Fréttablaðið - 28.06.2013, Síða 20

Fréttablaðið - 28.06.2013, Síða 20
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20 Ágæta Borgarstjórn og íbúar Reykjavíkur Í Reykjavík er fjöldi gæða tónlistartengdra viðburða ótrúlegur þó að maður miði ekki einu sinni við fólksfjölda. En tónleika- staðirnir víkja nú smátt og smátt fyrir markaðs- öflunum. Það er ekki óeðlilegt að þetta gerist miðað við vaxandi áhuga á Íslandi. Áhuga sem skilar sér í stækkandi hópi ferða- manna sem við þurfum að koma til móts við með fleiri gistirýmum. En menning og listir ættu ekki að þurfa víkja fyrir ferðamönn- um. Ekki frekar en náttúruperlur eða annað sem ferðamenn koma hingað til að sjá og upplifa. Ef það verður ekkert eftir að sjá eða upp- lifa, hvers vegna ættu ferðamenn að koma? Til að skoða Hótelþorpið Hundraðogeinn? Eða gæti það verið að ört stækkandi hluti ferða- manna á Íslandi sé hingað kominn til að upplifa menninguna og gras- rótina? Ég hef áhyggjur af stöðunni í miðbænum ef allir sem eiga hags- muna að gæta setjast ekki bráð- um við sama borð og ræða saman á skapandi hátt. Hvort sem það eru íbúar, yfirvöld, listamenn, verslunar fólk, veitingafólk og síðast en ekki síst fjárfestar. Við þurfum að ræða hvernig okkar nánasta umhverfi þjóni okkur og okkar gestum sem best. Það væri jafnvel ekki vitlaust að fá fulltrúa ferðamanna inn á þennan fund. Fyrir mér jaðrar það við nátt- úruspjöll þegar listrænir hópar og/eða menningarlegar kreðsur fá ekki að njóta sín. Við myndum ekki steypa yfir Geysi til að byggja hótel. Það væri jafnfáránleg hug- mynd og að byggja Disneyland í Dimmuborgum. Þótt við gætum mögulega grætt á því. Plan B Í seinustu viku kom ég með hug- mynd að tónleikastað sem gæti leynst í Hörpu, hrárri sal og byggðan á öðrum formerkjum en aðrir salir í húsinu. Stærðin og leigan á þeim sölum sem fyrir eru í húsinu er ekki við- ráðanleg fyrir 80% þeirra hljómsveita sem eru starf- andi á Íslandi og eru með fleiri en 500 aðdáendur á Facebook. Fyrir utan það að vera of dýr í leigu fyrir okkar minni bönd er t.d. Kaldalón, minnsti salurinn, sitjandi salur. Það hentar auðvitað ekki fyrir unga og dansglaða aðdáendur okkar nýjustu hljómsveita. Í þessum hugsanlega sal þyrftu hljómsveitir aðeins að greiða laun tæknimanna. Það þótti mér skemmtileg leið þegar við spiluðum á Organ/Batt- eríinu í gamla daga og borguðum hljóðmanni húsins, Óla, fasta og sanngjarna upphæð strax eftir giggið. Þess má geta að Óli heitir í dag Ólafur Arnalds og er vel þekktur tónlistarmaður úti um allan heim. Litlar hljómsveitir hafa ekki efni á leigu á húsnæði eða hljóð- kerfum eins og er ætlast til í dag í Hörpu, Tjarnarbíói og Iðnó. Þessi sérstaki salur þyrfti að vera rekinn eins og flestir einkareknir tónleikastaðir þar sem rekstrar- kostnaður greiðist með tekjum af veitingasölu. Ég hef heyrt gagnrýnisraddir um það að hafa allt tónleikahald borgarinnar í sama húsinu. Auð- vitað væri best ef Nasa fengi að standa. Hins vegar snýst umræðan um tónleikastaði of mikið um að vera með eða á móti. Það hefur ekki skilað neinu. Enda hentar það peningaöflunum vel ef fólk vinnur ekki saman. Það er aragrúi af góðu fólki að bjarga Nasa. Fólk sem ég treysti til að taka þann slag. Ég vil hins vegar nýta tækifærið á sama tíma og hugsa um plan b. Kostirnir við að hafa svona stað í Hörpu eru nokkuð margir. Þar vega þyngst tæknilegar lausnir, reynt starfsfólk og yfirbyggingin sem er þegar til staðar í húsinu. En ef ekki í Hörpu þá hljótum við að finna annan stað. Hvað þarf til? En hvað er það sem gerir stað að hentugum tónleikastað? ■ Í fyrsta lagi þarf staðurinn að vera niðri í miðbæ, enda er veitingasala lykilatriði í rekstri skemmtistaða. ■ Í öðru lagi þarf staðurinn að vera tæknilega búinn þannig að komið sé til móts við þær lág- markskröfur sem flestar hljóm- sveitir gera til