum sviðum í málefnum norðurslóða muni Bandaríkjamenn og Íslend- ingar geta unnið saman. „Við erum nú þegar í mikilli samvinnu. Þar má nefna Norðurskautsráðið, þar sem Ísland og Bandaríkin hafa verið bandamenn í fjölda ára. Ríkin hafa lengi átt í nánu sam- starfi og ég held að norðurskautið gefi okkur gott tækifæri til að dýpka þetta samstarf. Þetta á við í öllu tilliti, hvort sem það er sam- starf í vísindum, í friðarmálum og stöðugleika eða í alþjóðlegri samvinnu, ríkin hafa alltaf unnið náið saman.“ Arreaga segir mikla samvinnu nú þegar í gangi, meðal annars vinnu við áætlun um staðsetningar- kerfi fyrir skip og flugvélar, sem eigi að geta nýst öllum heimskautaríkjum. „Það er líka lítt þekkt staðreynd til dæmis að bandaríski vís- indasjóðurinn hefur varið yfir 800 milljónum hér síðustu tvo áratugi.“ Ekki meiri hernaðarumsvif Meðal þess sem Bandaríkjamenn setja í forgang í stefnu sinni eru öryggismál á norðurslóðum. Í stefnunni kemur fram að auð- velda eigi bæði skipum og flug- vélum hersins að fara um svæðið. Arreaga segist ekki telja að bandaríski herinn muni auka umsvif sín á Íslandi af þess- um sökum, nema í öryggismál- um, gæslu og björgun, málum sem ekki tengjast hernaði beint. Öryggismálin séu sett á oddinn. „Fyrsta formlega samkomulagið í heimskautaráðinu var um þessi mál og þetta er svið sem ríkin tvö hafa unnið saman við áður. Þegar bandaríski herinn var með herstöð hér unnu okkar menn náið með Íslendingum í björgunarmálum. Íslendingar hafa lýst yfir áhuga á að koma upp einhvers konar öryggismiðstöð, það er enn verið að vinna að þeim málum,“ segir Arreaga og leggur áherslu á að ekki verði hernaðarumsvif. „Heim- skautaráðið hefur passað upp á að viðhalda friði og stöðugleika.“ Hafa ekki tekið afstöðu til Kína Nokkur ríki hafa lýst yfir áhuga á því að fá áheyrnaraðild að heim- skautaráðinu. Þeirra á meðal er Kína. „Bandaríkin hafa hugsað mikið um þessar umsóknir og við erum tilbúin til að ræða þessi mál en við höfum ekki tekið neina afstöðu. Við viljum byrja á að setjast niður með samstarfsríkj- um okkar í ráðinu,“ segir Arreaga um málið. Sendiherrann segist mjög ánægður með að stefnan sé komin fram. „Kollegar okkar á Norður- löndunum og ekki síst Íslandi hafa sagt okkur að við höfum ekki veitt norðurskautinu nægi- lega athygli. Ég held að þetta sé ekki að við höfum ekki veitt þessu athygli en við höfðum ekki sest niður og rætt hvar við stöndum í þessum málum. Það er það sem hefur verið gert á undanförnum mánuðum.“ thorunn@frettabladid.is Tækifæri til dýpra samstarfs ríkjanna Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi segir mikla samvinnu fram undan milli ríkjanna í málefnum norðurslóða. Stefna Bandaríkjanna var kynnt í síðustu viku. LUIS E. ARREAGA „Við bíðum eftir því að ný ríkisstjórn verði tilkynnt hér og þá erum við tilbúin að halda áfram. Nýjar ríkis- stjórnir bera alltaf með sér breytingar. Þessir tveir flokkar sem eru að reyna að mynda ríkisstjórn hafa verið nánir bandamenn okkar í marga áratugi svo við hlökkum til að hefja samstarf við þá á ný og vinna við heilan helling af málum sem skipta bæði lönd máli,“ segir sendiherrann. Bíður eftir myndun ríkisstjórnar hér

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.