Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 25
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 5. JÚLÍ 2013 • 5 ● Nína Björk myndar fyrir fatahönnuð ● Tískuþáttur fyrir Gia In Style ● Systurnar Tinna Dögg, Nína Björk og Elma Lísa ● Börnin Egill og Embla samanvann fyrir Gia in Style og fleiri. Eitt sinn myndaði kjól sem kostaði yfir 4.000 evrur, ég var eiginlega að fara á taugum. Það er þó mun erfið ara að komast að úti í Lúxem- borg og fá verkefni. Tengslanetið á Íslandi er auðvitað stórkostlegt.“ Hvern hefur verið mest gefandi að mynda frá því þú byrjaðir að ljósmynda? „Ég er búin að mynda svo margt stórkostlegt fólk í gegnum tíðina. Það hafa allir sinn sjarma og eftir verkefni geta myndast góð tengsl á milli fólks. Flestir eru gefandi en bara á mis- munandi hátt.“ Þú hefur nú verið að vinna við önnur verkefni en að ljósmynda, eins og að senda Íslendingum föt frá H&M gegn greiðslu. Hvernig kom það til? „Íslendingar eru auðvitað afar hrifnir af H&M og versla mikið þar þegar þeir fara til útlanda. Mér fannst þetta sniðug hugmynd og gerði þó nokkuð af þessu. Mér finnst alls ekki leiðin- legt að versla því ég lifi og hrærist í tískuheiminum sem er líka mitt áhugamál.“ Framtíðin á Íslandi Eru spennandi tímar fram undan? Hvað er á döfinni hjá þér? „Það eru mjög spennandi tímar fram undan. Ég ætla að fara á fullt í ljós- myndunina og er með margar hug- myndir sem ég ætla að skapa. Þess vegna ætla ég að klára ljósmynda- námið frá Tækniskólanum. Eftir það er draumurinn að opna stofu eða stúdíó. Ég er búin að vera í fjarnámi í Tækniskólanum en á eins árs sérnám eftir núna.“ Lumar þú á einhverjum tísku- ráðum? „Maður á að klæðast því sem manni líður vel í. Það skapar sjálfsöryggi. Fallegir skór, skart- gripir, töskur og hattar finnst mér setja punktinn yfir i-ið. Konur þurfa að passa sig að klæðast ekki of flegnu því þá getur maður misst þokkann. Frekar að leyfa huganum að nota ímyndunaraflið, það finnst mér þokkafullt.“ Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? „Eins gott að ég særi engan, en það eru án efa allar konur sem ég umgengst í mínu lífi. Ég er svo lánsöm að eiga frábærar systur og vinkonur sem ég gæti aldrei lifað án. Svo finnst mér gaman að hlæja með mömmu minni. Við erum með sama húmor sem ekki allir ná.“ Það getur verið að ég fái örlítið menningarsjokk þegar ég kem til baka en ég hræðist ekkert nema myrkrið á veturna. Myndaalbúmið náttúruleg fegurð w w w .gengurvel.is Lífrænn handáburður á góðu verði kr. 750

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.