Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 14

Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 14
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | Samkvæmt viljayfirlýsingu á milli fyrrverandi ríkisstjórnar og Landssamtaka lífeyrissjóða, sem undirrituð var í apríl síðastliðnum, á að vinna að framgangi aðgerða í þágu yfirveðsettra heimila að með- töldum lánsveðum. Þessi svokall- aði lánsveðshópur skuldar umfram 110 prósent af verðmæti fasteign- ar sinnar að meðtöldum skuldum, sem tryggðar eru með veði í fast- eign í eigu þriðja aðila, og féll því ekki undir 110 prósent leiðina svo- kölluðu. Samkvæmt yfirlýsingunni átti að færa eftirstöðvar húsnæðis- lána þessa hóps niður að 110 pró- sentum af verðmæti eignar og þar með koma til móts við hópinn, sam- bærilegt því sem gert var fyrir þá sem féllu undir 110 prósent leiðina. Áætlað var að aðgerðin tæki til um 2.000 heimila og að heildar- niðurfærslan myndi nema þremur milljörðum króna. Aðgerðirnar eru þó ekki á dag- skrá sumarþingsins en nauðsyn- legt er að heimild verði gefin í fjárlögum til þess að framkvæmd geti hafist. Ráðgert var að skulda- aðlögunin kæmi til framkvæmda fyrir lok þessa árs. Vantar fjárheimild Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra segir að ekki sé fjár- heimild fyrir þessu einstaka máli. „Við vorum upplýst um að þáver- andi ríkisstjórn ætlaði að undir- gangast þessa viljayfirlýsingu en við afþökkuðum að vera aðilar að henni meðal annars vegna þess að við vonuðumst til að lífeyris- sjóðirnir hefðu meira fram að færa heldur en kveður á um í vilja- yfirlýsingunni,“ segir Bjarni. Hann bætir við að þó þurfi að finna lausn á vanda þessa hóps. „Við viljum gera lánsveðshópinn jafnsettan öðrum sem fá úrlausn sinna mála en gallinn við yfirlýs- inguna er að hvergi er gert ráð fyrir fjármunum í þetta verkefni,“ segir Bjarni og ítrekar að ekki sé komin lausn á því hvernig bregðast eigi við skuldavandanum. „Þessi yfirlýsing var gerð af þáverandi ríkisstjórn, fjórum dögum fyrir kosningar, sem tapaði svo umboði sínu eftir kosningar. Nú er það okkar verkefni að að finna fé til að leysa vandamál þessa hóps en við erum á sama tíma að leita úrlausnar annarra mála.“ Skilin eftir í kuldanum Sverrir Bollason, forsvars- maður lánsveðshópsins, segist ekki skilja af hverju þetta mál sé ekki á dagskrá. „Það var kveðið á um að forgangsverkefni þess- arar ríkisstjórnar væri að taka á skuldavanda heimilanna, hér er tilbúið mál fyrir hóp þar sem pólitísk samstaða er um að þurfi sértækar úrlausnir og því ætti málið að vera afgreitt strax,“ segir Sverrir og bætir við að fólk sé búið að bíða of lengi eftir úrlausn. „Þetta er mjög íþyngj- andi fyrir þennan hóp sem skil- inn var eftir í kuldanum. Þetta eru mest allt stækkandi fjöl- skyldur sem fastar eru í of litlu húsnæði og svo foreldrar þeirra sem eru með skuldir barna sinna fastar á eigin íbúðum. Mér þykir ótrúlegt að ríkisstjórnin ætli ekki að fara í þær aðgerðir sem búið er að undirbúa,“ segir Sverrir og telur að verði ekki farið í sér- tækar aðgerðir fyrir lánsveðs- hópinn á þessu ári sé verið að svíkja hópinn og teyma hann á asna eyrunum. Sverrir ítrekar að lausnin sé komin en að ekki virð- ist vilji til að afgreiða málið. Ágreiningur um lausn Eygló Harðardóttir félagsmála- ráðherra tekur undir að það þurfi að taka á vanda þessa hóps