Fréttablaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 18
28. júní 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Sigríður Björg Tómasdóttir, sigridur@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Mér er minnisstætt þegar ég heyrði konu
af vinstri kantinum segja frá fyrstu sam-
skiptum sínum við bankakerfið fyrir
áratugum. Hún þurfti að selja víxil eins
og ungt fólk gerði á þeim tíma til þess að
kaupa bíl eða eldhúsinnréttingu. Faðir
hennar var landsþekktur vinstri maður,
kommi jafnvel meðan leyft var að kalla
menn það. Til hans leitaði unga stúlkan
til þess að fá ráð um hvernig best væri að
haga sér í samskiptum við bankana. Þá
þurfti fólk sem vantaði smávægilega fyrir-
greiðslu að sitja í biðsölum bankastjór-
anna, sem oft voru þrír, sinn úr hverjum
stjórnmálaflokknum. Ráð gamla komm-
ans voru þessi: „Fáðu alltaf að tala við
sjálfstæðisbankastjórann. Það er hægt að
treysta því sem hann segir. Hinir segja þér
bara það sem þú vilt heyra og standa ekki
við neitt.“ Þessum ráðum fylgdi róttæka
unga konan með góðum árangri.
Fyrir síðustu kosningar gáfu formaður
og varaformaður Sjálfstæðisflokksins skýr
loforð um að atkvæðagreiðsla um framhald
viðræðna við Evrópusambandið skyldi fara
fram á fyrri hluta kjörtímabilsins. Eftir
að sjálfseyðingaröfl náðu undirtökunum á
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar
var fylgið komið niður í 18% og nauðsyn-
legt að taka í taumana. Formanninum tókst
að snúa dæminu við, þó að kosningaúrslitin
hafi vissulega verið mun lakari en í stefndi
fyrir Landsfundinn. Ekki er að efa að þessi
ótvíræðu loforð áttu þátt í því að bjarga því
sem bjargað varð.
Forystumenn Samfylkingarinnar hafa
alltaf verið á móti slíkri atkvæðagreiðslu.
Í kosningum vorið 2009 sáu þeir sér akk
í því að setja Evrópumálin á oddinn sem
flokksmál og unnu stórsigur. Enginn vafi
er á því að hefði Evrópusambandsumsókn
verið lögð fyrir þjóðina og samþykkt í
þeim kosningum hefði málið ekki lent í því
öngstræti sem raun ber vitni. Nú í vor var
aftur tækifæri til þess að setja áframhald
umsóknar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Aftur
flæktist Samfylkingin fyrir. Hinir sjálf-
hverfu forystumenn héldu að þeir græddu
á því að aðrir flokkar væru neikvæðir í
garð aðildar. Þeir settu flokkinn ofar mál-
efninu. Allir vita hvernig fór. Kjósend-
ur treystu ekki Samfylkingunni, þó svo
að meirihluti þjóðarinnar vilji ljúka við-
ræðunum.
Í kosningabaráttunni gaf Bjarni Bene-
diktsson loforð um að þjóðin kysi um fram-
hald viðræðna við Evrópusambandið á
fyrri helmingi kjörtímabilsins. Hann efnir
loforðið vegna þess að sjálfstæðismönnum
má treysta.
Sjálfstæðismönnum má treysta
STJÓRNMÁL
Benedikt
Jóhannesson
framkvæmdastjóri
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
VINSÆLASTA INTEL i5
139.990
TOS-C85524V
I i5 i
G i i i
50G i . 15
i .
Eindregið fylgjandi aðild Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, greindi fjölmiðlum frá fundi
sínum með Angelu Merkel Þýskalands-
kanslara í fyrradag. „Hún lýsti fullum
skilningi á afstöðu nýrra stjórnvalda
á Íslandi og afstöðu íslensku þjóðar-
innar, sagði að Evrópusambandið ætti
nú þegar nóg með þau ríki sem þegar
væru innan sambandsins og þau
vandamál þar sem væri þar við að
glíma,“ sagði Ólafur. Í gær birtist
svo frásögn af fundi þeirra á
heimasíðu Merkel sjálfrar. „Þýska-
land hefur ávallt stutt Ísland í
aðildarviðræðunum við ESB og
er enn eindregið fylgjandi
aðild landsins,“ segir
þar. Og nú er spurning
hvort segir réttar frá
efnisatriðum fundarins.
Keppni í annarlegum hvötum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra og Guðbjartur
Hannesson, fyrrverandi velferðar-
ráðherra, áttu í orðaskiptum um
skuldamál heimilanna á þingi í gær.
Brigsl um annarlegar hvatir gengu á
víxl, þar til Guðbjartur batt enda á
þau með þessum orðum: „Hæstvirtur
forseti. Ég ætla nú ekki að fara í
keppni við hæstvirtan for-
sætisráðherra um það
hver hafi mestar
annarlegar hvatir.“
Var það þar með
afgreitt.
