Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 54
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30 Hljómsveitin Kaleo úr Mosfellsbæ frumsýnir nýtt tónlistarmynd- band í kvöld við útgáfu sína af hinu sígilda íslenska dægurlagi Vor í Vaglaskógi. Útgáfan sem strákarnir hljóð- rituðu fyrir stuttu er gerð með góðfúslegu leyfi höfunda og hefur á augabragði náð miklum vinsæld- um. Lagið, sem verður gefið út um helgina, er sem stendur í efsta sæti vinsældalista Rásar 2 og situr í níunda sæti á lista Bylgj- unnar. Myndband af lifandi flutn- ingi þeirra er komið með um þrjátíu þúsund spilanir á síðunni Youtube. „Þetta lag var búið að vera lengi í miklu uppáhaldi hjá söngvaran- um Jökli. Hann byrjaði að þróa þessa útgáfu fyrir nokkrum árum og svo byrjuðum við að spila hana fyrir ári,“ segir trommarinn Davíð Antonsson. „Við fengum góðar viðtökur og svo tókum við þetta lag „live“ á Rás 2 og það fékk enn þá betri viðtökur. Þannig að við ákváðum að henda í stúdíóút- gáfu sem hefur ekki fengið síðri viðtökur.“ Auk Davíðs skipa Kaleo þeir Jökull Júlíusson, Daníel Ægir Kristjánsson og Rubin Pollock. Þeir eru allir 23 ára og eru að undirbúa sína fyrstu plötu sem er væntanleg á næstu mánuðum. „Við erum búnir að spila allir saman síðan við vorum í tíunda bekk. En Kaleo var stofnuð rétt fyrir Airwaves í fyrra þar sem við spil- uðum nokkur „off-venue“-gigg. Hljómsveitin var formlega stofnuð þegar við fengum gítarleikarann Rubin Pollock til liðs við okkur,“ segir Davíð, en þeir félagar störf- uðu áður undir nafninu Timbur- menn og spiluðu eingöngu lög eftir aðra. „Við fengum ógeð af því og vildum einbeita okkur að okkar eigin tónlist.“ freyr@frettabladid.is Frumsýna myndband við Vor í Vaglaskógi Hljómsveitin Kaleo frumsýnir myndband við lagið Vor í Vaglaskógi í kvöld. GEFA ÚT MYNDBAND Hljómsveitin Kaleo frumsýnir myndband við Vor í Vaglaskógi í kvöld. Frumsýningarpartí vegna myndbandsins verður haldið á Gamla Gauknum í kvöld. Partíið byrjar klukkan 21 og verður gestum boðið uppá veigar frá Grolsch. Myndbandið verður svo gert opinbert á netinu á hádegi á morgun. Frumsýningarpartí í kvöld Í tilefni þess að útvarpsstöðin Xið-977 fagnar tuttugu ára afmæli í ár og Bar 11 heldur upp á tíu ára afmæli var ákveðið að slá saman í afmælisfögnuð í kvöld. „Við erum að fara að byrja afmælisveisluna okkar núna. Hún verður haldin áfram með látum út allt þetta ár, þessa sex mánuði sem eftir eru. Það stendur mikið til,“ segir Þorkell Máni Pétursson á X-inu. „Við viljum gefa þessu smá start núna. Svo munum við örugg- lega halda góða afmælistónleika síðar og einnig kalla gamalt X-fólk aftur að tökkunum og fá gamlar X-stjörnur til að taka eitt og eitt lag.“ Öllum er boðið í afmælisveisluna á Bar 11 í kvöld. Hún stendur yfir frá klukkan 19 til 01 og verður stór bjór á krana seldur á aðeins 300 krónur. Þorkell Máni lofar góðri stemn- ingu. „Þetta er partí fyrir almenning í landinu, X-ið heldur aldrei einhver VIP-partí.“ - fb Öllum boðið í afmæli X-ið og Bar 11 halda upp á stórafmæli sín í kvöld. ÞORKELL MÁNI Lofar góðri stemningu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Útvarpsstöðin X-ið 977 hefur verið í loftinu í tuttugu ár. Áfanganum verður fagnað með tón- leikum um helgina og verða veislur svo haldnar út allt þetta ár. 28. JÚNÍ 2013 Hátíðir 15.00 Humarhátíð á Höfn hefst í dag. Dagskrá hátíðarinnar má finna á humar.is. Tónlist 19.00 Útvarpsstöðin X977 og Bar 11 slá saman í afmælisveislu í tilefni af 20 ára afmæli stöðvarinnar og og 10 ára afmæli barsins. Gleðin stendur til klukkan 01.00. 22.00 Robert the Roommate og Skúli Mennski halda á tónleika á Græna hatt- inum á Akureyri. Miðaverð kr. 1500. 22.00 Skuggamyndir frá Býsans leika fyrir gesti í Gamla bænum, Hótel Reyni- hlíð. Sveitina skipa: Haukur Gröndal klarínett, Ásgeir Ásgeirsson bouzouki, Þorgrímur Jónsson og frá Tyrkland Cem Misirlioglu á slagverk. 22.00 Hljómsveitirnar Bítladrengirnir blíðu, Spottarnir og Sviðin jörð leika og syngja á Café Rosenberg. 23.00 Brendan Brekkan skemmtir á Ob- La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Fyrirlestrar 09.00 Ráðstefna í Háskólanum í Reykjavík í minningu dr. Guðjóns Magnús sonar prófessors, um áhrifa- þætti á heilsu og vellíðan - frá rann- sóknum til aðgerða. Aðalfyrirlesari ráð- stefnunnar er Sir Michael Marmot, sem leitt hefur með vinnu á vegum Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í greiningu á félagslegum áhrifaþáttum heilbrigðis og áhrifum ójöfnuðar á heilsu. Hinn erlendi fyrirlesarinn á ráð- stefnunni er prófessor Felicia Huppert, forstjóri The Wellbeing Institute við Cambridgeháskóla og meðlimur í ráð- gjafahópi David Cameron, forsætis- ráðherra Breta, um mælingar á vellíðan fyrir stefnumótun. Einnig verða kynntar nýjustu niðurstöður úr könnuninni „Heilsa og líðan Íslendinga“ þar sem farið verður yfir þróun heilsu og líðan Íslendinga frá 2007-2012. Ráðstefnan stendur til kl. 17. 12.10 David W. Lewis ljósmyndari held- ur fyrirlestur um Bromoil ljósmynda- tækni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en um þessar mundir stendur yfir sýning á myndum Lewis á safninu. Bromoil ljósmyndunaraðferðin er ein af elstu ljósmyndunaraðferðunum og líklega sú sjaldgæfasta. Aðgangur ókeypis og allt áhugafólk um ljósmyndun er hvatt til að mæta. Myndlist 15.00 Silvia Björg opnar listasýningu hjá Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4, 101 Reykjavik. Þar verða spænskir tapas- réttir og sangría á boðstólum. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR? HÁTÍÐAHÖLD Humarhátíðin á Höfn í Hornafirði er tuttugu ára í ár. Í tilefni þess verður dagskrá hátíðarinnar stútfull af áhugaverðum viðburðum og verða ýmsar uppákomur og íþróttamót víða um bæinn. MYND/GALDUR OG SIGURÐUR MÁR Bættu við frönskum 399.- OS TBO RGARI +COKE
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.