hratt og örugglega en telur að lausnin sem kveðið er á um í viljayfirlýs- ingunni sé ekki varanleg. „Mikil- vægt er að farið sé í sérstakar aðgerðir fyrir þennan hóp, sam- hliða almennum aðgerðum, en lausnin er ekki varanleg ef hún skilur þetta fólk eftir yfirskuld- sett umfram verðmæti eigna sinna,“ segir Eygló. Í yfirlýsingunni er gengið út frá því að hlutur lífeyrissjóða svari til 12 prósenta af heildar- kostnaði og að ríkisvaldið tryggi greiðslu á 88 prósentum þeirrar niðurfærslu sem um ræðir. Þórey Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landsamtaka líf- eyrissjóða, segir að viljayfir- lýsingin sé skýr af þeirra hálfu. „Það er grundvallaratriði að málið fari í gegnum þingið áður en við gerum nokkuð,“ segir Þórey, en lífeyrissjóðirnir áttu að annast framkvæmd skulda- aðlögunarinnar. „Núverandi stjórnvöld lýstu sig ekki andsnúin þessari yfirlýsingu þegar skrifað var undir og gættum við þess að það yrði tryggt,“ segir Þórey og bætir við að boltinn sé alfarið hjá stjórnvöldum. ASKÝRING | 14 SKULDAVANDI HEIMILA Það var kveðið á um að forgangs- verkefni þess- arar ríkis- stjórnar væri að taka á skuldavanda heimilanna, hér er tilbúið mál fyrir hóp þar sem pólitísk samstaða er um að þurfi sértækar úrlausnir og því ætti málið að vera afgreitt strax. Sverrir Bollason, forsvarsmaður lánsveðshópsins ÞÓREY S. ÞÓRÐARDÓTTIR EYGLÓ HARÐARDÓTTIR YFIRVEÐSETT HEIMILI BÍÐA Um 2.000 heimili sem fengu lánsveð til íbúðakaupa á árunum 2004-2008 bíða nú enn eftir því að fá úrlausn sinna mála. Flest er þetta ungt fólk með stækkandi fjölskyldur sem situr fast í of lítilli íbúð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lánsveðshópur enn látinn bíða Viljayfirlýsing um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila með lánsveð til íbúðarkaupa verður ekki afgreidd á sumarþingi. Fjármálaráðherra segir að ekki sé fjárheimild fyrir málinu. Forsvarsmaður lánsveðshópsins segir hópinn svikinn ef málið verði ekki afgreitt á þessu ári. Lovísa Eiríksdóttir lovisa@frettabladid.is Lánsveðshópurinn er afar skuldsettur og samkvæmt niðurstöðum sér- fræðihóps sem skipaður var í fyrra voru 1.955 heimili með meira en 110 prósent veðsetningu og hafa því ekki getað nýtt sér helstu úrræði sem boðið hefur verið upp á fyrir heimili í skuldavanda. Samkvæmt viljayfir- lýsingu þáverandi ríkisstjórnar og Landsamtaka lífeyrissjóðanna, sem undirrituð var 23. apríl 2013, átti þessi hópur að fá sömu úrlausn mála og þeir sem fóru 110 prósent leiðina en nú er óvíst hvort verði af því. For- svarmaður hópsins segir réttlætismál að lánsveðshópurinn standi á sama grunni og sá hópur sem gekkst undir 110 prósent leiðina og því gangi ekki að sá hópur fái almenna skuldaleiðréttingu eins og þá sem núverandi ríkisstjórn hefur talað fyrir. Spurning um réttlæti Þessi yfirlýsing var gerð af þáverandi ríkisstjórn, fjórum dögum fyrir kosningar, sem tapaði svo umboði sínu eftir kosning- ar. Nú er það okkar verk- efni að að finna fé til að leysa vandamál þessa hóps en við erum á sama tíma að leita úrlausnar annarra mála. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA rjóminn er kominn í nýjar umbúðir Rjóminn er einstakur. Hann á sér fastan sess í matargerð okkar íslendinga. Þú finnur girnilegar og sumarlegar uppskriftir með rjóma á gottimatinn.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.