Fréttablaðið - 28.06.2013, Síða 28

Fréttablaðið - 28.06.2013, Síða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Ferðalag. Förðun og ráð. Elísabet Eyþórsdóttir. Brúðkaup og gotterí. Hönnun og hugmyndir. Spjörunum úr. Helgarmaturinn 2 • LÍFIÐ 28. JÚNÍ 2013 HVERJIR HVAR? Umsjón blaðsins Marín Manda Magnúsdóttir marinmanda@frettabladid.is Umsjón Lífsins á Vísir.is Ellý Ármanns elly@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Einar Egilsson Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid Hár og makeup Þórunn Hulda Vigfúsdóttir Lífi ð Hamingja, fólk og annað frábært Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður lét sjá sig á Faktory síðastliðna helgi og dansaði fram á rauða nótt með félögum sínum. Það sást einnig til Kiddu Svarf- dal ritstýru hun.is en hún kom við á opnun Lemon á Laugaveginum ásamt unn- usta sínum Magnúsi Péturs- syni. Gulli Briem sást á Sólon í vikunni að snæðingi með dóttur sinni, Anítu Briem leik- konu. É g hafði lesið bók sem unglingur um andlegt ferðalag konu og líf hennar og störf í Ind- landi og ég varð djúpt snortin af hugmyndinni um uppljómun, jóga og þjónustu við aðra,“ segir Ásdís María Elfardóttir mannfræðing- ur og bætir við að þá hafi hún ákveðið að einn daginn skyldi hún upplifa Indland og sjálfboðastarf. Þetta var löngu fyrir ofurvinsældir Eat, Pray, Love eftir Elizabeth Gilberts. Þegar hún kynntist manninum sínum, Baldri Jóhannessyni, var hún ekki lengi að sannfæra hann um að fara með sér á vitund ævintýra sem smituðu hann af varanlegri ferðalagaþrá. Ásdís María Elfarsdóttir og Baldur Jóhannesson höfðu lagt pening til hliðar í mörg ár og var hug- myndin sú að þau gætu verið í bakpokaferðalagi í heilt ár. Lífið í Kópavoginum var sett á bið, hús- gögnin voru seld og þau tilkynntu vinum og ættingj- um að þau hefðu enga hugmynd um lokadagsetningu ferðalagsins. Flugmiðar aðra leiðina voru keyptir og svo var lagt af stað í ferðalag um nánast ólýsanlegt Indland. „Á Indlandi finnur maður bæði ríkasta og fá- tækasta fólkið og oftar en ekki býr það hlið við hlið. Maður kynnist ansi ólíkum viðhorfum til ná- ungans en tíðkast á Vesturlöndum. Myndin Slum- dog Million aire var að sumu leyti raunsönn en að sumu leyti mjúk útgáfa því þar var alltof lítið af fólki í senunum,“ segir Baldur. Parið segir betl vera eitthvað sem ekki sé hægt að horfa fram hjá þrátt fyrir að heimamenn geri það. „Verandi menntuð sem mannfræðingur veit ég svo margt um orsak- ir betls og afleiðingar þess að gefa betlurum, en á sama tíma er erfitt að snúa sér frá smástelpu sem kemur til manns, vímuð af lími, og biður um pening,“ segir Ásdís og heldur áfram: „Það er ekki hægt að fara varhluta af því að upplifa fátækt og stéttaskipt- ingu á Indlandi, og við erum flest meðvituð um hana í gegnum fjölmiðla og netið. Hins vegar má það ekki gleymast í þessari umræðu að bera virðingu fyrir heimalandi fólks og menningu og ekki bara tala um hvað allt er fátæklegt.“ Tíminn á Indlandi var not- aður óspart til að upplifa ólíkan menningarheim og kennaranám í Brahmani Yoga. Þau tóku 500 stunda réttindin í jóga en það var Ingibjörg Stefánsdóttir sem kynntu þau fyrir náminu og ashtanga-jóga. Myndirnar tala sínu máli um lífið á Indlandi þar sem Ásdís og Baldur upplifuðu ótalmörg ævintýri og eftir sitja tilfinningar eins auðmýkt, kærleikur og mikill lærdómur. „Indverska ríkisstjórnin er með slagorðið In- credible India, sem smellpassar. Það er ótrúlegt að vera þarna, í góðri og slæmri merkingu þess orðs. Indland gerir mann orðlausan og ég get aldrei al- mennilega svarað spurningunni: „Hvernig er Ind- land?“ Það er ótrúlegt, í þeim skilningi að maður trúir ekki stundum því sem er fyrir framan augu manns,“ segir Ásdís að lokum. FÓLK ÓLÝSANLEGT INDLAND Ásdís María Elfarsdóttir og Baldur Jóhannesson upplifðu drauminn og ferðuðust til Indlands og lærðu jóga og hugleiðslu. Baldur Jóhannesson og Ásdís María Elfarsdóttir á ævintýra- legu ferðalagi um Indland. Heimamenn baða sig í heilagri á. Ferðasögurnar er hægt að nálgast inni á bloggi sem parið heldur úti http://hnotskurnin.blogspot.com/

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.