Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 58
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34 1. DEILDIN 2013 ÚRSLIT GRINDAVÍK - SELFOSS 1-3 0-1 Ingólfur Þórarinsson (36.), 0-2 Sindri Snær Magnússon (72.), 1-2 Stefán Þór Pálsson (80.), 1-3 Sindri Snær Magnússon (90.). TINDASTÓLL - KA 2-2 1-0 Steven Beattie, víti (31.), 1-1 Edvard Börkur Óttharsson, víti (35.), 1-2 Atli Sveinn Þórarinsson (39.), 2-2 Steven Beattie (45.). Rautt spjald: Ivan Dragicevic, KA (44.). LEIKNIR - HAUKAR 0-0 ÞRÓTTUR - FJÖLNIR 0-0 STAÐAN Grindavík 8 6 0 2 23-11 18 Haukar 8 4 3 1 13-9 15 BÍ/Bolungarv. 7 5 0 2 14-14 15 Víkingur R. 7 3 3 1 14-10 12 Leiknir 8 3 4 1 12-8 13 Selfoss 8 3 2 3 13-12 11 Fjölnir 8 3 2 3 10-13 11 KA 8 2 2 4 9-14 8 KF 7 1 4 2 10-9 7 Tindastóll 8 1 4 3 8-12 7 Þróttur 8 1 2 5 8-13 5 Völsungur 7 0 2 5 5-14 2 NÆSTU LEIKIR VÖLSUNGUR - KF FÖS. KL. 19.15 BÍ/BOL. - VÍKINGUR R. LAU. KL. 14.00 FORMÚLA Ástralinn Mark Webber hefur nú tilkynnt að hann muni hverfa frá Formúlu 1 í lok þessa tímabils. Webber hefur unnið níu Formúlu 1 mót á ferlinum og á að baki frábæran feril. Undanfarin ár hefur hann ekið fyrir lið Red Bull ásamt þreföldum heimsmeistara, Sebastian Vettel. Samband liðsfélaganna hefur verið stirt síðan þeir rákust á í tyrkneska kappakstrinum árið 2010. Ökuþórinn mun ganga til liðs við bílaframleiðandann Porsche, sem ætlar sér stóra hluti í götubílaflokki. Þessi 36 ára ökuþór mun efla ímynd Porsche í keppni götubíla og er það frábært fyrir íþróttina að fá slíkt nafn inn í greinina. „Það er mikill heiður að fá að keyra fyrir Porsche, sem hefur ávallt staðið fremst þegar kemur að tækni og frammistöðu,“ sagði Webber. „Það verður gaman að takast á við nýjar áskoranir eftir skemmtilegan tíma í Formúlu 1. Ég get varla beðið eftir að fá að keyra einn hraðskreið- asta bíl í heimi.“ - sáp Mark Webber hættir í Formúlu 1 eft ir tímabilið HÆTTUR Webber færir sig yfir í götubílaflokk fyrir Porsche. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Margrét Lára Viðars- dóttir þorir ekki að hrósa sigri of snemma í langri baráttu sinni við meiðsli. En í dag er hún verkja- laus í fyrsta sinn í langan tíma og endurhæfingin samkvæmt áætlun. Hún leyfir sér að vona að hún verði nálægt sínu besta formi þegar EM í Svíþjóð hefst eftir tæpar tvær vikur. Meiðslasaga Margrétar Láru er orðin meira en fjögurra ára gömul. Þrátt fyrir það hefur hún haldið áfram að spila sem lands- liðs- og atvinnumaður allan þenn- an tíma og hefur gengið á ýmsu. Stundum virtist hún hafa unnið bug á meiðslunum en bakslagið var ávallt skammt undan. Síðast- liðið haust þurfti hún svo að taka ákvörðun – að fara í stóra aðgerð til að freista þess að vinna endan- lega bug á meininu. Áhættan var sú að hún ætti ekki afturkvæmt inn á völlinn ef aðgerðin gengi ekki samkvæmt óskum. „Ég ákvað að fara í aðgerðina sem var framkvæmd í nóvember. Það var EM sem dreif mig áfram en ég vildi freista þess í eitt skipti fyrir öll að ná mér góðri fyrir þetta mót. EM verður stóra próf- ið fyrir mig,“ segir hún í samtali við Fréttablaðið. „Hingað til hefur allt gengið vel en ég hef enn tvær vikur til að klúðra þessu,“ segir hún og hlær. Spurð um líðan á hverri æfingu Hún er vör um sig og viðurkenn- ir að sagan hafi ekki verið á sínu bandi. „Ég hef áður náð mér þokkalegra góðri