Fréttablaðið - 20.06.2013, Side 29
| FÓLK | 3TÍSKA
Íslenska fatahönnunarfyrir-
tækið Farmers Market er
komið í samstarf við breska
framleiðandann British Miller-
ain. Fyrstu vörurnar eru
útivistarjakkar úr vaxborinni
bómull en British Millerain
hefur frá árinu 1880 þróað
vatnsvarin efni fyrir sjómenn.
Fyrirtækið er í fremstu röð
þegar kemur að vaxbornum
bómullarefnum í útivistar-
fatnað og er meðal annars í
samstarfi við merki eins og
Barbour, Belstaff og Timber-
land.
Bergþóra Guðnadóttir
fatahönnuður setti Farmers
Market á fót árið 2005 og
segir frábært að vera komin
í samstarf við þetta rót-
gróna breska fyrirtæki.
Hönnun Farmers
Market dansar gjarnan
á mörkunum þar sem
fortíð mætir nútíð og
sveitin mætir borginni
að sögn Bergþóru og
við hönnun jakkanna
var innblástur sóttur í
inúítaklæði norðurslóða
og skoska fjallarómantík
og til íslenska sjómanns-
ins fyrr á öldum.
Útivistarjakkarnir
hafa fengið nafnið
Skútustaðir og koma í
verslanir í dag.
FARMERS MARKET OG
BRITISH MILLERAIN Í SAMSTARF
Skútustaðir eru heiti á nýjustu vöru Farmers Market, útivistarjökkum sem unnir
eru í samstarfi við British Millerain.
Nánar má
forvitnast um
hönnun Farmers
Market á www.
farmersmarket.is
GAMMUR AFTUR Í
BÆINN Gunnhildur
Stefánsdóttir fatahönn-
uður hefur komið sér
fyrir á Skólavörðustíg 1a
ásamt Ernu Óðinsdóttur
í Kurl Project og Hönnu
Hlíf Bjarnadóttur mynd-
listarkonu.
MYND/STEFÁN
Þetta er mjög spennandi verkefni og ótrúlega skemmtilegt. Ég gæti alveg hugsað mér að gera meira af
þessu,“ segir Gunnhildur Stefánsdóttir
fatahönnuður þegar Fólk spyr hana
frétta. Hún mun hanna búninga á allar
persónur í nýju leikriti Skoppu og Skrítlu,
sem fer á fjalirnar í Borgarleikhúsinu
fyrir næstu jól.
„Ég gerði á þær nýja kjóla fyrir jóla-
dagatalið síðasta vetur og er að sauma
á þær nýja undirgalla núna. Þetta er svo
allt annað en ég hef fengist við áður og
fer algerlega út fyrir minn ramma að
hanna á svona litríkar ævintýraverur,“
bætir hún við. Hún segist þó reyna
að stíga út fyrir þægindarammann í
fatahönnun sinni en Gunnhildur hannar
kvenfatnað undir merkinu Gammur.
„Ég hef mjög gaman af því að hanna
flíkur sem hægt er að breyta og binda
upp á mismunandi vegu og reyndar
þróast flíkin yfirleitt í allt aðra átt en
hún stefndi í hjá mér þegar ég hefst
handa. Ég reyni að leika mér með liti og
fantasíur í efnum og munstrum þó að
svart sé oftast undirtónninn. Mér finnst
einna skemmtilegast í öllu ferlinu að sjá
hvernig hver og ein flík þróast. Það er
svo gaman að vinna á þann veg og ein-
skorða sig ekki við ákveðna hugmynd.
Ætlaði mér inn á miklu hefðbundnari línu
í upphafi þegar ég byrjaði með Gamm.“
Gunnhildur framleiðir ekki fleiri en
fjögur stykki af hverri flík. Hún sér um
framleiðsluna sjálf á vinnustofu sinni
heima og heldur úti vefsíðunni www.
gammur.is. Nýlega opnaði hún verslun á
Skólavörðustíg ásamt fleirum.
„Það er gaman að vera komin aftur
niður í bæ með búð. Ég byrjaði á Hverfis-
götunni fyrir þremur árum en þurfti að
hætta um tíma. Nú hef ég komið mér
fyrir á Skólavörðustíg 1a, ásamt Kurl
Project og Hönnu Hlíf myndlistarkonu.
Við opnuðum síðustu helgi,“ segir Gunn-
hildur. „Við verðum með einhverja
skemmtilega uppákomu fyrsta fimmtu-
dag í mánuði. Ég ætla til dæmis að kynna
nýja flík og samstarfskonur mínar munu
líka gera eitthvað sniðugt. Þessa daga
ætlum við að hafa opið fram eftir, bjóða
upp á léttar veitingar og hafa gaman.“
■ heida@365.is
SPREYTIR SIG Á
BÚNINGAHÖNNUN
ÍSLENSK HÖNNUN Gunnhildur Stefánsdóttir fatahönnuður mun hanna
búninga á persónur í nýju leikriti Skoppu og Skrítlu í vetur. Hún kom sér
nýlega fyrir á Skólavörðustígnum með merkið sitt Gamm. Jakki á 8.900 kr.
Str. 36 - 46
Fyrir brúðkaupið
Ný sending
af sparikjólum
og bolero jökkum
St. 36-48
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna