Fréttablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 12
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
DANMÖRK Fimmtán ára danskar stúlkur ættu að geta
tekið sjálfar ákvörðun um það hvort þær láti eyða
fóstri. Þetta er skoðun Etisk råd, danskrar sjálfs-
eignarstofnunar sem fjallar um ýmisleg siðferðileg
álitaefni, og segir frá í Politiken.
Rök stofnunarinnar eru þau að fimmtán ára ein-
staklingar eru, lögum samkvæmt, þess umkomnir
að taka ákvörðun um hvort þeir gangist undir meiri-
háttar læknisaðgerðir, og hið sama ætti því að eiga
við um fóstureyðingar.
Samkvæmt núgildandi lögum þurfa stúlkur undir
átján ára aldri að fá samþykki frá forráðamönnum
til að fara í fóstureyðingu.
Talsmaður Jafnaðarmannaflokksins í heilbrigðis-
málum vildi ekki tjá sig um málið áður en það væri
rætt innan flokksins. Hins vegar eru Róttæki flokk-
urinn og Venstre, sem eru frjálslyndir flokkar,
fylgjandi tillögunni, en Íhaldsflokkurinn og Danski
þjóðarflokkurinn andsnúnir því að breyta lögum í
þessa átt.
Á Íslandi miða lög við að stúlkur sextán ára og
eldri þurfi ekki samþykki foreldra eða forráða-
manna til að gangast undir fóstureyðingu. - þj
Sjálfseignarstofnun leggur til breytingar á heilbrigðislögum í Danmörku:
15 ára stúlkur fái að ráða fóstureyðingu
LAND-
SPÍTALINN
Dönsk sjálfs-
eignarstofnun
um siðferðileg
álitaefni telur
einráðið að
fimmtán ára
stúlkur fái að
taka sjálfstæða
ákvörðun um
fóstureyðingar.
MYND/RIGSHOSPITALET
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
gefið út ákæru á hendur tveimur
Akureyringum, 26 ára manni og
29 ára konu, fyrir vopnað rán og
sérstaklega hættulega líkamsárás
í júní 2012.
Í ákærunni er þeim gefið að sök
að hafa sammælst um það 3. júní
í fyrra að fremja rán í Akureyrar-
a póteki í verslunarmiðstöðinni
Kaupangi.
Þau hafi farið grímuklædd og
vopnuð bæði hnífum og kúbeini
inn um opnar dyr á starfsmanna-
inngangi apóteksins og lent þar
í átökum við tæplega fertugan
starfsmann.
Í ákærunni segir að konan hafi
hrint starfsmanninum þegar hann
reyndi að halda félaga hennar, sem
heitir Alexander Jóhannesson og
er margdæmdur ofbeldismaður.
Alexander er þá sagður hafa
slegið starfsmanninn tvisvar til
þrisvar sinnum með kúbeininu,
þar af einu sinni í höfuðið, hrifsað
með sér peninga sem lágu á borði
og í kjölfarið hafi þau bæði stokkið
á flótta. Starfsmaðurinn hlaut
bólgur á hnakka og eymsli á hálsi.
Jafnframt er Alexander
ákærður fyrir tvö smávægileg
fíkniefnabrot. Ákæran var gefin út
síðasta dag maímánaðar og verður
þingfest í dag. stigur@frettabladid.is
Ákærð fyrir að ræna
apótek með kúbeini
Margdæmdur ofbeldismaður barði apóteksstarfsmann með kúbeini í fyrra og
rændi peningum ásamt vinkonu sinni, að því er segir í ákæru. Sérsveitarmenn fóru
í Grímsey sumarið 2008 og handtóku hann eftir að hann hótaði sjóstangveiðifólki.
HASAR Í GRÍMSEY Sérsveitarmenn yfirbuguðu Alexander í Grímsey fyrir fimm
árum. Hann hafði sveiflað hnífi og sleggju og haft í hótunum við sjóstangveiðifólk.
Alexander Jóhannesson á langan sakaferil að baki sem hófst þegar hann
var átján og var sektaður fyrir fíkniefnabrot. Síðan hefur hann hlotið
nokkra dóma fyrir ofbeldisverk, auðgunar- og fíkniefnabrot.
Í júlí 2008 komst hann í fréttir þegar hann gekk berserksgang vopnaður
hníf og sleggju á fögnuði í tengslum við árlega sjóstangveiðihátíð í
Grímsey, hafði í hótunum við fólk og veittist að sérsveitarmönnum sem
þangað voru komnir til að handtaka hann. Fyrir það fékk hann fjögurra
mánaða fangelsisdóm.