en svo hefur allt farið í sama farið. Ég þarf því að passa mig, þá sérstaklega að álag- ið verði ekki of mikið. En það sem gefur mér von núna er að þessi stóra aðgerð hafi lagfært þann skaða sem hefur háð mér í þennan langa tíma,“ segir hún og bætir við að hún er undir mjög góðu eftirliti. „Líklega er ég spurð 2-3 sinnum á hverri æfingu hvernig mér líði. Það er pínu þreytandi,“ segir hún í léttum dúr. „Allt ferlið hefur vissulega reynt á þolinmæðina en síðustu 3-4 vikur hafa gengið sérstaklega vel. Ég hef ekki misst úr æfingu, hvorki með félagsliði mínu eða landsliði, sem hefur ekki gerst í fjögur ár. Ég er vitanlega himin- lifandi með það.“ Þetta var minn síðasti séns Margrét Lára er með 30 cm skurð aftan á lærinu eftir aðgerðina en í stuttu máli var hún framkvæmd til að gefa vöðvum, vöðvafestingum og taugum meira rými. „Vöðvarnir voru of stórir, of spenntir og of stuttir. Ég var líka með taugaverki vegna þrýstings á taugarnar,“ lýsir hún en Margrét Lára veit ekki til þess að aðrir knattspyrnumenn hafi gengist undir slíka aðgerð. „Ekki svo ég viti til. En þessi aðgerð var minn síðasti séns og mér fannst það þess virði að fara í hana eftir allan þennan tíma.“ Gæti skrifað bók um meiðslin Margrét Lára var kjörin íþrótta- maður ársins árið 2007 og hún ætl- aði að nota árið 2008 til að sýna að það hafi ekki verið nein tilviljun. „Ég var að drepast úr metnaði og áhuga. Þá byrjaði ég að finna fyrir óþægindum og það átti eftir að halda áfram,“ segir hún. Snemma árs 2009 samdi hún við Linköping í Svíþjóð og þá hófst hennar langa meiðslasaga. „Ég ætlaði að styrkja mig svo mikið og æfa mig fyrir sænsku deildina. Síðan þá hefur þetta verið einn stór hrærigrautur af meiðslum. Það væri örugglega hægt að skrifa bók um þetta allt saman,“ segir hún. En hvort hún nái að beita sér af fullum krafti á vellinum á ný verð- ur að koma í ljós. Alltént er líðan hennar utan vallar mun betri eftir aðgerðina. „Ég var alltaf með verki, til dæmis að nóttu til og á morgn- ana. Það tekur sinn toll af andlegu heilsunni. Í dag er ég algjörlega verkjalaus og get ekki kvartað undan neinu. Í raun er ég alveg í skýjunum með þetta.“ eirikur@frettabladid.is EM verður stóra prófi ð mitt Margrét Lára Viðarsdóttir, langmarkahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi , er á góðum batavegi eft ir stóra aðgerð í haust. „Ég gæti skrifað heila bók um meiðslasögu mína,“ segir hún við Fréttablaðið. Ákvörðun Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar landsliðsþjálfara að velja Eddu Garðarsdóttur ekki í EM-hóp Íslands hefur vakið athygli. Margrét Lára Viðarsdóttir segir að liðið sakni hennar en virði ákvörðun þjálfarans. „Það er erfitt að missa hana úr liðinu, enda hefur hún verið stór hluti af okkar landsliðshópi í mörg ár. En það þýðir ekkert annað en að taka vel á móti nýjum leikmönnum,“ segir hún og bætir við að það ríki jákvætt andrúmsloft í herbúðum landsliðsins. „Mér finnst mjög góð stemning í liðinu og við höfum átt frábærar æfingar síðan að lokahópurinn var valinn. Við ætlum að halda í jákvæðn- ina og njóta þess að spila fótbolta. Það hefur reynst okkur mjög vel áður. Við bætum okkur lítið sem knattspyrnumenn á þeim skamma tíma sem er fram að móti en við getum nýtt hann til að ná upp góðri samstöðu og jákvæðu andrúmslofti. Við höfum einsett okkur það.