að geta flutt tónlist sína af tilætluðum krafti. Hvort sem það er góður hljómburður eða nægjanleg lofthæð svo að ljós fái að njóta sín. ■ Í þriðja lagi þurfa bókarar staðarins vinnufrið til að bóka skemmtileg atriði og halda spenn- andi viðburði í friði fyrir fólki föstu í íslenska draumnum í leit að skjótum gróða í hvert skipti sem koma nýjar tölur um fjölda ferða- manna á Íslandi. Er ekki þess virði að athuga hvort það sé hægt að bæta við sal fyrir grasrótina í tónlistarhús allra landsmanna? Ég vil taka það fram að ég veit ekkert um arki- tektúr og enn minna um rúmfræði. En ég veit hins vegar heilmikið um tónleikastaði í hinum ótrúlegustu rýmum og hef líka skilning á fjár- málum minni hljómsveita. Ég vil trúa því að nægilega stórt frjálst rými sé til staðar í Hörpu. Á Sónar-hátíðinni í Hörpu síðast- liðinn vetur var t.d. hluta bíla- kjallarans breytt í diskótek. Það gaf góða raun og ég vona að fólk geti komið með frumlegar lausnir í þessum efnum. Ykkar borg- arstjórn er óhefðbundin að því leytinu til að innan ykkar raða leynist fleira skapandi fólk en hingað til. Þess vegna bið ég ykkur um að hjálpa, en líka að skapa. Disneyland í Dimmuborgum... Í byrjun mars síðast liðnum auglýsti Minjastofnun Íslands eftir umsóknum um styrki úr húsfriðunar- sjóði fyrir árið 2013. Í aug- lýsingunni segir að Minja- stofnun úthluti styrkjum úr sjóðnum, en hann á að stuðla að „varðveislu og viðhaldi friðlýstra og frið- aðra húsa og mannvirkja […] Sjóðnum ber einnig að stuðla að byggingarsögu- legum rannsóknum, þar með talið skráningu húsa og mann- virkja, og miðla upplýsingum um þær.“ Í reglum um úthlutanir úr húsa- friðunarsjóði segir að Minja- stofnun Íslands úthluti „styrkjum úr húsafriðunarsjóði að fenginni umsögn húsafriðunarnefndar“ og að umsóknir séu metnar „með til- liti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tækni- legs ástands ásamt gildi henn- ar fyrir varðveislu byggingar- arfleiðarinnar.“ Í reglunum er einnig ákvæði sem segir að Minjastofnun geti „ákveðið í samráði við húsafrið- unarnefnd hverju sinni í aug- lýsingu hvort sjóðurinn leggi áherslu á ákveðna þætti minja- verndar í úthlutun ársins“. Í aug- lýsingunni eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2013, var ekkert slíkt ákvæði að finna. Úthlutunarreglurnar eru einn- ig þannig að allir þeir sem vinna að rannsóknum sem falla undir byggingar sögu geta sótt um í sjóð- inn, en reglurnar fara ekki í mann- greinarálit. Úthlutun úr húsafriðun- arsjóði 2013 var tæplega 42 milljónir, en nokkrir umsækjendur, þar á meðal undirritaður, fengu ekki úthlutun. Þar sem rann- sókn mín og samstarfs- manns slær viðkvæman tón í opinberri umfjöllun um íslenskan arkitektúr, lék mér forvitni á að vita með hvaða hætti núver- andi húsafriðunarefnd hefði fjallað um umsókn- ina. En rannsóknin snýr m.a. að því að skoða sögulega útrýmingar- áætlanir íslenskra stjórnvalda á íslenska torfbænum og er við- kvæmt menningarpólitískt mál í dag, þar sem viðsnúningur hefur orðið á opinberri afstöðu til slíkra húsakynna. Ég hafði því samband við einn nefndarmann húsafriðun- arnefndar og sagði hann mér að nefndin hefði tekið vel í erindið og hefði mælt með því við forstöðu- mann Minjastofnunar að styrkur yrði veittur í verkefnið. Á svig við úthlutunarreglur Forstöðumaðurinn tók hins vegar ekki ráðleggingum húsafriðunar- nefndar og veitti verkefninu ekki styrk. Ég hafði samband við for- stöðumanninn og spurði hana að því hvort hún gæti sagt mér hvort það væri stefna Minjastofnunar að styrkja ekki slík verkefni. Hún svaraði mér um hæl með tölvu- pósti og sagði orðrétt að það sé „stefna minjastofnunar að styrkja ekki rannsóknarverkefni annarra ríkisstofnana“. Þetta afdráttarlausa svar væri ekki í frásögur færandi, nema hvað að hér er farið á svig við úthlutunarreglur húsafriðunar- sjóðs, sem