Fréttablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSINGPlastiðnaður FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 20132
Sigurplast er gamalgróið og leiðandi umbúðafyrirtæki sem hefur starfað hérlendis í rúmlega hálfa öld. Fyrir-
tækið hefur alla tíð boðið viðskiptavinum
sínum upp á fjölbreyttar heildarlausnir
í umbúðamálum, hönnun og dreifingu.
Fyrir nokkrum árum skipti fyrirtækið
um eigendur og í dag er framkvæmda-
stjóri þess Ragnar I. Pétursson. Hann
segir rekstur félagsins hafa alla tíð gengið
vel þótt smá hiksti hafi komið á reksturinn
kringum hrunið. „Meginstarfsemi Sigur-
plast hefur alla tíð verið í framleiðslu og
innflutningi á plastumbúðalausnum, þá
helst fyrir matvælaframleiðendur hér-
lendis en einnig fyrir fjölda smærri aðila.
Við höfum meðal annars framleitt plast-
umbúðir fyrir f lest helstu matvælafyrir-
tæki landsins eins og Vogabæ, Gunnars
og Kjarnavörur. Sigurplast hefur einnig
framleitt og merkt umbúðir utan um hið
fræga SS pylsusinnep sem allir Íslendingar
þekkja auðvitað og nánast allar grillsósur
sem landinn kaupir yfir sumarið.“
Fyrir utan matvælageirann framleiðir
Sigurplast einnig umbúðir fyrir lyfjaiðn-
aðinn hérlendis og má þar meðal annars
nefna fyrirtæki eins og Lýsi og Actavis.
„Svo má ekki gleyma einum af elstu við-
skiptavinum Sigurplasts sem er Mjöll Frigg
en við höfum séð um umbúðaframleiðslu
fyrir hreinlætisvörur þeirra í marga ára-
tugi.“ Plastpokar eru ein af þeim lausn-
um sem Sigurplast framleiðir en um er að
ræða poka úr efninu sellófan sem notaðir
eru sem gjafaumbúðir en einnig sem um-
búðir utan um íslensku páskaeggin frá
Nóa Síríus.
Reynslumiklir starfsmenn
Framleiðsla fyrirtækisins fer fram í Mos-
fellsbæ en þangað flutti fyrirtækið starfs-
semi sína árið 1990. „Fyrir utan eigin
framleiðslu er innflutningur fyrirtækisins
mikill og er stöðugt að aukast. Hann nálg-
ast nú um þriðjung veltu fyrirtækisins.
Einnig má nefna að við flytjum inn mikið
magn tappa sem notaðir eru á ýmsar gerðir
af flöskum, auk þess að flytja inn allt frá 30
lítra fötum niður í 150 millilítra fötur en
salan á þeim eykst stöðugt.“
Starfsfólk Sigurplasts hefur flest unnið
hjá félaginu í mörg ár og jafnvel áratugi í
sumum tilvika. Sú mikla reynsla skilar sér
að sögn Ragnars í mikilli þekkingu á plast-
umbúðum bæði fyrir matvöru og efna-
fyrirtæki. „Svo má geta þess Sigurplast
endur nýtir allt hráefni sem fellur til við
framleiðsluna og við hendum engum úr-
gangi. Úr þessu hráefni hafa til dæmis verið
framleiddar kúlur sem notaðar eru í gólf-
plötur í stórum byggingum eins og tónlist-
ar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu.“
Nánari upplýsingar um vörur og þjónustu
Sigurplasts má finna á www.sigurplast.is.
Heildarlausnir í hálfa öld
Þegar kemur að framleiðslu og innflutningi plastumbúða er Sigurplast í fremstu röð. Fyrirtækið hefur þjónað landsmönnum í
rúmlega hálfa öld með góðum árangri. Flestir starfsmenn Sigurplasts hafa starfað hjá fyrirtækinu í áratugi og búa yfir mikilli
þekkingu sem nýtist viðskiptavinum vel.
Sigurplast býður viðskiptavinum upp á fjölbreyttar heildarlausnir í umbúðamálum, hönnun og dreifingu. MYND/VALLI
Pokar og
plast fá annað
hlutverk
Plastpoka og plastílát ýmiss konar má nota til margvíslegra
hluta þegar hefðbundnu hlutverki þeirra lýkur. Poka má til
að mynda klippa niður í lengjur og hekla úr þeim töskur
og mottur og flöskur og brúsar geta breyst í hirslur undir
smáhluti og jafnvel í lítil gróðurhús. Á Pinterest má finna
óteljandi hugmyndir að sniðugum hlutum úr gömlu plasti.
Gamall djúsbrúsi verður
að garðkönnu með lítilli
fyrirhöfn.
Þeir sem eru
slungnir með
heklunálina
geta snarað
fram inniskóm
úr gömlum
plastpokum.
Sjálfvökvandi blómapottar úr flöskum sem
búið er að skera í tvennt og stinga stútnum
ofan í botninn.
Stórsniðugt fóður-
búr fyrir fugla úr
plastflösku og tré-
sleifum sem hengja
má upp í tré.
Afskorin gos-
flaska getur
þjónað hlutverki
gróðurhúss utan
um græna sprota.