Fréttablaðið - 28.06.2013, Page 2
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Árný, verðið þið á hjólum í
kringum þátttakendur?
„Við hjólum og spólum hér.“
Þátttakenda í hjólreiðakeppninni Tour de
Hvolsvöllur bíður veisla við endamarkið
á Hvolsvelli. Árný Lára Karvelsdóttir er
kynningar fulltrúi Rangárþings eystra.
FJÖLMIÐLAR Útreikningar auglýs-
ingastofunnar Pipars á breyttum
áskrifendafjölda Stöðvar 2 og
Skjás eins eru villandi, þar sem
þeir bera saman mælingar á ólík-
um tímum milli ára.
Guðni Rafn Gunnarsson, yfir-
maður rannsóknarsviðs Capa-
cent, hefur sent frá sér yfir-
lýsingu vegna þessa. „Að gefnu
tilefni vill Capacent taka fram að
áskrift að sjónvarpsstöðvum er
mæld mánaðarlega í rafrænum
ljósvakamælingum Capacent og
eru aðgengilegar markaðsaðilum.
Óheimilt er að birta upplýsingar
úr Neyslu- og lífstílskönnun Capa-
cent og er þeim ekki ætlað að
mæla áskrift sjónvarpstöðvanna,“
segir hann.
Sverrir Agnarsson, fjölmiðla-
greinir hjá 365, skrifar grein um
málið í Fréttablaðið í dag.
- sh / sjá síðu 19
Áskrifendamagn rangt mælt:
Villandi fram-
setning Pipars
UMHVERFISMÁL „Það eru fimmtán
til tuttugu ár síðan við ösnuðumst
með dúsk af lúpínu þarna upp eftir,
sem við áttum aldrei að hafa gert,“
segir Guðný Sverrisdóttir, sveitar-
stjóri Grýtubakkahrepps, þar sem
stendur til að útrýma lúpínu úr
Þengilhöfða.
Sveitarstjórnin ákvað að láta
eitra fyrir hluta af lúpínunni, sem
að sögn Guðnýjar þekur nú tæpan
hektara í Þengilhöfða. Guðný á
síðan að gera kostnaðaráætlun
um algera útrýmingu þessarar
umdeildu plöntu úr fjallinu, sem
stendur við Grenivík.
„Við erum að spá í hvort það
eigi að útrýma lúpínunni eða ekki.
Sumum finnst ömurlegt að hafa
lúpínu og öðrum finnst það bara
fallegt,“ segir Guðný, sem ítrek-
ar að endanleg ákvörðun hafi ekki
verið tekin. Of seint sé að eitra á
þessu ári.
„Ef það verður ákveðið þá tekur
það tuttugu ár og við þurfum að
leggja töluverða peninga í það.
Annað hvort byrjum við á næsta
ári eða við hugsum ekki um þetta
því það verður alltaf erfiðara og
erfiðara að útrýma lúpínunni
eftir því sem hún breiðist út. Hún
stoppar ekki,“ segir Guðný.
Að sögn sveitarstjórans sjá
margir eftir hefðbundnum mela-
gróðri sem lúpínan kæfi. Menn
hafi ekki haft eins miklar efa-
semdir um lúpínuna þegar henni
var sáð á sínum tíma.
„Ef menn ætla að eyða þessu er
um að gera áður en þetta verða
gígantískir flákar,“ bendir Guðný
á. Aðspurð segir hún reyndar lúp-
ínu mun víðar í Grýtubakkahreppi.
„En það er svo mikið af henni að
það er tapaður bardagi nema bara
í Höfðanum.“ gar@frettabladid.is
Ef menn
ætla að eyða
þessu er um
að gera áður
en þetta verða
gígantískir
flákar.
Guðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri Grýtubakkahrepps
LÚPÍNAN Í ÞENGILHÖFÐA Plantan sem græða átti upp melinn í Þengilhöfða leggur sífellt meira land undir sig.
MYND/BJÖRN INGÓLFSSON
SPURNING DAGSINS
Reyna að eitra fyrir
lúpínu í Þengilhöfða
Skoða á leiðir til að útrýma lúpínu sem breiðir úr sér í Þengilhöfða við Grenivík.
Tilraun verður gerð með eitrun á hluta svæðisins. Sveitarstjórinn segir frest til að
ákveða framtíð lúpínunnar í höfðanum að renna út. Brátt verði ekkert við ráðið.
EKVADOR, AP Bráðabirgðavegabréf
sem bandaríski uppljóstrarinn
Edward Snowden fékk frá Ekvador
var gefið út án
heimildar. Þetta
segja stjórnvöld
í Ekvador, sem
gátu ekki gefið
skýringar á því
af hverju hann
fékk þetta skil-
ríki.
„Skjal af
þessu tagi hefur
ekkert gildi og
er eingöngu á ábyrgð þess einstak-
lings sem gaf það út,“ sagði Betty
Tola stjórnsýsluráðherra á blaða-
mannafundi í gær.
Bandaríska vegabréfið, sem
Snowden hafði, hefur verið gert
ógilt þannig að hann virðist
nú sitja fastur á flugvellinum í
Moskvu án skilríkja. - gb
Snowden fastur á flugvelli:
Skilríkin frá
Ekvador ógild
EDWARD
SNOWDEN
KJARAMÁL Mikilvægt er að skoða kosti þess að stytta
vinnuviku Íslendindinga úr 40 stundum í 36 stundir.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um
samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs sem kom út í
gær.
