Fréttablaðið - 28.06.2013, Page 52
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér
með auglýst tillaga S kipulags- og byggingardeildar
Kópavogs að breyttu deiliskipulagi Kópavogsbakka 2
og 4. Vegna 2,5 til 3,0 m hæðarmunar á götu og landi
sunnan við Kópavogsbakka 2 og 4 völdu lóðarhafar
að reisa húsin á háum sökklum í stað þess að vera
með jarðvegspúða undir þeim eins og gert var á
húsunum í Kópavogsbakka 6, 8 og 10. Heimiluð hefur
verið nýting á hluta sökkulsrýmis í húsinu nr. 4 en
ekki í nr. 2. Umrædd breyting felur í sér heimild til
lóðarhafa Kópavogsbakka 2 og 4 að nýta umrædd
sökkulrými undir einbýlishúsunum fyrir geymslur og
íveruherbergi. Samanlagt flatarmál húsanna eykst
og þ.m. lóðarnýting. Tillagan er sett fram á uppdætti í
mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð
dags. 14. maí 2013. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild
Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00
mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til
15:00, frá og með 28. júní 2013. Einnig má sjá tillöguna
á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist
skriflega Umhverfissviði, Skipulags- og byggingardeild
eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 12. ágúst 2013.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Kópavogi
kopavogur.is
Kópavogstún. Kópavogsbakki 2 og 4
Framkvæmdastjóri óskast.
Spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling.
Sláturfélag Austurlands, sem rekur kjötvinnslu og
matvöruverslun á Egilsstöðum, óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra.
Helstu starfssvið:
1. Starfsmannastjórnun.
2. Fjármálastjórn.
3. Samskipti við birgja og viðskiptavini.
4. Fagleg yfirumsjón með vinnslu og verslun
Hæfniskröfur.
1. Fagmenntun á sviði kjötvinnslu og meðferð matvæla.
2. Reynsla af stjórnunarstörfum.
3. Snyrtimennska, skipulagshæfileikar og reglusemi ásamt
góðum hæfileikum til mannlegra samskipta
Um er að ræða ábyrgðarstarf, sem krefst fórnfýsi og
umhyggju og felur í sér að halda áfram því mikla
uppbyggingarstarfi, sem unnið hefur verið á vegum
félagsins undanfarin ár.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí næstkomandi
Nánari upplýsingar gefa Gestur J. Hallgrímsson s. 895 8929
og Sigurjón Bjarnason í s. 471 1171.
STJÓRNARMENN Í
KÍM OG RÁÐHERRA
Ólöf K. Sigurðardóttir,
Ragnar Kjartansson,
Illugi Gunnarsson og
Þóroddur Bjarnason.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Nýtt og opnara ferli verður tekið upp við val
á framlagi Íslands á Feneyjatvíæringinn í
myndlist. Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem Kynningarmiðstöð íslenskrar mynd listar
efndi til í gær að viðstöddum Illuga Gunnars-
syni, mennta- og menningarmálaráðherra.
Nýjungin felst í því að héðan í frá verður
kallað eftir tillögum og stefnt er að því að velja
úr innsendum tillögum þann listamann, eða þá
listamenn, sem verða fulltrúar í þjóðar skála
Íslands 2015. Með þessu fyrirkomulagi er
horfið frá því lokaða ferli sem hingað til hefur
verið viðhaft, en frá árinu 2007 hefur fagráð
KÍM alfarið séð um val á fulltrúa þjóðarinnar.
„Við vildum teygja okkur út til myndlistar-
samfélagsins og gefa öllum fagaðilum innan
þess kost á að senda inn tillögur um fulltrúa
á þennan umfangsmesta listviðburð í heimi,“
segir Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar
KÍM. „Það má kannski segja að við séum að
ræsta út „reykfylltu bakherbergin“, eins og
gárungarnir segja. Lokað ferli skapar tor-
tryggni, það er tilhneiging til að líta á það sem
elítisma. Mér finnst þetta nútímaleg og lýð-
ræðisleg leið og í anda dagsins í dag.“
Hið nýja fyrirkomulag leysir fagráðið
ekki af hólmi og KÍM verður eftir sem áður
ábyrgðar aðili skálans og annast alla umgjörð
hans. „Þetta tryggir hins vegar að fleiri
sjónar mið komast að og fleiri listamenn til
álita.“
Spurður hvort þessi breyting sé vísir að enn
opnara ferli í framtíðinni segir Þóroddur það
vel koma til greina.
„Mér finnst heillandi hugmynd að leika
sér að því hvernig á að velja fulltrúa á
svona atburð sem er kostaður að stórum
hluta fyrir skattfé, Með þessari nýjung
erum við líka að varpa fram þeirri spurn-
ingu hvernig fólk vill hafa þetta, ekki bara
hvaða listamenn eiga að fara utan heldur
hreinlega hvers konar list við viljum senda
á þennan viðburð og kynna í okkar nafni.“
bergsteinn@frettabladid.is
Viljum teygja okkur út til
myndlistarsamfélagsins
Nýtt opnara ferli við val á fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringinn var kynnt í gær. Aðilar innan lista-
samfélagsins geta sent inn tillögur sem fagráð KÍM vinnur úr.
Óskað eftir tillögum
Kynningarmiðstöð Íslenskrar myndlistar óskar
eftir tillögum að fulltrúa / fulltrúum Íslands á
Feneyjartvíæringi. Eftirfarandi eru sérstaklega
hvattir til að senda inn vel útfærðar tillögur:
listamenn, sýningarstjórar, listfræðingar, söfn
og sýningarstaðir. Nánari upplýsingar um þær
kröfur sem tillögurnar þurfa að uppfylla má
finna á heimasíðu KÍM - icelandicartcenter.is.
Skilafrestur er til 1. september. Fagráðið vinnur
síðan úr þeim tillögum sem berast og er stefnt
að því að ljúka ferlinu fyrir lok september.
Sýning á verkum Eiríks Smith
undir yfirskriftinni Tilvist verð-
ur opnuð í Hafnarborg á laugar-
dag. Á sýningunni eru verk
Eiríks frá árunum 1968 til 1982
og vísar titillinn til tilvistarlegra
spurninga sem leituðu á lista-
manninn á þessum tíma.
Á þessu tímabili tók Eiríkur að
færa sig frá abstraktmálverki og
yfir í hlutbundin raunsæisverk,
en sú þróun varð til þess að hann
náði mikilli almannahylli, verk
hans tóku að seljast geysivel og
mætti segja að verkin sem hann
málaði á þessu tímabili væru þau
sem hann er hvað þekktastur
fyrir.
Sýningin er fjórða í röð sýn-
inga sem Hafnarborg heldur og
kynna ólík tímabil á löngum ferli
Eiríks. Sýningarstjórar eru Ólöf
K. Sigurðardóttir, forstöðu maður
Hafnarborgar og Heiðar Kári
Rannversson.
Tilvist Eiríks
í Hafnarborg
EIRÍKUR SMITH Færði sig úr abstrakt-
verkum yfir í hlutbundið raunsæi upp
úr 1968 og naut í framhaldinu mikilla
vinsælda.
Save the Children á Íslandi