Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 42
KYNNING − AUGLÝSINGNýsköpun FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 20134
Á þriðju hæðinni í Borgar-túni 18 hafa tíu ný sprota-fyrirtæki komið sér fyrir. Í
sumar taka þau þátt í nýsköpunar-
verkefninu Startup Reykjavík sem
er samstarfs verkefni Arion banka
og Klak-Innovit og fer nú fram í
annað sinn. Verkefninu er ætlað
að flýta vexti og þroska fyrirtækj-
anna tíu eins mikið og hægt er á
þeim tíu vikum sem verkefnið
stendur yfir.
Segja má að með þátttöku í
Startup Reykjavík fái fyrir tækin
sæti um borð í hraðlest sem ætlað
er að koma þeim á næsta áfanga-
stað fyrr en ella hefði orðið. Fyrir-
tækin fá m.a. 2 milljónir í hlutafé
frá Arion banka gegn 6% eignar-
aðild bankans í v iðkomandi
fyrirtæki, þau fá fyrsta f lokks
sameigin lega skrifstofu aðstöðu,
banka, t íu vikna þjálfun frá
mentor um víðs vegar úr atvinnu-
lífinu og starfsfólki Klak-Innovit,
aðgang að víðtæku tengslaneti
og tækifæri til að kynna sig fyrir
framan hóp fjárfesta á lokadegi
verkefnisins í ágúst.
Fer vel af stað
Verkefnið hefur nú staðið yfir í
tvær vikur. Teymin hafa fengið
mentora í heimsókn, hlustað
á fyrirlestra og unnið hörðum
höndum að ýmsu sem tengist
fyrstu skrefunum. Þeirra bíður
enn mikil vinna allt fram í miðj-
an ágúst þegar verkefninu lýkur
með sérstökum fjárfestadegi. Þar
munu teymin kynna hugmyndir
sínar og árangurinn sem þau hafa
náð með þær í sumar og freista
þess að vinna hylli fjárfestanna.
Fjárfestir í 20 sprotafyrir-
tækjum
Einar Gunnar Guðmundsson,
sérfræðingur í nýsköpun hjá
Arion banka segir beinan stuðn-
ing við íslenskt frumk vöðla-
umhverfi skipta miklu máli fyrir
íslenskt samfélag. „Í gegnum
Start up Reykjavík hefur Arion
banki á tveimur árum fjárfest í
tuttugu sprotafyrirtækjum sem
fá ekki bara stuðning frá bank-
anum í gegnum Startup Reykja-
vík heldur einnig að því verkefni
loknu frá starfsfólki bankans.
Þær hugmyndir og þau teymi
sem veljast inn í Startup Reykja-
vík eru flest á sínum fyrstu stigum
og veitir Arion banki þeim þolin-
mótt f jármagn í formi hluta-
fjár.“ Einar segir markmiðið með
Start up Reykjavík vera að stuðla
að heilbrigðara og sterkara um-
hverfi fyrir íslenska frumkvöðla
auk breiðari f lóru fyrirtækja sem
geta sem fyrst orðið áhugaverðir
kostir fyrir fjárfesta.
Tíu sprotafyrirtæki
taka þátt í Startup
Arion banki og Klak Innovit standa að 10 vikna nýsköpunarsmiðju.
Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í nýsköpun hjá Arion banka, ræddi við þátt-
takendur í Startup Reykjavík og gesti á opnunardegi verkefnisins fyrir um tveimur vikum.
Zalibuna: Zalibuna mun hanna
og byggja einmennings rússíbana
í náttúru Íslands þar sem farþegar
geta notið útsýnis, náttúrufegurð-
ar og spennu, allt í einni ferð.
www.zalibuna.is
Þoran: Þoran verkefnið snýst um
að koma á laggirnar fyrstu viskí
framleiðslunni á Íslandi og að búa
til fyrsta flokks, einmalts viskí til
útflutnings.
www.thoran.is
Mindlantis: Sýndarheimur á
netinu þar sem sköpunarkraftur
barna er virkjaður og skapandi
ævintýraveröld þróuð út frá hug-
myndum þeirra.
