Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 39
3sumardrykkir
FLOTTUR STAÐUR Veitingahúsið Nora Magasin er skemmtilegt útlits. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBELGÍSKUR HVEITIBJÓR Á KRANA Hoegaarden-bjórinn er hinn upprunalegi belgíski hveitibjór.
Nora Magasin er eini staðurinn á landinu sem býður upp á hann úr krana.
BARINN Úrvalið á barnum er mikið.
REKSTRARSTJÓRI OG KOKKUR Brynja er hér með kokkinum Akane Monavon sem nýtir matarhefðir frá mörgum heimshornum í eldhúsinu.
NOTALEGT Gott er að sitja á Nora Magasin og velta fyrir sér heimsfréttunum.
Við opnuðum óformlega fyrir hálfum mánuði en á morgun verður
formlegt opnunarteiti,“
segir Brynja Skjaldar,
rekstrarstjóri Nora
Magasin veitingahússins í
Pósthússtræti 9.
Hugmyndafræðin að
baki veitingahúsinu er
sérstök. „Kokkurinn
okkar, Akane
Monavon, er hálf
frönsk og hálf
japönsk. Hún hefur
ferðast um allan
heim og kynnt sér
ólíka matarmenningu
og hefur því
skemmtilega
sýn á mat og
eldamennsku,“ segir
Brynja.
Á efri hæð Nora
Magasin hefur
verið byggt auka
eldhús þar sem hægt
er að matreiða í augsýn
gestanna. „Akane vill að upplifun
matargesta snúist um samskipti við
kokk og þjóna, að þeir finni lyktina
af matnum og sjái hann. Þannig
verði veitingahúsaferðin að lifandi
upplifun,“ útskýrir Brynja.
Sögufrægur belgískur bjór
Á Nora Magasin er í boði úrval
af bjór. „Við verðum með fimm
tegundir á krana og töluvert af
flöskubjór,“ segir Brynja og minnist
sérstaklega á Hoegaarden-bjórinn.
„Það er belgískur hveitibjór sem er
sérinnfluttur fyrir okkur frá Belgíu.
Við erum eini staðurinn á Íslandi
sem er með Hoegaarden á krana,“
segir Brynja og lýsir bjórnum nánar.
„Hoegaarden er hinn upprunalegi
belgíski hveitibjór (Wit). Hann var
fyrst bruggaður á 15. öld í smábænum
Hoegaarden. Hann er skýjaður eins
og hveitibjór sæmir og leyndarmálið
á bakvið frískandi bragðið er ekta
appelsínubörkur og smáræði af
kóríander.“
Gestir Nora Magasin eru afar
hrifnir af bjórnum að sögn Brynju.
„Fólkið er sólgið í bjórinn og nýtur
þess að drekka hann úr glasi úti í
sólinni,“ segir hún og bendir á að
mikið sé lagt upp úr afslappaðri
og notalegri útiaðstöðu hjá Nora
Magasin.
Brynja segir bjórinn henta vel
með ýmsum mat, á borð við fisk-
og grænmetisrétti. „Hann er til
dæmis rosa góður með bláskelinni af
matseðlinum okkar og ekki síður með
ostaplattanum,“ segir Brynja og býður
fólk velkomið á Nora Magasin.
Lifandi upplifun á Nora Magasin
Nýir vindar blása á veitingastaðnum Nora Magasin í Pósthússtræti 9. Lögð er áhersla á frábæra matarupplifun og fjölbreyttar veitingar í
föstu og fljótandi formi. Nora Magasin er eini staðurinn á Íslandi þar sem hægt er að fá hinn sögufræga belgíska Hoegaarden-bjór á dælu.