Fréttablaðið - 22.07.2013, Side 13
MÁNUDAGUR 22. júlí 2013 | SKOÐUN | 13
SHIFT_
NISSAN
QASHQAI
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
NISSAN QASHQAI DÍSIL
VERÐ 4.990 ÞÚS. KR.
Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóladrifnum bíl sem er hagkvæmur
í rekstri og góður í endursölu.
Nissan Qashqai dísil eyðir einungis frá 4,6l/100km
· 20 cm veghæð
· Litaðar rúður
· Tölvustýrð loftkæling
· 5 stjörnu einkunn í Euro NCAP
· ngumFjórhjóladrif með LOCK stilli
· naðurHandfrjáls Bluetooth símabú
· Bakkskynjari
· 17“ álfelgur og margt fleira
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
6
3
0
„Það vantar ekki þessa lista-
menn,“ sagði hún Laufey amma
mín stundum þegar hún var í mat
hjá okkur og einhverja listamenn
bar á góma, sem stundum vildi
við brenna, og henni tók að leiðast
þófið. Hún sagði þetta glaðlega og
kímdi, en það var alltaf einhver
tónn í þessu sem gaf til kynna að
henni þætti satt að segja alveg nóg
um alla þessa listamenn.
Mitt er að yrkja – ykkar að
styrkja
(Játning: Fyrir allmörgum árum
fékk ég svokölluð starfslaun rit-
höfunda, einhverja mánuði, og alls
ekki jafn mikið og mér fannst að
mér bæri og ekki nóg til að ég gæti
helgað mig skáldsagnagerð eins og
mig langaði að gera þá. En ég var
auðvitað ekki dómbær. Margir
listamenn sveiflast á milli þess að
líta svo á að annað fólk standi unn-
vörpum í þakkarskuld við sig fyrir
að gefa því allra náðarsamlegast
kost á því að vera samtíðarmenn
sínir og svo aftur hins að líta á sig
og verk sín sem einskisvert drasl.
En ég fékk sem sé ekki það sem
mér bar, frekar en til dæmis Þor-
grímur Þráinsson, og svo fór að
ég hætti að sækja um slík laun og
ákvað með sjálfum mér að margir
rithöfundar væru betur að þeim
komnir en ég og auk þess gæti
ég svo sem unnið fyrir mér með
öðrum hætti. Ég bið afsökunar
á þessum sjálfsútaustri en ég
nefni þetta vegna þess að ég hef
stundum rekist á athugasemdir
þess efnis að ég sé mikill styrkja-
kall og því ekki að marka neitt af
því sem ég segi.)
Þá er það úr sögunni. En ég er
hálfsmeykur. Ég skynja eitthvert
andrúmsloft um þessar mundir.
Mér finnst ég verða var við ein-
dregna og jafnvel sigri hrósandi
andúð á menntamönnum, fræðum
og þekkingarleit, verðmætasköpun
andans – og listum alveg sérstak-
lega.
Fólk sem náði meirihluta á
alþingi vegna loforða um lækkun
lána og hækkun launa notar nú
umboðið sem það fékk vegna
þeirra loforða – og einskis annars –
til að efna til stórfellds niðurskurð-
ar á ríkisútgjöldum, sem aldrei var
minnst á í kosninga baráttunni, en
lánamálin fóru í nefnd. Vonandi
skjátlast mér, en einhvern veginn
skynjar maður að nú liggi í loftinu
stórfelldur niðurskurður á fram-
lögum til lista og menningar; þar
hafa verið settir til verka Guð-
laugur Þór, sem mun vera styrk-
tasti þingmaður Íslandssögunnar,
Ásmundur Einar, starfsmaður
styrktustu atvinnugreinar Evrópu,
íslensks sauðfjárbúskapar, og Vig-
dís Hauksdóttir sem hefur lagt sig
fram af sérstakri alúð við að fara
með fleipur um listamannalaun,
við nokkur fagnaðarlæti skoðana-
systkina; Vigdís hefur reyndar
slíka unun af því að ganga fram af
listamönnum, að það örlar á því að
hún sé kannski svolítill listamað-
ur sjálf, í henni sé þessi listræna
viðleitni sem á frönsku er kölluð
„ épater les bourgeois“.
Sennilega verða listamenn að
setja traust sitt á hana frekar en
styrkjatröllin tvö.
