Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 69
LAUGARDAGUR 29. júní 2013 | MENNING | 37
HRESSIR Ólafur Hólm, trommari í
Nýdönsk, og Pétur Grétarsson voru
hressir.
Í HÁSKÓLABÍÓI Hrafnhildur
Hafliðadóttir og Halldór Hafliðason
voru í Háskólabíói.
Tónleikar Jeffs Beck í Háskólabíói hófust klukkutíma á eftir áætlun.
Hljómsveitin Mezzoforte sá um að hita upp salinn með nokkrum fínum
lögum. Skömmu síðar steig Beck, klæddur joggingbuxum, á svið ásamt
fjórum hljóðfæraleikurum, þar á meðal háfættum fiðluleikara og
Rhondu Smith, bassaleikara Prince. Hljóðfæraleikararnir spiluðu frá-
bærlega og skyggðu nánast á hinn 69 ára Beck, sem þó stóð fyrir sínu
með alls kyns gítarfimleikum. - fb
Gæða gítarleikur
Jeff Beck spilaði í Háskólabíói á fi mmtudagskvöld.
Margir voru spenntir að sjá gítarhetjuna uppi á sviði.
SÁU JEFF BECK Tolli Morthens, Mike Pollock og Einar Már Guðmundsson sáu Jeff
Beck í Háskólabíói.
STEFÁN OG ÞÓRHILDUR Stefán
Guðjónsson og Þórhildur Stefánsdóttir
voru á meðal gesta.
JEFF BECK Gítarleikarinn heimsþekkti á tónleikunum í Háskólabíói. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rihanna hefur fengið nálgunar-
bann á karlmann að nafni Robert
Melason, sem handtekinn var í
síðustu viku uppi á þaki á húsi
söngkonunnar í Kaliforníu.
Rihanna sagði við lögregluna að
hún óttaðist um öryggi sitt eftir
að maðurinn var handtekinn.
Maðurinn var vistaður á geðdeild
í kjölfarið en hann heldur því
fram að hann hafi ekki vitað að
söngkonan ætti heima í tilteknu
húsi. Lögreglan hefur engu að
síður skipað honum að halda sig
tímabundið í rúmlega 90 metra
fjarlægð frá Rihönnu, heimili
hennar og vinnustað, en það
kemur í ljós hinn 10. júlí hvort
nálgunarbannið verði varanlegt.
Óttaðist um
öryggi sitt
FÉKK NÁLGUNARBANN Lögreglan í
Kaliforníu handtók karlmann í síðustu
viku uppi á þaki á húsi Rihönnu.
Maðurinn var dæmdur í tímabundið
nálgunarbann.
Heidi Klum geymir hárið af
börnum sínum og býr til lista-
verk úr því. Fyrirsætunni fannst
erfitt að þurfa að klippa hárið á
drengjunum sínum og því ákvað
hún að geyma það í stað þess að
fleygja því. Í upphafi var Klum
ekki viss um hvað gera ætti
við hárið en fékk síðar þá hug-
mynd að nota það í föndur með
drengjunum. „Synir mínir tveir
voru með miklar krullur og þegar
ég rakaði allt hárið af, ákvað ég
bara að geyma það. Svo sagði ég
við sjálfa mig: „Ég veit ekkert
hvað ég ætla að gera við þetta,“
en hárið var svo fallegt. Svo næst
þegar þeir ákváðu að mála sig
með andlitsmálningu, límdi ég
hárið þeirra á og þeir litu út eins
og þrívíddarmálverk,“ sagði Klum
í viðtali við vefsíðuna YourTango
á dögunum. Fyrirsætan á fjögur
börn með söngvaranum Seal, en
þau skildu í apríl í fyrra.
Býr til
listaverk úr
barnahárinu
SKRÍTIÐ ÁHUGAMÁL Heidi Klum býr
til listaverk úr hári barna sinna.