er öllum opinn, og það sem meira er, Minjastofnun sjálf fer á svig við eigin stefnu, þar sem úthlutun Minjastofnunar úr sjóðn- um fyrir 2013 fer að stærstum hluta (32 milljónir) til „rannsókn- arverkefna annarra ríkisstofn- ana“ eins og forstöðumaðurinn orðaði það. En fimmtán milljónir fara til húsasafns Þjóðminjasafns Íslands og sautján milljónir til bókaverkefnisins Kirkjur Íslands sem nokkrir aðilar standa að, þar á meðal Þjóðminjasafn Íslands. Forstöðumanni Minjastofnunar virðist ekki ljós sú þversögn sem felst í orðum hennar og það sem meira er, virðist ekki átta sig á þeim reglum sem eru í gildi eða hvert hlutverk húsafriðunarnefnd- ar er varðandi úthlutanir úr sjóðn- um, en nefndin leggur fram fag- legt mat sitt á því hvaða umsóknir skuli styrkja. Á heimasíðu Minja- stofnunar er ekki ljóst hvaða verk- ferlar taka gildi eftir umsögn húsafriðunarnefndar og hvernig forstöðumaður leggur mat á þær tillögur. Það er óskandi að Minja- stofnun og forsætisráðuneytið taki þessi mál til alvarlegrar skoðun- ar, en það nær ekki nokkurri átt að þversagnakenndar geðþótta- ákvarðanir forstöðumanns Minja- stofnunar ráði alfarið niðurstöðum um úthlutanir úr opinberum sjóði. Þversögn Minjastofnunar Íslands Svo virðist sem hugtakið málfræði hafi fengið nokkuð neikvæða merk- ingu í hugum málnotenda. Margir tengja hana við utanbókarlærdóm, eyðufyllingar og tilgangsleysið sem þeir upplifðu þegar þeir sátu á skólabekk og reyndu með mis- góðum árangri að skilja muninn á þáskildagatíð og núskildagatíð, við- urlögum og einkunnum. Efnið sem nemendur læra á grunnskólagöngu sinni er síðan að miklu leyti end- urtekið í fyrstu íslenskuáföngum framhaldsskóla. Það er þá ekki úr vegi að spyrja sig: Hvers vegna eyðum við dýr- mætum kennslustundum í fram- haldsskóla í að kenna þessi hugtök ef nemendur hafa þegar lært þau? Margar raddir hafa einmitt heyrst um að kennarar eyði of miklu púðri í þurra málfræðikennslu þegar hægt væri að verja tímanum í kennslu bókmennta og virðist sú skoðun líka nokkuð útbreidd meðal íslensku- kennara. Hugsanleg skýring á skiptum skoðunum um mikilvægi málfræðikennslu er sá ólíki og oft afmarkaði skilningur sem gjarnan er lagður í hugtakið málfræði. En málfræðin er svo miklu meira en bara fallbeyging, viðtengingar- háttur, ég hlakka og mig langar. Undir hatt málfræðinnar falla líka viðfangsefni eins og máltaka barna, mál beggja kynja, slangur, nýyrði, orðræðugreining, málbreytingar, staðbundnar mál- lýskur og félagsleg málbrigði. Í þess- um viðfangsefnum birtist einmitt fjöl- breytileiki tungumálsins sem gerir það jafnlifandi og raun ber vitni en af einhverjum ástæðum virðast þó hefðbundin málfræðiverkefni frekar rata inn í kennslustofuna. Með því að fjalla um málfræði í stærra samhengi í móðurmáls- kennslu í framhaldsskólum fengju nemendur tækifæri til að kynnast tungumálinu enn betur og hagnýta hefðbundinn málfræðilærdóm. Það gætu þeir t.d. gert með því að rann- saka og lýsa eigin tungumáli með þeim hugtökum sem þeir hafa til- einkað sér. Því má líkja við að eftir að nemendur hafa lært hvað plús og mínus táknar í stærðfræði æfa þeir sig í að leggja saman og draga frá. Höfundar vilja því nota þennan vettvang til að breiða út fagnaðar- erindið: Málfræði er ekki bara stagl og eyðufyllingar og tilbúnar setn- ingar í kennslubókum. Hún fjallar um tungumálið eins og það leggur sig og býr í öllu sem málnotendur mæla og rita á degi hverjum. Mikil- vægt er að móðurmálskennarar veki athygli nemenda á því hversu breitt svið málfræðin nær yfir og glæði áhuga þeirra á fjölmörgum mögu- leikum greinarinnar. Beina þarf sjónum að virkni tungumálsins, en ekki einungis formi þess, með því að nálgast viðfangsefnið á nýjan hátt. Þannig gerum við málfræði að jafn- lifandi námsgrein og viðfangsefni hennar, hin lifandi tunga, er. Lifandi