Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 2
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
ALÞINGI Samkomulag um þinglok
í gær komst í uppnám þegar
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfsstæðis flokksins og formaður
atvinnuveganefndar, lagði fram
breytingartillögu við frumvarp
um lög um breytingar á lögum um
veiðigjald.
Samkvæmt breytingartillögunni
átti að undanskilja kolmunnaveið-
ar frá veiðigjaldi. Það hefði þýtt að
áætlaðar tekjur ríkissjóðs af veiði-
gjöldum hefðu orðið 459 milljónum
lægri en ella. Í töflunni hér til
hliðar má sjá að hefði breytingar-
tillagan verið samþykkt hefði það
sparað Síldarvinnslunni 116 millj-
ónir, HB Granda rúmar 96 milljónir
og Eskju 88 milljónir. Eins má sjá
hagnað fyrirtækjanna árið 2011.
Stjórnarandstaðan gerði þá kröfu
að breytingartillagan yrði dregin til
baka annars yrði þinglokum frest-
að. Samkomulag náðist um að draga
breytingartillögun til baka og halda
þannig samkomulaginu um þinglok.
Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja
sendi atvinnuveganefnd umsögn
varðandi málið og þar segir meðal
annars: „Við núverandi markaðs-
aðstæður er ljóst að gjaldið dugar
ekki fyrir kostnaði við útgerð á
kolmunna og áætlað rekstrartap
verður um 0,9 kr. per hvert kíló
af kolmunna.“ Þar er stuðst við
útreikninga Deloitte FAS. - jse
SÖFN „Rússar leggja mikla áherslu
á að þakka þann mikla stuðning
sem Íslendingar sýndu þeim í
seinni heimstyrjöldinni,“ segir
Guðjón Sigmundsson, staðarhaldari
í Hernámssetrinu í Hvalfirði sem
fær að gjöf ýmsa gripi frá Rússum.
Guðjón segir safn í Moskvu
senda hernámssetrinu þrjá bún-
inga, af Bandaríkjamanni, Breta og
Rússa, ásamt eftirlíkingum af hríð-
skotabyssum þessara þjóða.
Sendiherra Rússlands á Íslandi
mun afhenda gripina við formlega
athöfn í dag. Einn eftirlifandi her-
maður Rússa verður í sendinefnd
þeirra. Guðjón segir að þangað
hafi einnig boðað komu sína full-
trúar ýmissa ríkja bandamanna
úr heimsstyrjöldinni; sendiherrar
Breta, Bandaríkjanna, Frakklands
og Noregs.
Föstudagurinn er valinn til
minningar um skipalestina PQ 17
sem í júlí 1942 lagði upp frá Hval-
firði á leið í Norður-Íshaf og til
Arkangelsk í Rússlandi. Mikill
hörmungaratburður varð 5. júlí
þegar Þjóðverjar sökktu tólf skip-
anna. Aðeins ellefu skip af 34 náðu
í höfn.
Guðjón kveður Rússa ekki hvað
síst vilja þakka Íslendingum að
hafa stutt mikilvægar siglingar
þeirra úr Hvalfirði og lagt þannig
sitt af mörkum til að ráða niður-
lögum nasismans.
Meðal þeirra sem verða
viðstaddir afhendinguna er Mikha-
il S. Gusman, varaformaður rúss-
nesku fréttastofunnar ITAR-TASS,
ásamt fimm manna tökuliði. „Hann
er einn frægasti sjónvarpsmaður
Rússa,“ segir Guðjón um Gusman.
gar@frettabbladid.is
Sendiherrar stórvelda
við athöfn í Hvalfirði
Rússar þakka Íslendingum liðveislu í heimsstyrjöldinni síðari og færa Hernáms-
setrinu í Hvalfirði muni tengda stríðinu. Sendiherrar ríkja bandamanna, eftirlif-
andi rússneskur hermaður ásamt rússneskri sjónvarpsstjörnu verða við athöfnina.
Í HERNÁMSETRINU AÐ HLÖÐUM Skipalest Rússa úr Hvalfirði varð fyrir miklum
skakkaföllum út af Vestfjörðum 5. júlí 1942.
GUÐJÓN SIGMUNDSSON Hernámssetrið í Hvalfirði er rekið af Guðjóni „Gaua
litla“ Sigmundssyni.
REYKJAVÍKURBORG „Þriðja árið
í röð er grassláttur og almenn
umhirða á opnum grænum
svæðum og við umferðargötur
í borginni langt frá því að vera
viðunandi,“ segir í tillögu þriggja
fulltrúa Sjálfstæðisflokks í
umhverfis- og skipulagsráði um
átak í umhirðu borgarlandsins.
