Fréttablaðið - 28.06.2013, Síða 6
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir nýjasta kvikmynd
Baltasars Kormáks?
2. Hver leiðir ástralska Verkamanna-
fl okkinn?
3. Hver er formaður Samtaka
hernaðar andstæðinga?
SVÖR
1. 2 Guns. 2. Kevin Rudd. 3. Stefán Pálsson.
ferð.is
sími 570 4455
góða ferðKrít
Lækkað
verð!8. – 18. júlí.Sunset Suites ***
Verð frá 98.900 kr.
Mv. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m. 1 svefnh.
Innifalið: flug, skattar og gisting.
miklu meira
en sólarströnd
DÓMSMÁL Risavöxnu skaðabóta-
máli slitastjórnar Landsbankans
gegn fyrrverandi stjórnendum
bankans og bankaráði hans var
vísað frá dómi í gær. Slitastjórnin
mat tjónið af saknæmri háttsemi
stefndu á um 29 milljarða en dóm-
ari kallar upphæðina getgátur.
Slitastjórnin stefndi í fyrra sjö
manns fyrir dóm í málinu; banka-
stjórunum fyrrverandi, Sigur-
jóni Þ. Árnasyni og Halldóri J.
Kristjánssyni, bankaráðsmönn-
um Kjartani Gunnarssyni, Svöfu
Grönfeldt, Þorgeiri Baldurssyni
og Andra Sveinssyni og auk þess
Jóni Þorsteini Oddleyfssyni, sem
var forstöðumaður fjárstýringar
bankans. Björgólfi Guðmundssyni,
sem var formaður bankaráðsins,
var ekki stefnt, enda var hann orð-
inn gjaldþrota og ekkert til hans
að sækja.
Slitastjórnin taldi að sjömenn-
ingarnir hefðu valdið bankanum
tjóni með ákvörðunum um fjóra
gjörninga sem allir gengu í gegn 6.
október 2008, daginn sem neyðar-
lögin voru sett og eftir að Geir H.
Haarde flutti þjóðinni ávarp um
efnahagshrunið í sjónvarpinu.
Í fyrsta lagi er um að ræða
kaup á kröfum af Landsvaka fyrir
tæpa tuttugu milljarða, í öðru lagi
útborgun lánalínu til Straums upp
á 7,2 milljarða og í þriðja lagi upp-
gjör við MP banka upp á 7,5 millj-
arða.
Mat slitastjórnarinnar var að
stjórnendurnir og bankaráðsfólkið
hefði bakað þrotabúinu tjón sem á
núverandi gengi krónunnar stend-
ur í um 29 milljörðum með því að
koma því til leiðar, eða koma ekki
í veg fyrir, að þetta fé væri greitt
út úr bankanum þegar þeim hafi
átt að vera ljóst að bankinn stefndi
í þrot.
Þessu er héraðsdómarinn Skúli
Magnússon ósammála. „Sam-
kvæmt framangreindu telur dóm-
ari að mjög skorti á að stefnandi
hafi gert reka að því að fá tjón sitt
staðreynt með þeim úrræðum sem
honum eru tæk að lögum, svo sem
öflun mats,“ segir í dómnum.
„Er tjón stefnanda því vanreifað
og grundvöllur fjárhæðar kröfu-
gerðar hans í reynd getgátur. Lúta
þessir annmarkar að málinu í heild
og eru þeir svo verulegir að ekki
verður úr þeim bætt á síðari stig-
um. Er því skylt að vísa málinu í
heild frá dómi.“
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi slitastjórnarinnar, segir
yfirgnæfandi líkur á að málinu
verði áfrýjað.
stigur@frettabladid.is
29 milljarða bótamál
sagt byggt á getgátum
Einu stærsta skaðabótamáli sem þrotabú hefur höfðað eftir hrun hefur verið vísað
frá dómi. Dómari segir bótakröfu slitastjórnar Landsbankans á hendur stjórnend-
um og bankaráði vera getgáfur. Snerist um þrjár greiðslur á degi neyðarlaganna.
SIGURJÓN Þ. ÁRNASON HALLDÓR KRISTJÁNSSON
KJARTAN GUNNARSSONÞORGEIR BALDURSSON
SVAFA GRÖNFELDT ANDRI SVEINSSON
SENEGAL, AP „Við erum enn ekki
tilbúin að hætta því að líta á sam-
kynhneigð sem glæp,“ sagði
Macky Sall, forseti Senegal, eftir
að Barack Obama Bandaríkjafor-
seti hafði hvatt leiðtoga Afríku-
ríkja til þess að viðurkenna rétt-
indi samkynhneigðra.
Sall hélt því engu að síður fram
að íbúar Senegal væru mjög
umburðarlyndir og samkyn-
hneigðir sættu ekki ofsóknum.
Samfélagið þyrfti bara tíma til
að melta þessa hluti: „Það er með
þetta eins og dauðarefsinguna.