“ Landsliðið hefur verið gagnrýnt fyrir misjafnt gengi sitt í aðdraganda mótsins. „Það er eðlileg gagnrýni en það má ekki gleyma því að við höfum spilað við lið sem öll eru hærra skrifuð en okkar. Við viljum þó ekki að okkur sé klappað á bakið fyrir hvað sem er.“ Gagnrýnin á rétt á sér 69 MÖRK Í 88 LANDSLEIKJUM Árangur Margrétar Láru með íslenska landsliðinu er einstakur og hefur vakið athygli um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Stöð 2 Sport 2 mun sem fyrr sýna alla leiki í ensku úrvalsdeildinni í beinni útsendingu á næsta tímabili. Sú breyting var gerð á sýningarréttinum að rétthafar í hverju landi mega aðeins sýna frá einum leik í beinni útsendingu síðdegis á laugardögum, í stað margra á hliðarrásum eins og verið hefur. 365 samdi hins vegar sérstaklega um að fá að sýna alla leikina áfram í beinni þar sem merki Stöðvar 2 Sports 2 er ekki varpað um gervihnött. „Það er rétt, við höfum tryggt okkur sýningarréttinn af enska boltanum áfram. Ekki nóg með það því Sport 2 verður eina sjónvarpsstöðin sem býður alla 380 leikina í enska boltanum í beinni útsendingu. Sport 2 mun því hafa þá sérstöðu gagnvart öðrum sjónvarps- stöðvum í heiminum að vera með alla leikina í beinni,“ sagði Freyr Einarsson, sjónvarpsstjóri 365. - esá Allir 380 leikirnir í beinni FÓTBOLTI Fastur punktur í tilveru ungra íslenskra knattspyrnu- manna undanfarna áratugi hefur verið pollamótið í Vestmanna- eyjum, en það hefur verið haldið árlega síðan 1984. Mótið er fyrir 6. flokk drengja og heitir í dag Shell-mótið. Hundruð ungra drengja frá alls 104 félögum úr öllum landshlut- um taka þátt í mótinu en þeim fylgja fjölmargir foreldrar, þjálf- arar og fararstjórar. Mikil vætu- tíð hefur sett sinn svip á mótið í ár en knattspyrnukapparnir láta það ekki á sig fá, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem Óskar P. Friðriksson tók fyrir Fréttablaðið. Þekktustu knattspyrnumenn þjóðarinnar eiga það lang flestir sameiginlegt að hafa spilað á pollamótinu í Eyjum. Boltafj ör á Shell-mótinu í Vestmannaeyjum FÉLGASMÁL Stofnaður hefur verið sjóður í minningu Ólafs Eðvarðs Rafnssonar, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem varð bráðkvaddur 19. júní. Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar verður notaður í þágu íþróttahreyfingarinnar í minn- ingu Ólafs og þess mikla og óeig- ingjarna starfs sem hann vann innan hennar. Ólafur verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 4. júlí klukkan 15. Erfidrykkja verður haldin í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum að lokinni athöfn. - gb Útför Ólafs E. Rafnssonar: Sjóður til minn- ingar um Ólaf ÓLAFUR E. RAFNSSON Minningar- sjóðurinn verður í umsjón Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Spánn mætir Brasilíu í úrslitaleik Álfukeppninnar á sunnudaginn eftir sigur á Ítalíu í undanúrslitum í gær. Staðan eftir venjulegan leik- tíma og framlengingu var markalaus og því þurfti víta- spyrnukeppni til að knýja fram niðurstöðu. Skorað var úr fyrstu tólf spyrnum keppninnar en Ítalinn Leonardo Bonucci skaut himinhátt yfir úr sinni spyrnu. Jesus Navas tryggði svo Spán- verjum sigur með því að skora úr sjöundu vítaspyrnu sinna manna í röð. - esá Jesus Navas var hetjan SPORT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.