„Augljóslega er betur að þessu
staðið í nærliggjandi sveitarfé-
lögum og nú er svo komið að víða
í borginni er arfi, úr sér vaxið
gras og almenn óhirða orðin svo
áberandi að ásýnd borgarinnar
líður verulega fyrir,“ segja sjálf-
stæðismenn. Afgreiðslu tillög-
unnar var frestað. - gar
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks:
Almenn óhirða
í borgarlandinu
SJÁVARÚTVEGUR Ákvörðunar Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, um stjórnun á úthafsrækjuveiðum
er að vænta innan tíu daga, segir Jón Guð-
bjartsson, stjórnarformaður Rækjuvinnslunnar
Kampa. Jón sat fund með ráðherranum í gær.
„Ég er mjög bjartsýnn eftir þennan fund,“
segir Jón. „Þeir sögðu mér að ráðuneytið væri
að safna gögnum og ákvörðun muni liggja fyrir
eftir viku til tíu daga.“
Hann segir mikið í húfi því rúmlega fimm-
hundruð manns eigi beinna hagsmuna að gæta.
Sex rækjuvinnslur eru í landinu og telur Jón
það ekki verða heiglum hent að starfrækja
þær ef úthafsrækjunni verði úthlutað til þeirra
útgerða sem áttu kvótann fyrir breytinguna,
þegar veiðarnar voru gefnar frjálsar fyrir
þremur árum. Hann segir ekki hægt að gera
það með því að leigja kvótann og að um þessar
mundir sé óhagstætt að kaupa rækjuna frá
Noregi og Kanada.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur einnig
ályktað um málið og segist Daníel Jakobsson
bæjarstjóri höfða til skynsemi stjórnvalda. „Ég
bara neita að trúa því að stjórnvöld fari að taka
ákvörðun sem stefni atvinnulífi hér í voða,“
segir hann. Um 120 manns hafa atvinnu af
rækjuvinnslu á norðanverðum Vestfjörðum. - jse
Rækjuvinnslufólk bíður bjartsýnt ákvörðunar sjávarútvegsráðherra sem vænta má innan tíu daga:
Yfir 500 störf tengd rækjuvinnslu í húfi
RÆKJAN ÞOKAST NÆR Stjórnendur rækjuvinnslu-
stöðva óttast að færiböndin stöðvist fyrir fullt og allt.
MYND/HÖRÐUR KRISTJÁNSSON
Áætlað veiðigjald
HB Grandi 96 milljónir 5.984 kr.
Eskja 88 milljónir 1.724 kr.
Vinnslustöðin 17 milljónir 1.939 kr.
Ísfélag Vestmannaeyja 24 milljónir 4.605 kr.
Síldarvinnslan 116 milljónir 5.224 kr.
Skinney-Þinganes 1 milljón 2.220 kr.
Samherji 32 milljónir 8.560 kr.
Gjögur 22 milljónir 2.033 kr.
Huginn 19 milljónir 706 kr.
Loðnuvinnslan 22 milljónir 2.033 kr.
Runólfur Hallfreðsson ehf. 22 milljónir 253 kr.
Rammi 25 þúsund 1.199 kr.
Alls 36.481 kr.
Hagnaður 2011 í
milljónum króna
Heimild: Finnbogi Vikar
Hagnaður mun hærri en veiðigjaldið
ALÞINGI Þingmenn úr öllum
stjórnarandstöðuflokkum hafa
lagt fram frumvarp þess efnis
að bandaríska uppljóstraranum
Edward Snowden verði veittur
íslenskur ríkisborgararéttur.
Þingmenn Pírata Bjartrar
framtíðar, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Pírata, óttast ekki inngrip Banda-
ríkjamanna sem hafa sótt hart
að þeim löndum sem tekið hafa
hælis umsókn Snowdens til skoð-
unar. „Ég held að Ísland muni
halda áfram að hafa orð á sér
fyrir að vera litla landið sem
þorir,“ segir hún. - khn
Hafa lagt fram frumvarp:
Snowden fái
ríkisborgararétt
Breytingartillaga um að undanskilja kolmunna frá veiðigjaldi ögraði í lokin:
Þingið strandaði á kolmunna
ÞJÓÐHETJA Víðs vegar um borgina má sjá virðingavotta við Nelson Mandela.
MYND/AFP
SUÐUR-AFRÍKA Læknar Nelsons Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku,
hafa ráðlagt fjölskyldu hans að slökkva á öndunarvélinni sem heldur
honum á lífi. Segja þeir að hann sé í viðvarandi dauðadái. Kona Man-
dela, Graca Machel, sagði í gær að hann hefði upplifað óþægindi stöku
sinnum en að hann hefði ekki fundið fyrir sársauka. Íbúar Suður-
Afríku hafa beðið fyrir Mandela síðastliðinn mánuð. -nej
Læknar ráðleggja fjölskyldunni að slökkva á öndunarvélinni:
Nelson Mandela í dauðadái
SPURNING DAGSINS
Geir Gunnar, er þetta ekki
sætt?
Nei, þetta er sjúkt.
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur
gagnrýnir lélegt framboð spítala á hollum
mat. Hann vill að settar séu reglur í kringum
matarframboð á spítölum.
Skólavörustíg 2
s: 552 5445
Stefán Bogi. Gull og silfursmiður MGH