Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 12
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Nýtt lyf sem verkar bæði gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Nýtt!
Borgardekk
ÍSBRJÓTUR Kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn kom til Íslands fyrir nokkru. Sendiherrann segir Bandaríkin ekki hafa tekið
afstöðu til áheyrnaraðildar Kínverja að heimskautaráðinu.
„Fyrst og fremst er mark-
miðið að huga að hagsmun-
um heimskautaríkjanna. Ég
held að það séu mikil tæki-
færi fyrir hendi,“ segir
Luis E. Arreaga, sendi-
herra Bandaríkjanna á
Íslandi. Bandarísk stjórn-
völd kynntu síðastliðinn
föstudag stefnumörkun
sína í málefnum norðurslóða.
„Við höfum farið yfir forgangs-
málin og ákváðum að setja þrennt
í forgang; öryggismál, umhverfis-
mál og aukna samvinnu á svæðinu.
Í hnotskurn erum við að finna það
sem verður mikilvægast á næstu
tíu árum og við munum vinna að.
Nú höfum við grunninn en nákvæm
atriði verða útfærð á næstu mán-
uðum. Hugmyndin er að nákvæm
stefna verði tilbúin í sumar,“ segir
Arreaga.
Getum unnið saman
Hann segist telja að á ýmsum
sviðum í málefnum norðurslóða
muni Bandaríkjamenn og Íslend-
ingar geta unnið saman. „Við erum
nú þegar í mikilli samvinnu. Þar
má nefna Norðurskautsráðið, þar
sem Ísland og Bandaríkin hafa
verið bandamenn í fjölda ára.
Ríkin hafa lengi átt í nánu sam-
starfi og ég held að norðurskautið
gefi okkur gott tækifæri til að
dýpka þetta samstarf. Þetta á við
í öllu tilliti, hvort sem það er sam-
starf í vísindum, í friðarmálum
og stöðugleika eða í alþjóðlegri
samvinnu, ríkin hafa alltaf unnið
náið saman.“
Arreaga segir mikla
samvinnu nú þegar í gangi,
meðal annars vinnu við
áætlun um staðsetningar-
kerfi fyrir skip og flugvélar,
sem eigi að geta nýst öllum
heimskautaríkjum. „Það er
líka lítt þekkt staðreynd til
dæmis að bandaríski vís-
indasjóðurinn hefur varið
yfir 800 milljónum hér síðustu tvo
áratugi.“
Ekki meiri hernaðarumsvif
Meðal þess sem Bandaríkjamenn
setja í forgang í stefnu sinni eru
öryggismál á norðurslóðum. Í
stefnunni kemur fram að auð-
velda eigi bæði skipum og flug-
vélum hersins að fara um svæðið.
Arreaga segist ekki telja að
bandaríski herinn muni auka
umsvif sín á Íslandi af þess-
um sökum, nema í öryggismál-
um, gæslu og björgun, málum
sem ekki tengjast hernaði beint.
Öryggismálin séu sett á oddinn.
„Fyrsta formlega samkomulagið
í heimskautaráðinu var um þessi
mál og þetta er svið sem ríkin tvö
hafa unnið saman við áður. Þegar
bandaríski herinn var með herstöð
hér unnu okkar menn náið með
Íslendingum í björgunarmálum.
Íslendingar hafa lýst yfir áhuga
á að koma upp einhvers konar
öryggismiðstöð, það er enn verið
að vinna að þeim málum,“ segir
Arreaga og leggur áherslu á að
ekki verði hernaðarumsvif. „Heim-
skautaráðið hefur passað upp á að
viðhalda friði og stöðugleika.“
Hafa ekki tekið afstöðu til Kína
Nokkur ríki hafa lýst yfir áhuga á
því að fá áheyrnaraðild að heim-
skautaráðinu. Þeirra á meðal er
Kína. „Bandaríkin hafa hugsað
mikið um þessar umsóknir og
við erum tilbúin til að ræða þessi
mál en við höfum ekki tekið neina
afstöðu. Við viljum byrja á að
setjast niður með samstarfsríkj-
um okkar í ráðinu,“ segir Arreaga
um málið.
Sendiherrann segist mjög
ánægður með að stefnan sé komin
fram. „Kollegar okkar á Norður-
löndunum og ekki síst Íslandi
hafa sagt okkur að við höfum
ekki veitt norðurskautinu nægi-
lega athygli. Ég held að þetta sé
ekki að við höfum ekki veitt þessu
athygli en við höfðum ekki sest
niður og rætt hvar við stöndum
í þessum málum. Það er það sem
hefur verið gert á undanförnum
mánuðum.“
thorunn@frettabladid.is
Tækifæri til dýpra
samstarfs ríkjanna
Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi segir mikla samvinnu fram undan milli
ríkjanna í málefnum norðurslóða. Stefna Bandaríkjanna var kynnt í síðustu viku.
LUIS E. ARREAGA
„Við bíðum eftir því að ný ríkisstjórn
verði tilkynnt hér og þá erum við
tilbúin að halda áfram. Nýjar ríkis-
stjórnir bera alltaf með sér breytingar.
Þessir tveir flokkar sem eru að reyna
að mynda ríkisstjórn hafa verið nánir
bandamenn okkar í marga áratugi svo
við hlökkum til að hefja samstarf við
þá á ný og vinna við heilan helling af
málum sem skipta bæði lönd máli,“
segir sendiherrann.
Bíður eftir myndun
ríkisstjórnar hér