Skýrslan var unnin að beiðni velferðarráðuneytis í
samstarfi við Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu. Segir
í skýrslunni að betur þurfi að huga að vinnu framlagi
starfsfólks og finna leiðir til þess að breyta þeirri
séríslensku menningu sem felst í að vinna langan
vinnudag.
Skýrslan byggir á 24. grein laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla sem segir að nauðsynlegt
sé að gera konum og körlum kleift að samræma starfs-
skyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu.
Tillögur vinnuhópsins eru í tíu liðum en þar á meðal
eru aðilar vinnumarkaðarins hvattir til þess að standa
fyrir fræðsluátaki með áherslu á endur menntun
stjórnanda út frá gildum fjölskyldunnar og að þeir
setji sér aðgerðabundnar jafnréttisáætlanir þar sem
unnið er að samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.
Þórður Kristinsson, formaður vinnuhópsins, segir
að málaflokkurinn varði afar marga. „Þetta er mikil-
vægt mál og skýrslan á að gera málaflokkinn aðgengi-
legan fyrir sem flesta.“ segir Þórður og bendir á að
stytting vinnuvikunnar sé eitt af því sem vert sé að
skoða í þessu samhengi. „Það gefur augaleið að því
minna sem fólk vinnur, því meiri tíma hefur það með
fjölskyldunni en um er að ræða stórt og umfangsmikið
mál og því er vert að skoða það sérstaklega.“ - le
Hvatt er til að vinnumarkaður endurmeti gildi fjölskyldunnar:
Vilja skoða 36 tíma vinnuviku
VINNUTÍMI TI SKOÐUNAR Aðilar vinnumarkaðarins eru
hvattir til að leggja áherslu á endurmenntun stjórnanda út frá
gildum fjölskyldunnar. MYND ÚR SAFNI
FÉLAGSMÁL „Það ríkir engin óvissa
varðandi starfsemi Vinakots,“ segja
Aðalheiður Bragadóttir og Jóhanna
Fleckenstein, forstöðukonur hjá
Vinakoti, sem rekur tvö heimili
fyrir unglinga með hegðunarvanda
í Hafnarfirði.
Í yfirlýsingu Aðalheiðar og
Jóhönnu vegna fjölmiðla umfjöllunar
um málefni heimilis Vinakots fyrir
drengi í Fjóluhvammi er ítrekað
að ekki liggi fyrir niðurstaða hjá
skipulags- og byggingaráði Hafnar-
fjarðar um það hvort Vinakot teljist
stofnun eða heimili. Komið hefur
fram að einhverjir íbúar götunnar
telja um að ræða atvinnustarfsemi
sem ekki eigi heima í íbúðargötu.
„Okkur einlæga von er að nið-
urstaðan muni ekki byggjast á
persónu legri skoðun skipulagsfull-
trúa Hafnarfjarðarbæjar heldur
faglegum grunni og lögfræðilegu
áliti. Einnig viljum við jafnframt
taka það fram að hagsmunir skjól-
stæðinga okkar eru og verða alltaf
í fyrirrúmi,“ segir í yfirlýsingu for-
stöðukvennanna sem bjóða íbúum
Fjóluhvamms í kaffi á mánudaginn
þar sem starfsemin verður kynnt og
spurningum svarað. - gar
Vinakot býður í kaf i og biður um faglega ákvörðun um unglingaheimili sitt:
Rannsóknir byggi ekki á persónulegu mati
AÐALHEIÐUR
BRAGADÓTTIR
JÓHANNA
FLECKENSTEIN
FJÓLUHVAMMUR Forstöðukonur í
Vinakoti segja enga óvissu ríkja um
starfsemina.
ALÞINGI Þingmenn Pírata hyggjast
beita málþófi til að tryggja það að
forseti Íslands muni verða á land-
inu til að taka
sjálfur afstöðu
til laga um
veiðigjalda.
„Okkur þætti
vænt um að
vita hve lengi
við þingmenn
Pírata þurfum
að þæfa málið
þar til þú kemst
til landsins
til að taka við málskotsréttinum
úr höndum stjórnarliða?“ segir
Jón Þór Ólafsson, alþingismaður
Pírata, í opnu bréfi til forseta, en
í fjarveru forseta er forsætisráð-
herra handhafi forsetavalds.
Málið var í gær tekið úr
atvinnuveganefnd og vísað til ann-
arrar umræðu á þingi. - þj
Lög um lækkun veiðigjalda:
Píratar hyggjast
beita málþófi
JÓN ÞÓR
ÓLAFSSON
DANMÖRK Sex af hverjum tíu
Dönum eru fylgjandi því að
önnur starfsemi en trúarleg fari
fram í kirkjum sem hefur verið
lokað. Þetta eru niðurstöður
könnunar á vegum danska blaðs-
ins Jyllands-Posten. Ákveðið
hefur verið að loka fjórtán
kirkjum í Kaupmannahöfn.
Biskup borgarinnar, Peter
Skov-Jakobsen, vill að skynsam-
leg starfsemi fari fram í kirkj-
unum og bendir á söfnuði inn-
flytjenda sem oft vanti húsnæði
fyrir guðsþjónustur.
Biskupinn er einnig hlynntur
samfélagslegri starfsemi og
menningarlegri en á erfitt með
að sjá fyrir sér diskótek og stór-
markaði í kirkjunum.
- ibs
Biskup Kaupmannahafnar:
Kirkjur hýsi
ekki diskótek
og stórmarkaði