www.mindlantis.com
Activity Stream: Hugbúnaður-
inn auðveldar fyrirtækjum að veita
framúrskarandi þjónustu með því
að greina viðskiptaupplýsingar og
miðla í rauntíma.
www.activitystream.com
GolfPro Assistant: GolfPro
Assistant er vefhugbúnaður fyrir
golfkennara sem aðstoðar þá við
alla þætti golfkennslu s.s. þjónustu
og samskipti þeirra við nemendur.
www.golfproassistant.com
FYRIRTÆKIN SEM TAKA ÞÁTT Í
STARTUP 2013
Herberia: Herberia brúar bilið á milli
óskráðra náttúruvara og hefðbund-
inna lyfja með því að framleiða og skrá
hágæða jurtalyf fyrir Evrópumarkað.
www.facebook.com/herberiame-
dicines
SAReye Þróun á samþættri
leitartækni sem byggir annars
vegar á loftmyndatöku og hins
vegar úrvinnslu á myndunum með
myndgreiningartækni ásamt nánari
greiningu á upplýsingunum með hóp-
greiningartækni.
www.sardrones.com
Silverberg: Hanna, þróa og selja
mælingarbúnað fyrir líkamsræktar-
stöðvar og hugbúnað þar sem not-
endur geta fylgst með árangri sínum.
www.signup.silverberg.is
Snjóhús Software: Snjóhús
hannar, þróar og selur hugbúnað fyrir
snjallsíma og vinnur núa að þróun
einkaþjálfara apps.
www.snjohus.com
Y-Z: Y-Z hyggst þróa nýja aðferð
við að auka notagildi fatnaðar með
tæknilegum útfærslum sem bæta
framúrstefnulegum eiginleikum við
klassíska hönnun.
www.ziskazun.blogspot.com
Nýsköpunarsetrið Klak Innovit varð til fyrr á þessu ári þegar Klak, ný-sköpunarmiðstöð atvinnulífsins,
og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðla-
setur, sameinuðust. Að sögn Kristjáns Freys
Kristjáns sonar framkvæmdastjóra er hlut-
verk Klak Innovit að hjálpa fólki að gera
hugmyndir sínar að veruleika en það gerir
félagið fyrst og fremst með því að bjóða fjöl-
breytt verkefni sem öllum er frjálst að taka
þátt í. „Við leiðum líka saman fjárfesta og
sprota, veitum sprotafyrirtækjum og öðrum
áhugasömum ráðgjöf og húsnæði ásamt
aðstoð og öf lugum tengingum við ein-
staklinga, samtök og fyrirtæki út um allan
heim.“ Klak Innovit er í eigu Háskóla Íslands
og Háskólans í Reykjavík, Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Ný-
herja, auk nokkurra einstaklinga. Verkefni
Klak Innovit eru fjölbreytt en á meðal þeirra
eru:
Startup Reykjavík
Nýsköpunarverkefnið Startup Reykjavík
er samstarfsverkefni Klak Innovit og Arion
banka. „Þar býðst sprotafyrirtækjum tvær
milljónir króna í hlutafé gegn 6% eignarhlut
Arion banka, tíu vikna þjálfun frá mentor-
um víðs vegar úr atvinnulífinu og starfs-
fólki Klak Innovit. Þeim býðst sameigin-
leg skrifstofuaðstaða, aðgangur að víðtæku
tengslaneti og tækifæri til að kynna sig fyrir
framan hóp fjárfesta á lokadegi verkefnis-
ins í ágúst.“
Gulleggið
Klak Innovit stendur árlega fyrir frum-
kvöðlakeppninni Gullegginu. „Megin-
markmið keppninnar er að skapa vettvang
fyrir athafnafólk til að öðlast þjálfun og
reynslu í mótun nýrra viðskipta hugmynda.
Samhliða er þátttakendum boðið upp á
námskeið, ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga.