Bréf frá Elínu
Dálkinum hefur borist bréf: „Mig
langar til að færa þessum ágæta
dálki í Fréttablaðinu bestu þakkir
fyrir að benda mér á meinlega villu
í ræðu minni á Alþingi á dögunum.
Þar sagði ég að margt stórt gerði eitt
smátt í stað þessa að segja að margt
smátt gerði eitt stórt. Þarna var ég að
tala um skattsvik og hve mikilvægt
væri að allir stæðu saman gegn þeim
hversu lítil sem þau virtust því að,
vildi ég sagt hafa, að margt smátt
gerði eitt stórt. Enginn nema ykkar
athuguli dálkur nefndi þetta við
mig og ég gat sem betur fer leiðrétt
þetta eftir að ég sá Fréttablaðið
í morgun. Þúsund þakkir.
Kveðja, Elín Hirst (þú mátt
gjarnan birta þakkarbréf
mitt).“ stigur@frettabladid.is
Á
forsíðu Fréttablaðsins í gær voru tvær fréttir sem
tengjast réttindabaráttu samkynhneigðra, hvor frá
sínu landinu. Annars vegar var sagt frá því að íslenzk,
samkynhneigð hjón hefðu í fyrsta sinn ættleitt barn.
Hins vegar að Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði
kveðið upp tímamótaúrskurð, þar sem alríkislög sem banna sam-
kynhneigðum hjónum að njóta sömu réttinda og gagnkynhneigð-
ir njóta, meðal annars í velferðarkerfinu, voru lýst í andstöðu við
bandarísku stjórnarskrána.
Sindri Sindrason og eiginmaður hans eru í hópi allra fyrstu
samkynhneigðu hjónanna á Norðurlöndum sem ættleiða barn,
Lagaákvæði sem leyfa slíkar ættleiðingar hafa þó verið í gildi í
allnokkur ár; á Íslandi frá 2006.
Ein meginástæðan fyrir því
að aðeins örfáar ættleiðingar
hafa gengið í gegn er að sam-
kynhneigð pör geta eingöngu
ættleitt börn innanlands, en
ekki frá erlendum ríkjum, eins
og fram kemur í Fréttablaðinu
í dag. Ekkert ríki sem Íslenzk
ættleiðing er með samning við
leyfir ættleiðingar samkynhneigðra hjóna. Árni Grétar Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, segir í blaðinu í dag að
þrýsta þurfi á utanríkisráðuneytið að beita sér fyrir samningum
við erlend ríki um að leyfa slíkar ættleiðingar. Það er full ástæða
til.
Þessi tíðindi rifja hins vegar upp að ein af röksemdunum gegn
því að leyfa hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra á sínum
tíma var að það gæti spillt fyrir möguleikum gagnkynhneigðra
hjóna að ættleiða börn frá ríkjum sem ekki leyfðu ættleiðingar
samkynhneigðra. Þess hefur hins vegar ekki orðið vart.
Enda eiga einstök ríki aldrei að láta það draga úr sér að
tryggja mannréttindi að önnur ríki virði þau ekki. Eftir því sem
fleiri ríki leyfa hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra ættu
ættleiðingar á milli landa að verða auðveldari.
Ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna er gríðarlegur áfangi
í mannréttindabaráttu samkynhneigðra þar í landi. Sama dag
ákvað rétturinn að fella skyldi úr gildi bann við giftingum sam-
kynhneigðra sem samþykkt var í almennri atkvæðagreiðslu í
Kaliforníu.
Ákvarðanir réttarins þýða þó hvorki að hjónaband samkyn-
hneigðra verði sjálfkrafa viðurkennt í öllum ríkjum Bandaríkj-
anna, né að fólk sem giftist löglega í einu ríki fái að njóta fullra
réttinda í öðru. Auk þess þarf alríkisþingið að breyta ýmsum
lögum til þess að dómur Hæstaréttar hafi tilætluð áhrif.
Báðar þessar fréttir eru hins vegar til marks um að mannrétt-
indabaráttu samkynhneigðra miðar áfram – hraðar en margur
hugði fyrir fáeinum árum, en samt er alveg ótrúlega mikið eftir.
Jafnvel hér á landi, þar sem lagalegur réttur samkynhneigðra
er hvað bezt tryggður í heiminum, er talsvert langt í land að
þeir njóti raunverulega sömu möguleika og réttar og gagnkyn-
hneigðir. Þessari mannréttindabaráttu er langt í frá lokið.
Hjónaband og ættleiðingar samkynhneigðra:
Áfangar í mann-
réttindabaráttu
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is