Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 51
FÖSTUDAGUR 28. júní 2013 | MENNING | 27
kunna ekki að bakka með kerru.
Backman segist þó ekki hafa haft
áhyggjur af því að Ove væri of
fráhrindandi.
„Mér finnst hann ekki svo
óþolandi. Jú, Ove stendur á sínu,
er jafnvel þrjóskur og andstyggi-
legur, en hann vill vel og oft hefur
hann jafnvel á réttu að standa,
eða það finnst mér að minnsta
kosti, og þess vegna finnst mér
Ove umfram allt hrikalega
skemmtilegur. Ég skil hins vegar
vel að margir lesendur líti á hann
sem algjöran skíthæl en það þýðir
þá að ég er oft líka algjör skít-
hæll.“
Það hangir margt á spýtunni í
Manni sem heitir Ove; að eldast,
ástvinamissir, kynslóðabilið, að
vera utanveltu í samfélaginu og
þar fram eftir götunum. Barátta
Ove við „kerfið“ er líka veiga-
mikill þáttur í frásögninni. Back-
man segir bókina þó ekki endilega
endur spegla sýn hans á hvern-
ig það er að eldast í Svíþjóð eða
fela í sér meðvitaða gagnrýni, til
dæmis á hið rómaða sænska vel-
ferðarkerfi.
„Ég hef aldrei lagt upp með það
að skrifa samfélagslega gagnrýni.
Ég er satt best að segja ekki nógu
klár til þess. Ég er bara náungi
sem vill segja sögur eins vel og
skemmtilega og ég get. Ef fólk vill
kryfja bókina eitthvað frekar er
því auð vitað frjálst að gera það en
sjálfur hugsa ég aldrei um söguna
sem eitthvað annað og meira en
sögu.“
Frásögnin einkennist af hárfínu
jafnvægi milli kaldhæðni og ein-
lægni. Backman segist ekki hafa
lagt sérstaka áherslu á það.
„Ég kann einfaldlega að meta
kaldhæðni, það er minn húmor,
en á hinn bóginn er ég líka frekar
tilfinninganæmur maður. Mér
finnst húmor fyndnastur þegar í
honum er einhver undirliggjandi
tregi og öfugt.“
Vinsældirnar komu á óvart
Backman segir vinsældir bókar-
innar hafa komið sér rækilega
á óvart og ekki síður útgefanda
hans.
„Þegar bókin kom út í septem-
ber í fyrra spurði ég útgáfu-
stjórann hvort ég ætti að fara og
árita á Bókamessunni í Gauta-
borg. Hann hló bara að mér og
sagði: „Nei nei, þú yrðir bara von-
svikinn því enginn myndi mæta.“
Ég borgaði því undir mig sjálfur
og bjó mig undir að fimm manns
létu sjá sig. Þeir urðu um 500 og
daginn eftir seldi umboðsmaður-
inn minn réttinn að bókinni til tíu
landa. Það var fyrst þá sem ég
sagði við konuna mína: „Fjandinn,
þetta gæti orðið eitthvað.“
Það er ekki á vísan að róa í
bókabransanum og Backman
segir að þrátt fyrir vinsældir Ove
sé ekki öruggt að hann geti endur-
tekið leikinn.
„Ove virðist hafa hreyft við ein-
hverju djúpstæðu í fjölda fólks.
Margir virðast kannast við hann
úr eigin umhverfi; eigin manni,
föður, nágranna eða hvaðan sem
er, og þykir þess vegna kannski
meira til hennar koma en hæfi-
leikar mínir segja endilega til um.
Ég held að það sé ekki hægt að
spá því með vissu hvort bók eigi
eftir að slá í gegn. Mér á ábyggi-
lega ekki eftir að takast það með
hverri bók sem ég skrifa. Ef ég
skrifa einhvern tímann aðra bók
sem verður jafnvinsæl yrði það
frábært. Ef ekki er ég sáttur við
að hafa gert það að minnsta kosti
einu sinni.“
Backman hefur þegar lokið
við næstu skáldsögu sína, Min
mormor hälsar och säger förlåt
(Amma biður að heilsa og biðst
fyrirgefningar), sem kemur út í
Svíþjóð í haust.
„Hún fjallar um sjö ára gamla
stúlku, sem á ýmislegt sameigin-
legt með Ove; hún er skapill og
finnst fólk vera fífl. Hún á hins
vegar ömmu af því tagi sem fólk
kallar „sérstakt“; ein af þessum
ömmum sem reykir innandyra
á spítölum, fer nakin út á svalir
og skýtur á Votta Jehóva með
málningar byssu. Þetta er öðru-
vísi bók en Maður sem heitir Ove
en ég vona að hún rati til sinna.“
Þetta er elsta tónlistarhátíðin á
Íslandi á sumrin og elsta hátíð á
Norðurlöndum sem einbeitir sér
að barrokk og annarri gamalli
tónlist,“ segir Sigurður Halldórs-
son, listrænn stjórnandi Sumar-
tónleika í Skálholtskirkju. „Þannig
að þetta er orðin mjög „establíser-
uð“ hátíð.“
Hátíðin hefur verið haldin á
hverju ári frá 1975 og er þetta því
39. sumarið sem Skálholtskirkja
ómar af söng og hljóðfæraleik
í sex vikur. Fyrstu tónleikarnir
verða á laugardaginn klukkan
15 og þar flytur norski kammer-
kórinn Christians Consort trúar-
leg norsk þjóðlög ásamt verkum
eftir Tallis, Gounod og Bruck-
ner undir stjórn Martin Pearson.
Einnig verður flutt nýtt verk eftir
Úlfar Inga Haraldsson fyrir brass
og orgel. Á seinni tónleikunum
sem hefjast klukkan 17 verða líka
flutt verk eftir Úlfar ásamt verk-
um eftir Tryggva M. Baldvins-
son og norska tónskáldið Bjarne
Sløgedal. Þar koma fram ungir
málmblásturs leikarar ásamt Mart-
in Pearson orgelleikara.
„Það kemur óvenjumikið af gest-
um frá útlöndum í ár,“ segir Sig-
urður. „Kórinn Christians Consort
kemur frá Noregi og svo kemur
annar kór, Bristol Bach Choir, frá
Bretlandi, auk fjölda hljóðfæra-
leikara. Einnig er óvenjumikið
af nýrri og nýlegri tónlist í ár og
ber þar fyrst að nefna að Hljóm-
eyki mun flytja nýtt tónverk eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson, sem er
staðartónskáld sumarsins.“
Dagskrá hátíðarinnar í heild
má nálgast inn á heimasíðunni
sumartonleikar.is. - fsb
Elsta sumartónlistar hátíð á Íslandi
Tónlistarhátíðin Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefst á laugardaginn og stendur næstu sex vikur.
LISTRÆNN STJÓRNANDI Sigurður
Halldórsson stjórnar nú sumartónleikum
í Skálholtskirkju í níunda sinn.
MYND ÚR EINKASAFNI