Mánuði áður hafði hann fengið 20 mánaða dóm fyrir að stinga þrjá
menn með hníf á Akureyri. Við ákvörðun þeirrar refsingar var tekið tillit til
ungs aldurs og þess að hann var byrjaður að snúa lífi sínu á réttan kjöl.
www.volkswagen.is
Nýr Golf kostar frá
3.390.000 kr.
Komdu og reynsluaktu bíl ársins
Golf Trendline, 1.4 TSI, beinskiptur,
122 hestöfl.
Nýr Golf.
Evrópu- og heimsmeistari
Volkswagen Golf var kosinn bíll ársins í
Evrópu 2013 á bílasýningunni í Genf og 66
bílablaðamenn hvaðanæva að útnefndu
hann bíl ársins í heiminum á bílasýningunni
í New York.
EFNAHAGSMÁL Hækkun íbúða-
verðs á höfuðborgarsvæðinu
í maí hefur ekki verið meiri í
einum mánuði síðan í júní í fyrra.
Þetta kemur fram í umfjöllun
Greiningar Íslandsbanka.
Hækkunin nam 1,3 prósentum
í mánuðinum og er sögð skýrast
að mestu af mikilli hækkun á
verði íbúða í fjölbýli, en þær hafi
hækkað um 1,7 prósent milli
mánaða. „Verð sérbýla hækkaði
hins vegar um 0,1 prósent á milli
mánaða.“
Síðustu 12 mánuði er íbúðaverð
á höfuðborgarsvæðinu sagt hafa
hækkað um 6,5 prósent, en um
3,2 prósent að raunvirði. - óká
Íbúðaverð hækkar í borginni:
Mesta hækkun
frá fyrrasumri
REYKJAVÍK Greining Íslandsbanka segir
hraða í verðhækkun húsnæðis hafa
aukist að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AFGANISTAN, AP Stjórnvöld í
Afganistan frestuðu í gær við-
ræðum við Bandaríkin um fram-
tíðarfyrirkomulag samstarfs
ríkjanna í
öryggismálum.
„Í ljósi þess
að mótsagnir
eru milli yfir-
lýsinga og efnda
Bandaríkjanna
varðandi friðar-
ferlið,“ segir í
tilkynningu frá
Hamid Karzai forseta, „hefur
afganska stjórnin frestað tví-
hliða viðræðum um öryggismál
milli Afganistans og Banda-
ríkjanna.“
Ástæða þess er að Bandaríkin
tilkynntu í gær um tvíhliða við-
ræður við talibana á næstu
dögum, áður en Afganar yrðu
kallaðir að borðinu. Karzai hafði
skömmu áður boðað til viðræðna
við talibana, en nú er óvíst
hvenær þær fara fram. - þj
Karzai forseti Afganistans:
Svekktur út í
Bandaríkin
HAMID KARZAI
➜ Danskar stúlkur yngri en átján ára gamlar
þurfa samþykki foreldra fyrir fóstureyðingu
en á Íslandi er miðað við 16 ára aldur.
ÍTALÍA Hönnuðirnir Domenico
Dolce og Stefano Gabbana hafa
verið sakfelldir fyrir skattsvik af
dómstóli í Mílanó á Ítalíu.
Samkvæmt dómnum láðist
þeim félögum að telja milljarð
evra til skatts, en það eru rúmar
160 milljónir króna. Dolce og
Gabbana neituðu ásökununum.
Fyrirtækið Dolce&Gabbana
var stofnað árið 1985. Merkið
er þekkt um allan heim og er
hagnaður af fyrirtækinu yfir
milljarður á ári.
Skattsvikamál á Ítalíu:
Dolce og Gabb-
ana sakfelldir
ÖRYGGISMÁL
Kjarnorkuvopnum fækki
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, kallaði í gær eftir því að
Bandaríkjamenn og Rússar fækki
kjarnorkuvopnum sínum enn
frekar. Sagðist hann viss um að öryggi
Bandaríkjanna yrði ekki ógnað þótt
kjarnorkuvopnum landsins yrði
fækkað um þriðjung. Þá sagði Obama
að hann myndi leita eftir viðræðum
við Rússa um málið auk þess sem
hann myndi hvetja önnur ríki Evrópu
sem eiga kjarnorkuvopn til að
minnka vopnabúr sitt.
➜ Stakk þrjá og gekk berserksgang í Grímsey