Fréttablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 58
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT VEIÐI | 46
Laxveiðin fer mjög vel af stað
víðs vegar um land. Veiðimenn
eru einróma um að laxinn sé vel
haldinn og greinilegt að hann
hafi haft nóg æti í sjónum. Í veið-
inni er venjan sú að tveggja ára
lax, lax sem hefur verið tvö ár
í sjó, skili sér fyrst í árnar. Það
hefur hann gert í ár en það sem
vakið hefur sérstaka athygli nú
er að smálaxinn er þegar farinn
að ganga og hann virðist vænni
en í fyrra. Þótt allt of snemmt
sé að spá fyrir um veiði sumarið
lofar þessi byrjun svo sannar-
lega góðu.
Óskabyrjun
Í Þverá, sem opnaði 12. júní, voru
í fyrrakvöld komnir 40 laxar á
land, þar af kom 21 í opnuninni.
Í Kjarrá, sem opnaði 15. júní, eru
komnir 54 laxar á land.
„Þetta er óskabyrjun,“ segir
Ingólfur Ásgeirsson. „Þetta er
einhver besta opnun í Þverá í
manna minnum. Að stærstum
hluta er þetta fallegur tveggja
ára lax sem er mjög vel haldinn
og smálaxinn sem hefur líka verið
að skila sér sem er mjög jákvætt.
Við verðum líka að átta okkur á
því að við erum á milli strauma
– það verður ekki stórstreymt
fyrr en eftir helgi. Vegna þessa
er mjög merkilegt að við séum að
sjá svona sterkar göngur strax.“
„Ástandið á stofninum virðist
vera eins og best verður á kosið
og það má segja að það sé staðan
úti um allt land. Veiðimálastofnun
var líka að benda á að ástandið í
sjó hafi verið með besta móti –
fiskurinn hafi nóg æti. Síðan er
líka spurning hvort eitthvað af
þessum laxi sem skilaði sér ekki
í fyrra sé að gera það núna. Það
væri óskandi. Það er því ekki
hægt að segja annað en að þetta
allt saman gefi tilefni til þess að
vera bjartsýnn fyrir sumarið.“
Þykkur og pattaralegur
Haffjarðará opnaði á sunnu-
daginn, 16. júní. Fyrstu þrjá
dagana veiddust 40 laxar og var
eingöngu veitt á þrjár stangir.
Einar Sigfússon, einn eigandi
árinnar, segir þetta alveg ljóm-
andi byrjun.
„Þetta er betri byrjun en
undan farin ár og eins og annars
staðar kemur fiskurinn mjög
vel haldinn úr sjó,“ segir Einar.
„Ég man varla eftir að hafa séð
svona fallega fiska í byrjun
sumars. Laxinn er þykkur og
pattara legur. Sömu sögu er hægt
að segja um smálaxinn þannig
að þetta lofar allt mjög góðu tel
ég. Nú krossar maður bara fing-
urna og vonar að framhaldið
verði í sama dúr.“
Fluga vikunnar er Black Eyed
Prawn, sem tældi fyrsta lax
sumarsins í Norðurá þann 5.
júní. Veiði hófst klukkan sjö og
var laxinn kominn á þremur
mínútum síðar.
Black Eyed Prawn, sem
stundum er skammstöfuð BEP, er
forveri Frances-flugunnar. Flug-
an var upphaflega hnýtt á sjö-
unda áratugnum af Peter Dean.
Frances-flugan hefur í tímans
rás þróast úr þessari flugu í þá
útgáfu sem við þekkjum í dag.
Best er að veiða fluguna þannig
að kastað er þvert á straum eða
jafnvel upp í straum, línunni
mendað og flugan látin „damla“
niður og jafnvel skrapa árbotninn.
Best að láta
þessa damla
Laxveiði hefst í Elliðaám í dag.
Klukkan sjö mun Reykvíkingur
ársins renna fyrir laxi í Foss-
inum og Jón Gnarr borgarstjóri.
Það mun ekki verða tilkynnt hver
er Reykvíkingur ársins fyrr en
skömmu áður en veiði hefst.
Á vefsíðu Stangaveiðifélags
Reykjavíkur kemur fram að
mikill lax sé kominn í árnar
miðað við árstíma.
„Þess má geta að sést hefur til
stórlaxa í vor á Elliðaárvísu, og
menn haft á orði að langt sé síðan
að jafn vænir laxar hafi gengið
árnar. Það eru því vonandi góðir
tímar í vændum fyrir veiðimenn í
Elliðaánum,“ segir á vef Stanga-
veiðifélagsins. - th
Veiði hefst í
Elliðaám í dag
Daníel Þorri Haukson, sem er
tíu ára gamall veðimaður, veiddi
maríulaxinn við opnun Flókadals-
ár í Borgarfirði í fyrradag.
Faðir hans, Haukur Birgisson,
veiddi einmitt sinn maríulax í
sömu á fyrir fjörutíu árum síðan.
Afinn, Birgir Jóhannsson, var
einnig með í för. Hann hefur veitt
í ánni í hartnær hálfa öld. Lax-
inn, sem strákurinn veiddi, var
fimm punda hrygna og veiddist
hann við Steinakvörn.