tunga, lifandi málfræði Í stórmerkilegu viðtali í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins vekur Þorgrímur Þráinsson rithöfundur athygli á miklu heilbrigðis- vandamáli í samtíð okkar og sennilega risavöxnu í framtíðinni verði ekki brugðist við í tíma. Hann segir: „Sonur minn tólf ára þurfti í vetur að lesa 10 blaðsíður í bók áður en hann fékk að fara í tölvuna. Símar, sjónvarp og tölvur geta verið miklir tímaþjóf- ar og alið á leti sem fer að verða landlæg. Við sjáum á rannsóknum að 23 ára gamalt fólk hreyfir sig jafnlítið og áttræð gamalmenni. Það kæmi mér ekki á óvart að sjá „afvötnunardeildir,“ eftir nokkur ár fyrir þá sem orðnir eru fíklar á facebook, twitter, candy crush, sjónvarpsþætti og svo framvegis. Fjöldi fólks er með frestunaráráttu, er alltaf alveg að fara að breyta til betri vegar en svo er sófinn bara svo rosalega þægilegur. Ég þekki fólk sem hefur aldrei tíma til að hreyfa sig en þekkir allar persónur í öllum sjónvarpsþáttum.“ Svo mörg voru þau orð. Þarna talar maður sem hefur haft það verkefni að berjast gegn reyking- um og óreglu með miklum árangri meðal barna og unglinga um leið og hann hefur skrifað metsölubækur. Það er myndarlegt framtak hjá Bónus og Hagkaup að styrkja fyrir- lesarastarf Þorgríms þar sem hann hittir nemendur tíundabekkjar grunnskólanna og ræðir við þá um lífið og tilveruna. Þorgrímur segir ennfremur í viðtalinu: „Það segir sig sjálft að börn sem alast upp við erfiða neyslu foreldra, afskiptaleysi eða agaleysi eiga erfiðara með að fóta sig en önnur. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft,“ bætir hann við. Ég hygg að þessi vandi sé til staðar í hverri ein- ustu fjölskyldu á Íslandi. Mig langaði bara að vekja athygli lesenda Frétta- blaðsins á þessu viðtali við Þor- grím Þráinsson um leið og ég spyr er ekki rétt að spyrna við fæti? Hvernig er það hægt? Það verður ekki gert nema í samstarfi skól- anna og heimilanna. Er það ekki rosalegt að börn sitji stóran hluta vökutímans á rassi sínum og leiki við tölvuna eins og hún sé eina við- ræðuhæfa veran í veröldinni sem talandi sé við? Er það ásættanlegt að tvítugur einstaklingur hreyfi sig álíka mikið og áttrætt fólk? Hvernig verður sá tvítugi ef hann nær áttræðisaldri? Mjög stór hluti eldri kynslóðarinnar með erfiðis- vinnu að baki er það vel á sig kom- inn að heilbrigðiskerfið hefur ekki þurft að hafa mikinn kostnað af þeirri kynslóð. Hvað kostar þetta hreyfingarlausa fólk heilbrigðis- kerfið upp úr fertugu eða fimmtugu um miðja þessa öld? Ég veit að sem betur fer eru undantekningarnar margar og ætla ekki að alhæfa, því væri gott að rannsaka vandamálið, finna út hversu stór hluti ungs fólks glímir við þetta vandamál. Eru það 5%, 10% eða 20%? Alveg sama hversu talan er stór mun margt af þessu fólki fara á mis við eðlilegt líf verði ekkert gert. Tökum mark á varnaðarorðum Þorgríms Þráins- sonar og gerum eitthvað strax. Er barnið þitt gang- andi tímasprengja? ➜ Málfræði er svo miklu meira en bara fallbeyg- ing, viðtengingar- háttur, ég hlakka og mig langar. ➜ Er það ásætt- anlegt að tvítugur einstaklingur hreyfi sig álíka mikið og áttrætt fólk. MENNING Unnsteinn Manuel Stefánsson tónlistarmaður ➜ Ég hef áhyggjur af stöðunni í miðbænum ef allir sem eiga hagsmuna að gæta setjast ekki bráðum við sama borð og ræða saman á skapandi hátt. Hvort sem það eru íbúar, yfi rvöld, listamenn, verslunarfólk, veitingafólk og síðast en ekki síst fjárfestar. MENNING Sigurjón Baldur Hafsteinsson dósent við Háskóla Íslands ➜ Forstöðumaðurinn tók hins vegar ekki ráðleggingum húsafriðunar- nefndar og veitti verkefninu ekki styrk. SAMFÉLAG Guðni Ágústsson fv. alþingismaður og ráðherra MENNTUN Gyða Erlingsdóttir Hjördís Alda Hreiðarsdóttir Þorsteinn Surmeli framhaldsnemar í kennslufræðum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.