Til þess að taka þátt þarf einungis að skila
inn stuttu ágripi af hugmyndinni á einni
blaðsíðu.“
Seed Forum Iceland
Á Seed Forum Iceland ráðstefnunni gefst ís-
lenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum færi
á að kynna sig fyrir fjárfestum með það
fyrir augum að hljóta fjárfestingu. Fyrir-
tækin sem taka þátt í Seed Forum Iceland
eru gaumgæfilega valin úr hópi þeirra fyrir-
tækja sem talin eru skara fram úr.
Atvinnu- og nýsköpunarhelgar / Startup
Weekend
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin (ANH) er
samstarfsverkefni Klak Innovit og Lands-
bankans. Viðburðurinn er að erlendri fyrir-
mynd sem reynst hefur vel og eru viðlíka
helgar haldnar um allan heim (e. Startup
Weekend). „Markmið helganna er að virkja
fólk til athafna og er hver helgi hugsuð sem
vettvangur fyrir þá sem langar að koma eigin
viðskiptahugmynd í framkvæmd eða taka
þátt í uppbyggingu hugmynda annarra.“
Nýsköpunarhádegi Klak-Innovit
Þriðjudagshádegi eru Nýsköpunarhádegi
Klak Innovit. „Við fáum áhugaverða og
spennandi frumkvöðla í heimsókn sem
segja sögu sína og deila reynslu sinni með
áhorfendum. Öllum er frjálst að mæta á Ný-
sköpunarhádegi en í sumar býðst áhuga-
sömum að mæta á sambærilega viðburði
sem heita Startup Stories. Þau fara fram í
Startup Reykjavík, Borgartúni 18 á 3. hæð
og eru frá kl. 12 hvern þriðjudag.“
Snilldarlausnir Marel
Hugmyndaríkir framhaldsskóla nemar
koma hugmyndum sínum í framkvæmd
með þátttöku í Snilldarlausnum Marel
– hugmy ndasamkeppni framhalds-
skólanna. „Við höfum staðið fyrir keppn-
inni í fimm ár í samstarfi við Marel og
Samtök atvinnulífsins. Á þeim tíma hafa
yfir eitt hundrað nýjar hugmyndir af
ýmsum toga borist keppninni.“
Önnur verkefni
Meðal annarra verkefna sem Klak Innovit
kemur að má nefna TEDx og Viðskipta-
smiðjuna. „Við höfum umsjón með TEDx
fyrirlestrum á Íslandi en margir þekkja
Ted Global ráðstefnurnar sem vakið hafa
heimsathygli. Viðskiptasmiðjan er far-
vegur fyrir frumkvöðla og stjórnend-
ur fyrirtækja til að móta verðmæta við-
skiptahugmynd, skapa trúverðugt teymi
og framtíðarsýn fyrirtækis sem miðar að
vexti og árangri. Viðskiptasmiðjan er bæði
hönnuð fyrir fyrirtæki sem eru í rekstri og
frumkvöðla sem eru að móta viðskipta-
hugmynd sína.“ Auk þess sinnir Klak Inn-
ovit öðrum tímabundnum verkefnum eins
og Nordic Innovation Marine Marketing
Program (NIMMP), tímaritinu Nordic
Innovation og Alþjóðlegu athafnavikunni.
Grunnur lagður að framtíðinni
Mikil gróska á sér stað í starfsemi nýsköpunarsetursins Klak Innovit. Félagið býður upp á fjölda spennandi viðburða sem nýtast
frumkvöðlum og hugmyndaríkum einstaklingum á öllum aldri.
Starfsmenn Klak Innovit, frá vinstri: María Þorgeirsdóttir, Kristján Freyr Kristjánsson framkvæmdastjóri, Ragnar
Örn Kormáksson, Diljá Valsdóttir og Stefán Þór Helgason. MYND/VALLI
Í hádeginu á þriðjudögum í allt sumar gefst gestum og gangandi
sérstakt færi á að kíkja í heimsókn í Startup Reykjavík því þá eru sagðar
svokallaðar frumkvöðlasögur. Sögumaður hverju sinni er frumkvöðull
sem náð hefur eftirtektarverðum árangri og viðkomandi segir frá ein-
hverju áhugaverðu tengdu því að stofna og reka fyrirtæki á eigin spýtur.