Að vera andvígur meinatæknum
Samfélagið er net, þéttofið og
síkvikt. Það samanstendur af
skyldri og óskyldri starfsemi alls
konar stakmengja og sniðmengja
og raðmengja, flöktmengja og
víxlmengja sem hafa gert með sér
einhvers konar óformlegan sátt-
mála um að vera sammengi, það
er að segja „þjóð“. Samfélagið er
forógnarmikil bygging þar sem
eru ótal vistarverur sem tengjast
margvíslega í litlu og ættræknu
samfélagi. Einn á frænku þarna,
annar skólabróður hér, og ekki
má gleyma besta vini eiginmanns
náfrænku móðursystur eiginkon-
unnar. Sem sé: dýnamík og verka-
skipting. Það er varla til tómarúm
í samfélaginu, og flest höfum við
vissa innsýn í iðju hvert annars;
það er meðal þess sem er fallegt
við íslenskt samfélag: bændurnir
gerðu við bíla, bílasalarnir héldu
rollur, meinatæknir sem opnar
búð, sjómaður sem heklar dúka,
ráðuneytisstjóri sem fer að læra
trésmíði. Og svo framvegis.
En þó er það nú svo að hvort
sem okkur líkar það betur eða
verr þá fylgir nútímanum viss sér-
hæfing. Til dæmis meinatæknar.
Ég veit ekkert hvað þeir eru að
bauka. En ekki er þar með sagt að
ég þurfi að gruna þá um græsku
eða vera vera andvígur þeim,
eða vilji að framlög verði skorin
niður til meinatæknigreina. Mér
finnst heldur ekki að ég hafi ein-
hvern sérstakan rétt sem skatt-
borgari til að skilja meinatækna
alveg fyrirhafnarlaust. Ég treysti
því bara að þeir sigli ekki undir
fölsku flaggi og að iðja þeirra hafi
sitt gildi sem þar til bært fólk
leggur mat á.
Þannig starfar sérhæfingin í
samfélaginu. Eins og margtuggið
er: Van Gogh hefði aldrei náð að
þróa og þroska sína list ef bróðir
hans Theo hefði ekki styrkt hann á
alla lund. Það dæmi eitt og sér ætti
að nægja til að afgreiða þá firru að
eftirláta eigi markaðnum að launa
listamönnum. Þar með er ekki sagt
að sérhver listamaður sem öllum
finnst lélegur sé Van Gogh. En hver
á þá að leggja dóm á erindi lista-
manna við samtíma sinn? Ásmund-
ur Einar Daðason?
Og eins og margtuggið er líka:
Allt skilar sér aftur inn í þá marg-
brotnu hringrás sem samfélagið er.
Í peningum. Í góðum lista verkum.
Í frægð. Í kúlheitum. Í skatti. Í
listaverkunum sem tókust ekki og
listaverkunum sem engum líkaði
en kveiktu kannski hugmyndir og
elda. Í listaverkunum sem vöktu
viðbjóð en stungu á kýlum. Í hug-
myndastreyminu og andlega fjör-
inu, lífsgleðinni, tjáningunni á því
óumræðilega og neistafluginu, í
lyginni sem segir satt og þúsund-
um spegilbrota.
Nei, amma mín. Það vantar alltaf
þessa listamenn.
Um listþörfi na
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Ég skynja eitthvert
andrúmsloft um
þessar mundir. Mér finnst ég
verða var við eindregna og
jafnvel sigri hrósandi andúð
á menntamönnum, fræðum
og þekkingarleit, verðmæta-
sköpun andans– og listum
alveg sérstaklega.
AF NETINU
Tjáningarfrelsi
Ég hlustaði á merkilegt samtal í
Vikulokunum á rás 1 í gær. Þar
reyndi þingmaður Framsóknar-
flokksins,
Frosti Sigur-
jónsson að
færa rök
fyrir því að
Hallgrímur
Helgason rit-
höfundur ætti
ekki ræða um
pólitík í pistli í
ríkisútvarpinu.
Rökin voru þau að Hallgrímur
væri góður listamaður og ætti að
einbeita sér að listinni en ekki
vera að skipta sér af pólitík.
Þegar Frosti virtist rökþrota
kastaði hann fram þeirri hótun
að kannski vildi Hallgrímur að
einhver rithöfundur færi að
gagnrýna Samfylkinguna sem
Frosti taldi að Hallgrímur fylgdi
að málum.
Þingmanninum til mikillar
undrunar tók Hallgrímur því
fagnandi. Sagði sér algerlega
meinalaust að það yrði gert og í
raun og veru fagnaði hann slíkri
gagnrýni.
Tjáningarfrelsi þrífst ekki þar
sem settar eru reglur um hver
má segja hvað. Það er rangt að
stjórnmálamenn eigi að geta
stjórnað umræðunni og tekið sér
þannig vald til að túlka heims-
mynd almennings.
Slík stýring er andstæða
tjáningarfrelsis, það er þöggun,
skoðanakúgun og valdníðsla.
blog.pressan.is/ingasigrun
Inga Sigrún Atladóttir