Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 26
FRÉTTABLAÐIÐ List og Fegurð. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr. 6 • LÍFIÐ 5. JÚLÍ 2013 Hera Sigurðardóttir fékk þá skemmti- legu hugmynd að föndra trönur úr pappír, eða origami eins og sú japanska list kallast, og selja í Bryggju- búðinni í Flatey. Fuglarnir hafa fengið óskipta athygli í nýlendubúðinni sem hefur aðsetur sitt í frystihúsinu, alveg við bryggjuna. „Þetta er ótrúlega falleg japönsk pæling og margt svo heillandi við formin. Þú býrð bara til ýmsar fígúrur úr þeim pappír sem þú hefur. Þetta er pappírsbrot þar sem þú þarft ekki að klippa, líma eða rífa,“ segir Hera Sigurðardóttir. Nýlega var frystihúsið tekið í gegn og fundust þá gömul landakort úr gamla grunnskólanum sem eigandi Bryggju- búðarinnar, Lísa Kristjánsdóttir, færði Heru til að föndra úr. Kortin af hinum ýmsu landshlutum Íslands fengu þannig nýtt líf sem fallegir trönuóróar. Origami-fuglinn er álitinn friðartákn í Japan en sagan á bak við listina er ævagömul. Japanska þjóðsagan segir að geri maður eitt þúsund trönur verði sá hinn sami mikillar gæfu aðnjótandi og fái óskir sínar uppfylltar. „Svo er svo mikill friður og ró sem tengist þessu, bæði sagan á bak við listina og þegar maður er sjálfur að föndra þetta. Þetta er svona ákveðin heilun að sitja við og föndra þetta, bæði athöfnin að gera þetta og í kjöl- farið að gleðja aðra,“ segir Hera Sigurðardóttir. ORIGAMI-LIST Í FLATEY Hera Sigurðardóttir föndrar óróa úr gömlum landakortum í Flatey Hera Sigurðardóttir selur origami-óróana í Bryggjubúðinni í Flatey. Origami- fuglar úr gömlum landakortum. Fuglasöngur, nýslegið gras, sól- skin, blómaangan og hreinn þvottur á snúru tengjum við sumrinu. Sumarið er jafnframt tíminn þar sem ferskleik- inn er í fyrirrúmi og borgin ilmar af heillandi ilmvötnum. Burberry kynnir nýjan, ferskan og orkumikinn ilm á markað- inn, Buberry Summer. Ilmur- inn þykir einstak- lega ferskur og spenn- andi og er fáanlegur bæði fyrir konur og karla. BURBERRY ILMBLÆR SUMARSINS Mjúkur, ferskur og kven legur ilmur áberandi í sumar Burberry Summer herrailmurinn ber vott af viðartóni og er ferskur og mjúkur. Burberry Summer kvenilmurinn ber vott af rósum og liljum með undir- tóni af White musk. Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli. Kringlunni, Skeifunni & Smáralind. Austurveri, Eiðistorgi, Hringbraut, Kringlunni. Apótek Garðabæjar, Apótek Hafnarfjarðar, Lyfjaborg, Nana Hólagarði & Urðarapótek. Glerártorgi, Hveragerði og Vestmannaeyjum. KS Sauðarkróki. Olay er á meðal stærstu húðkremaframleiðenda í heimi og eru fremstir á sviði þróunar á virkum andlitskremum í samanburði við önnur dýrari krem. medico.is 1. Jafnar húðlit 2. Gefur raka & ljóma 3. Minnkar svitaholur NÝTT! BB KREM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.