Veiðimaðurinn Ingi Rafn
Sigurðsson, hefur opnað Flóku
undanfarin sumur. Hann sagði
að ástandið í ánni núna minnti á
sumarið 2008 en það var metár
í ánni. „Í Pokagljúfri var til
dæmis krökt af fiski. Þar sáum
við lax stökkva á tíu mínútna
fresti. Mér sýnist þetta lofa mjög
góðu,“ sagði Ingvi Rafn. - ósk, - th
Veiddi maríulaxinn í Flókadalsá
Hinn tíu ára gamli Daníel Þorri veiddi sinn fyrsta lax í Flókadalsá í Borgarfi rði í
fyrradag. Faðir hans og afi voru með í för. Krökt er af fi ski í ánni.
Mælingar á hreistri smálaxa
í Norðurá og Þjórsá sýna að
aðstæður í hafi hafa verið góðar.
Þetta kemur fram á vef Veiðimála-
stofnunar.
„Eins og mönnum er enn í
fersku minni var smálaxagengd
(lax sem er eitt ár í sjó) og veiði
síðasta sumar lítil. Rannsóknir
á hreistri sýndu að sjávarvöxtur
smálaxa í fyrra var mjög lé-
legur,“ segir á vef stofnunarinnar.
„Gagnaraðir Veiðimálastofnunar
sýna að þegar vöxtur er lítill í sjó
eru göngur einnig litlar og þar
með veiði. Þetta skýrist af því að
þegar skilyrði eru erfið í sjó er
vöxtur minni og afföll meiri.“
„Nú eru fyrstu smálaxar
sumarsins farnir að sýna sig
á veiðislóð. Sýni hafa
verið
tekin af laxi í Norðurá og í Þjórsá.
Mælingar af smálaxahreistri
úr báðum þessum ám sýna að
sjávarvöxtur er góður. Þetta eru
góðar fréttir og gefur sterka vís-
bendingu um að smálaxagengd á
Suður- og Vesturlandi verði mun
betri en á síðastliðnu sumri. Smá-
lax á Norðurlandi kemur heldur
síðar og þarf einnig að fylgjast
vel með ástandi hans þegar hann
sýnir sig.
Lax er farinn að sýna sig víða
í ám. Vísbendingar eru um að
stórlax sé smár eins og við mátti
búast enda var lax af sama
árgangi, þ.e. smálax í fyrra, smár.
Hins vegar er smálax einnig
mættur í ár á Suður- og Vestur-
landi sem er snemmt og veit á
gott með veiði sumarsins,“ segir á
vef Veiðimálastofnunar. - th
➜ Vísbendingar eru um góðar smálaxagöngur
MARÍULAX Daníel Þorri bítur hér veiðiuggan af maríulaxinum.
Minna að fletta
meira að frétta
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
BESTI FRÉTTA- OG
AFÞREYINGARVEFURINN
Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar
afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og
skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna
það efni sem leitað er að.“
Laxveiði í nokkrum völdum ám
JÓN GNARR Borgarstjórinn sést hér
landa laxi í Elliðaánum sumarið 2010.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Laxveiðiá Veiði hófst Fjöldi laxa
1 Norðurá 5. júní 153 *
2 Brennan 5. júní 30 *
3 Straumar 5. júní 30 *
4 Ferjukotseyrar 5. júní 4 *
5 Blanda 5. júní 64 **
6 Þverá og Kjarrá 12. júní 94 ***
7 Haffjarðará 16. júní 40 **
8 Hítará 18. júní 10 *
9 Skjálfandafljót 18. júní 19 **
10 Flókadalsá 18.júní 12 **
Blússandi gangur í laxveiðinni
Ástandið á laxastofninum virðist vera eins og best verður á kosið segir Ingólfur Ásgeirsson, einn leigutaka
Þverár/Kjarrár. „Ég man varla eft ir að hafa séð svona fallega fi ska í byrjun sumars,” segir Einar Sigfússon.
* klukkan 13 í gær ** klukkan 22 í fyrrakvöld *** klukkan 13 í fyrradag
1
23
4
5
6
7
8
9
10
Veiði í Blöndu hófst 5. júní og
var byrjunin erfið sökum veðurs
og þess hversu áin var skoluð. Í
fyrrakvöld voru samt 64 laxar
komnir á land sem er mjög gott
að sögn Þorsteins Hafþórssonar,
veiðileiðsögumanns á Blönduósi.
„Áin er í rólegheitum að hreinsa
sig og hængarnir eru byrjaðir að
sýna sig,“ segir Þorsteinn. „Lax-
arnir sem hafa verið að veiðast
hafa flestir verið á bilinu 80 til
85 sentímetrar en þó veiddist
ein 95 sentímetra hrygna hérna
á þriðjudagskvöldið.“
Tröllanáttúra
Skjálfanda-
fljót opnaði
á þriðjudag-
inn og veidd-
ust 19 laxar
fyrsta daginn.
„Ég held mér sé
óhætt að segja að
þetta sé besta byrj-
un frá upphafi,“ segir
Stefán Sigurðsson, sölu-
stjóri hjá Lax-á. „Þetta
er orðin uppáhaldsáin mín
í dag. Þarna er alvöru vatn og
tröllanáttúra.“
trausti@frettabladid.is