Það eru mörg ár síðan við aflögð-
um hana.“ - gb
Obama andmælt í Senegal:
Samkynhneigð
telst enn glæpur
BARACK OBAMA OG MACKY SALL
Forsetarnir voru ekki á einu máli um
réttindi samkynhneigðra. NORDICPHOTOS/AFP
GRÆNLAND Hópur umhverfis-
vænna Evrópuþingmanna, Græni
hópurinn, berst nú gegn olíu-
leit Dana og Grænlendinga við
Vestur-Grænland. Á vef Jyllands-
Posten er vitnað í þau ummæli
Margrete Auken að fjarlæg lönd
eins og Spánn, Þýskaland, Austur-
ríki og Frakkland óttist afleiðing-
arnar fari eitthvað úrskeiðis. Slíkt
muni ekki eingöngu verða vanda-
mál Danmerkur og Grænlands,
heldur muni það hafa áhrif á líf-
ríki hafsins um allan heim.
Það er mat þingmanna í Græna
hópnum að öll lönd heims eigi að
mótmæla olíuleitinni, en ekki bara
Evrópuríki. - ibs
Grænn hópur á Evrópuþingi:
Herferð gegn
olíuleit við
Grænland
EFNAHAGSMÁL Einhugur var í pen-
ingastefnunefnd Seðlabankans um
tillögu Más Guðmundssonar, seðla-
bankastjóra
og formanns
nefndarinnar,
að stýrivöxtum
fyrir síðustu
vaxta ákvörðun.
Vöxtum var
haldið óbreytt-
um.
Í nýbirtri
fundar gerð
nefndarinnar
frá 11. þessa mánaðar kemur fram
að farið hafi verið yfir þróun efna-
hagsmála og fjármála markaða,
auk vaxtaákvörðunarinnar sjálfrar
og kynningar á henni.
Í nefndinni eiga sæti, auk Más,
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri, Þórarinn G. Péturs-
son, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans og hagfræðingarnir Gylfi
Zoëga og Katrín Ólafsdóttir. - óká
Fundargerð nefndar birt:
Allir sammála
um stýrivextina
EFNAHAGSMÁL Afkoma sveitar-
félaga hefur batnað á heildina litið
og þau hafa styrkst fjárhagslega,
samkvæmt ársreikningum sveitar-
félaga fyrir árið 2012. Þetta kemur
fram í fréttabréfi hag- og upp-
lýsingasviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga sem kom út í gær.
Heildartekjur sveitarfélaga hafa
vaxið um 6,8% að nafnvirði frá því
árið 2011, þær voru þá 192,4 millj-
ónir króna en voru 205,5 milljónir
króna árið 2012. Að auki hefur
heildarframlegð vaxið um 5,8
milljónir króna á milli ára eða 4,4
prósent. Hún er nú 18,8 milljónir
króna á móti 13 milljónum króna
árið 2011. - ne
Ársreikningar sveitarfélaga:
Fjárhagsleg
afkoma batnar
MÁR
GUÐMUNDSSON
LÖGREGLUMÁL „Ég beið bara eftir
því að þetta endurtæki sig,“ segir
dóttir Jóhanns Sigurðarsonar, sem
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald fyrir að brjótast fyrr í
mánuðinum inn á tvö heimili og
brotið kynferðislega gegn ung-
lingsstúlku og konu.
Jóhann, sem nú gengur undir
nafninu Jóhannes Páll Sigurðsson,
hefur tvisvar áður verið dæmdur
fyrir kynferðisbrot, síðast árið
2008, en var sleppt úr fangelsi árið
2011 og losnaði af skilorði í vor.
Dóttir hans sagði í samtali við
Vísi að hún hefði lokað á öll sam-
skipti við föður sinn. Hún hefði
ekki vitað af brotum föður síns
fyrr en hún hefði lesið um þau í
Fréttablaðinu í gær.
Í fréttum RÚV í gær kom fram
að Jóhann hefði verið handtekinn
eftir fyrra húsbrotið en sökum
þess að hann hefði breytt um nafn
hefði lögregla ekki þekkt til brota-
sögu hans og sleppt honum laus-
um. Þaðan fór hann og braust inn í
seinna skiptið og braut gegn konu,
en var handtekinn í kjölfar þess.
Síðar kom í ljós að maðurinn hafði
í fjórgang reynt að brjótast inn í
hús þessa nótt. - þj, vg
Kynferðisafbrotamanni var sleppt eftir húsbrot og braut af sér sömu nótt:
Dóttirin bjóst við fleiri brotum
SVÍÞJÓÐ Andstaðan gegn flótta-
mönnum vex í Svíþjóð, samkvæmt
niðurstöðum könnunar Som-
stofnunarinnar við Gautaborgar-
háskóla sem var gerð í fyrra og
var kynnt á dögunum.
Alls sögðu 45 prósent aðspurðra
að þeim þætti það góð hugmynd að
taka á móti færri flóttamönnum.
Ári áður, eða 2011, var fjöldinn 41
prósent.
Alls svöruðu rúmlega sex þús-
und af tólf þúsund manna úrtaki
spurningum rannsakenda. - ibs
Könnun sænsks háskóla:
Fleiri vilja færri
flóttamenn
VEISTU SVARIÐ?
sinnum er maðurinn
talinn hafa brotist inn
á heimili í miðbænum og
Kópavogi í upphafi mánaðar,
þar af fj órum sinnum sömu
nóttina.
6