Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 64
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32
BAKÞANKAR
Stígs
Helgasonar
Skandinavísk hönnun
í Kaupmannahöfn
ASGER JUEL LARSEN Bikerjakki og köflótt
mynstur fer vel saman.
ASGER JUEL LARSEN Stórar yfirhafnir
áberandi.
Fatahönnuðir sýndu vor- og sumarlínuna 2104 á nýafstaðinni tískuviku. Á
tískupöllunum mátti sjá marga af fremstu hönnuðum Skandinavíu sýna og
segja aðstandendur tískuvikunnar að í kringum fi mmtíu þúsund manns hafi
mætt til þess að fylgjast með. Fatahönnuðirnir Henrik Vibskov, Barbara I
Gongini, Moon Spoon og Asger Juel Larsen voru meðal þeirra sem sýndu í ár.
MOON SPOON
Litagleði og áberandi
mynstur.
BARBARA I
GONGINI Svartar
flíkur áberandi.
ÞAÐ styttist í jólin.
ÉG játa að ég er orðinn spenntur. Ég fór
að hugsa um það í vikunni hversu mikið
ég hlakkaði til að smokra mér í gegnum
mannþröngina í Kringlunni eða á Lauga-
veginum og velja vandamönnum mínum
(og sjálfum mér) jólagjafir, baka eins og
eina sort af smákökum (það er líka ein-
hver djöfulsins ólykt heima hjá mér)
og stinga seríunni aftur í samband (já,
hún er enn uppi í glugga). Og nei, þetta er
ekki grín.
STUNDUM er sagt í hálfkær-
ingi að á Íslandi séu bara tvær
árstíðir; vor og haust. Það er
ekki rétt. Þær eru þrjár: Sumar,
haust og jól.
ÞETTA árið kom sumarið og fór
í fjórðu viku júlímánaðar. Síðan
hefur verið haust og verður
áfram þangað til næsta sumar, ef
frá eru talin jólin. Þau standa frá
því um miðjan október og út janú-
ar. Sumir kalla þennan tíma vetur,
líklega af því að einstaka sinnum
fellur snjór af himni og okkur verður
dálítið kalt. En í raun eru þetta bara jólin.
Þriðja árstíðin – miklu lengri en sumarið.
ÞAÐ er líka til marks um hvað íslenska
haustið er mikið drasl að ég sé farinn að
hlakka til jólanna um miðjan ágúst og láta
mig dreyma um að liggja í ullarsokkum
uppi í sófa og borða mandarínur í skamm-
deginu. Ég var næstum því farinn að leggja
drög að jólahreingerningu og ég er ekki
einu sinni búinn með helminginn af sumar-
fríinu mínu, eins og það er kallað.
ÞAÐ styttist sumsé í jólin. Sem betur fer.
Ég hef raulað, blístrað og hummað jólalög
ómeðvitað í vinnunni undanfarna viku,
við mismikla hrifningu kollega minna,
og eflaust fer ég fljótlega að syngja þau
hástöfum. Ég vona innilega að fólki muni
ekki gremjast það um of, og ekki heldur
þegar ég verð farinn að skarta hreindýra-
peysum og heimta að mér verði boðið upp á
malt og appelsín á mannamótum í upphafi
september.
EKKI taka haustlægðina út á mér. Það er
enginn jólaandi í því.
Þriðja árstíðin
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ROGER EBERT
B R A D P I T T
COSMOPOLITAN
JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE
SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD
CHICAGO SUN-TIMES
H.G., MBL
2 GUNS 5, 8, 10.15(P)
KICK-ASS 2 00:30(FORSÝNING)
THE WAY WAY BACK 8, 10.10
STRUMPARNIR 2 3.50, 6 2D
R.I.P.D. 10.10 3D
SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 2D
THE HEAT 8
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
-Empire
-H.G., MBL
sýnd í samstarfi við biovefurinn.is
5%
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
2 GUNS KL. 5.30 - 8 - 10.30
WAY WAY BACK KL. 8 - 10.20
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL KL. 5.40
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 5.40
O GO O G SNLY D F R IVE 8 0 0KL. - 1 .1
GROWN UPS KL. 5.40
THIS IS THE END KL. 8 - 10.25
STRUMPARNIR 3D KL. 6
ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10 / WOLVERINE 3D KL. 10
GROWN UPS 2 KL. 6 - 8
-T.V., S&H - BÍÓVEFURINN
-H.S., MBL
Miðasala á: og
2 GUNS KL. 5.30 - 8 - 10.30
2 GUNS LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30
THE TO DO LIST KL. 8
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL KL. 3.20 - 5.40
STRUMPARNIR 2D Í SL TAL KL. 3.20 - 5.40
WOLVERINE 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40
GROWN UPS KL. 8 -10.20
THE HEAT KL. 10.20
-H.G., MBL
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS